
Völsungur
1
4
Fylkir

0-1
Pablo Aguilera Simon
'21
0-2
Emil Ásmundsson
'25
Inigo Albizuri Arruti
'60
1-2
1-3
Guðmar Gauti Sævarsson
'69
1-4
Eyþór Aron Wöhler
'93
28.06.2025 - 13:00
PCC völlurinn Húsavík
Lengjudeild karla
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
PCC völlurinn Húsavík
Lengjudeild karla
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Byrjunarlið:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
4. Elvar Baldvinsson
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
6. Inigo Albizuri Arruti

9. Elfar Árni Aðalsteinsson
('70)


10. Bjarki Baldvinsson
('82)

11. Rafnar Máni Gunnarsson
('87)

14. Xabier Cardenas Anorga
16. Jakob Héðinn Róbertsson
21. Ismael Salmi Yagoub
39. Gunnar Kjartan Torfason
('70)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
88. Einar Ísfjörð Sigurpálsson (m)
3. Davíð Leó Lund
('87)

7. Steinþór Freyr Þorsteinsson
('82)

12. Gestur Aron Sörensson
('70)

15. Tómas Bjarni Baldursson
17. Aron Bjarki Kristjánsson
23. Elmar Örn Guðmundsson
('70)
- Meðalaldur 22 ár


Liðsstjórn:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Tryggvi Grani Jóhannsson
Róbert Ragnar Skarphéðinsson
Bergsveinn Ás Hafliðason
Gul spjöld:
Elfar Árni Aðalsteinsson ('34)
Elmar Örn Guðmundsson ('86)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Einar Örn á síðustu tilraun leiksins. Þórður flautar svo til leiksloka. 1-4 lokatölur á Húsavík.
93. mín
MARK!

Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
Stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson
Stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson
Nikulás Val á þetta mark
Eyþór innsiglar sigurinn með marki eftir hraða sókn.
Nikulás mjög yfirvegaður með boltann og finnur Theodór í gegn sem leggur hann á Eyþór sem setur boltann í markið.
Nikulás mjög yfirvegaður með boltann og finnur Theodór í gegn sem leggur hann á Eyþór sem setur boltann í markið.
92. mín
Jakob Héðinn í góðu færi, góð sending frá Xabier, en skotið er beint á Ólaf í markinu.
86. mín
Gult spjald: Elmar Örn Guðmundsson (Völsungur)

Tekur manninn niður og fær spjald.
81. mín
Gult spjald: Árni Freyr Guðnason (Fylkir)

Eitthvað ósáttur.
Arnar Númi liggur og fær aðhlynningu.
Arnar Númi liggur og fær aðhlynningu.
77. mín
Völsungur vinnur hornspyrnu.
Gestirnir veiða einhvern veginn aukaspyrnu í kjölfarið. Frekar lítið á þetta fannst mér, þó öskrið hafi verið hátt.
Gestirnir veiða einhvern veginn aukaspyrnu í kjölfarið. Frekar lítið á þetta fannst mér, þó öskrið hafi verið hátt.
76. mín
Gult spjald: Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)

Strax í bókina, leiktöf sýndist mér.
71. mín
Theodór í góðri stöðu, boltinn berst á Eyþór sem á tilraun í varnarmann og aftur fyrir.
Fylkir að spila með talsverðum meðvindi í seinni.
Fylkir að spila með talsverðum meðvindi í seinni.
69. mín
MARK!

Guðmar Gauti Sævarsson (Fylkir)
Stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson
Stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson
Allt galopið úti hægra megin, Theodór fær endalausan tíma, sér hlaupið hjá Guðmari koma og finnur hann inn á markteignum. Eftirleikurinn auðveldur.
3-1.
3-1.
60. mín
MARK!

Inigo Albizuri Arruti (Völsungur)
Stoðsending: Elfar Árni Aðalsteinsson
Stoðsending: Elfar Árni Aðalsteinsson
Völsungar minnka muninn
Hornspyrna sem Elfar Árni nær að gera sér mat úr, skallar boltann fyrir Albi sem kemur boltanum í netið.
Game on!
Game on!
52. mín
Gult spjald: Pablo Aguilera Simon (Fylkir)

Rennir sér og fer í Gunnar Kjartan.
Fín fyrirgjafarstaða fyrir heimamenn.
Fín fyrirgjafarstaða fyrir heimamenn.
50. mín
Guðmundur lúrir á fjær og er tilbúinn í lausan bolta en Ívar gerir vel og slær þennan bolta í burtu.
49. mín
Elfar Árni í færi, gerir vel, lætur vaða en Ragnar Bragi hendir sér fyrir og stoppar þetta skot.
46. mín
Birkir, sem er kominn inn á miðsvæðið, með hörkuskot sem fer í Inigo. Góð byrjun hjá gestunum.
45. mín
Hálfleikur
Uppstillingar liðanna
Völsungur
Ívar
Gunnar - Inigo - Elvar - Arnar Pálmi
Rafnar - Bjarki - Xabier - Ismael
Jakob Héðinn - Elfar
Fylkir
Ólafur
Birkir - Ragnar - Ásgeir - Arnar Númi
Emil - Tumi
Theodór - Guðmundur - Pablo
Eyþór
Völsungur
Ívar
Gunnar - Inigo - Elvar - Arnar Pálmi
Rafnar - Bjarki - Xabier - Ismael
Jakob Héðinn - Elfar
Fylkir
Ólafur
Birkir - Ragnar - Ásgeir - Arnar Númi
Emil - Tumi
Theodór - Guðmundur - Pablo
Eyþór
45. mín
Hálfleikur
45+1
Emil með langskot eftir sprett og boltinn vel framhjá. Þórður flautar til hálfleiks í kjölfarið.
Emil með langskot eftir sprett og boltinn vel framhjá. Þórður flautar til hálfleiks í kjölfarið.
43. mín
Hröð sókn hjá heimamönnum, hættuleg fyrirgjöf sem er hreinsuð aftur fyrir. Inigo skallar svo fyrirgjöfina úr horninu í burtu.
39. mín
Arnar Pálmi með sendingu inn fyrir á Jakob Héðin sem er með tilraun en Ólafur lokar. Heimamenn fá horn.
37. mín
Ismael hrasar eftir návígi við Ragnar Braga, fyrirliðinn klaufalegur þarna, en sennilega ekki nóg til að fá víti. Hefði verið fróðlegt að sjá hvað Þórður hefði gert ef Ismael hefði farið niður.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
34. mín
Gult spjald: Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)

Rennir sér og tekur bæði bolta og mann.
29. mín
Jakob Héðinn vill fá víti eftir návígi inn á teignum. ÞÞÞ segir að ekkert sé á þetta.
28. mín
Jakob Héðinn kemst framhjá Ólafi í markinu en er í litlu jafnvægi og drífur ekki almennilega á markið og Ragnar Bragi hreinsar.
25. mín
MARK!

Emil Ásmundsson (Fylkir)
Stoðsending: Pablo Aguilera Simon
Stoðsending: Pablo Aguilera Simon
Þetta var klaufalegt, Emil kemur gestunum í 0-2. Ívar leit furðulega út þarna.
Þetta er langskot sem fer tiltölulega beint á Ívar en hann nær ekki að stoppa boltann með vörslu og boltinn lekur yfir hann og inn.
Þetta er langskot sem fer tiltölulega beint á Ívar en hann nær ekki að stoppa boltann með vörslu og boltinn lekur yfir hann og inn.
23. mín
Spyrnan frá Ismael beint í vegginn og frákaststilraunin fer sömuleiðis í varnarmúrinn.
22. mín
Gult spjald: Emil Ásmundsson (Fylkir)

Brýtur á Bjarka sem nær skotinu en svo er aukaspyrna dæmd við vítateig Fylkis.
21. mín
MARK!

Pablo Aguilera Simon (Fylkir)
Stoðsending: Emil Ásmundsson
Stoðsending: Emil Ásmundsson
Gestirnir leiða
Emil með skot/sendingu hægra megin úr teignum, boltinn fer á fjær og Pablo er þar óvaldaður og stýrir boltanum í netið.
20. mín
Góð sókn hjá heimamönnum, Elfar Árni með skemmtilega snertingu inn á Rafnar sem finnur Ismael vinstra megin í teignum. Hann á svo skot sem fer í utanvert hliðarnetið.
16. mín
Tilraun í varnarmann frá Bjarka og svo vinnur Arnar Pálmi hornspyrnu fyrir heimamenn. Ekkert kom úr henni.
15. mín
Ólafur Kristófer!
Flott stungusending inn fyrir vörn Fylkis en Ólafur Kristófer er mættur langt út og er á undan Jakobi í boltann.
14. mín
Jakob Héðinn með fyrstu tilraun heimamanna, skot fyrir utan teig en hittir ekki markið.
13. mín
Guðmundur Tyrfings með skalla yfir markið eftir flotta fyrirgjöf frá hægri. Líður eins og Ívar hafi verið sigraður þarna en skalli Guðmunds fer yfir.
12. mín
Tumi með hornspyrnu en hún er ekkert sérstök og Völsungar hreinsa.
Völsungar voru í fínn skyndisókn en sending Xabier á Elfar mislukkuð.
Völsungar voru í fínn skyndisókn en sending Xabier á Elfar mislukkuð.
3. mín
Færi
Fylkir fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
Tumi með boltann fyrir, Ásgeir nær skalla en hittir ekki markið.
Tumi með boltann fyrir, Ásgeir nær skalla en hittir ekki markið.
1. mín
Strax færi, Theodór í fínu færi en setur boltann framhjá.
Jakob Héðinn með fyrirgjöf hinu megin sem Ólafur handsamar.
Jakob Héðinn með fyrirgjöf hinu megin sem Ólafur handsamar.
Fyrir leik
Ragnar Bragi færir Arnari Pálma blómvönd fyrir leik. Arnar Pálmi fer með vöndinn í stúkuna.
Völsungur spilar í grænu og Fylkir í hvítu og svörtu.
Völsungur spilar í grænu og Fylkir í hvítu og svörtu.
Fyrir leik
Skemmtileg umgjörð
Það er mikið líf við PCC völlinn á Húsavík, hægt að versla treyjur og margir mættir. Það er stóri Völsungsdagurinn í dag, klukkan 17:00 á svo kvennaliðið leik.
Á milli leikjanna er haldin vítaspyrnukeppni á vellinum.
Á milli leikjanna er haldin vítaspyrnukeppni á vellinum.
Fyrir leik
Reynsluboltar snúa aftur
Eins og ég sagði hér á undan þá eru Ragnar Bragi og Emil Ásmunds mættir inn í liðið hjá Fylki sem eru gleðitíðindi fyrir gestina. Hjá heimamönnum er svo Elfar Árni mættur aftur í liðið, hann sneri aftur heim í Völsung í vetur.
Ragnar Bragi

Ragnar Bragi
Fyrir leik
Tríóið
Þórður Þorsteinn Þórðarson er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar eru þeir Eðvarð Eðvarsson og Sveinn Þórður Þórðarson. Magnús Sigurður Sigurólason er eftirlitsmaður KSÍ.
ÞÞÞ

ÞÞÞ
Fyrir leik
Byrjunarliðin - Tvær og þrjár breytingar
Alli Jói, þjálfari Völsungs, gerir tvær breytingar frá sigrinum gegn Grindavík. Elfar Árni og Inigo koma inn í liðið fyrir þá Gest Aron og Elmar sem taka sér sæti á bekknum.
Árni gerir þrjár breytingar á sínu liði frá tapinu gegn HK. Þóroddur Víkings og Bjarki Steinsen taka sér sæti á bekknum. Orri Segatta er ekki með í dag. Fyrirliðinn Ragnar Bragi, Emil Ásmunds og Pablo Simon koma inn.
Árni gerir þrjár breytingar á sínu liði frá tapinu gegn HK. Þóroddur Víkings og Bjarki Steinsen taka sér sæti á bekknum. Orri Segatta er ekki með í dag. Fyrirliðinn Ragnar Bragi, Emil Ásmunds og Pablo Simon koma inn.
Fyrir leik
Fínasta veður
Sú gula er að kíkja í bland við þung rigningarský, gætum fengið alls konar veður í dag. En það er allavega nokkuð hlýtt!
Fyrir leik
Staðan í deildinni og síðustu leikir
Nýliðar Völsungs eru í 6. sæti deildarinnar og geta með sigri farið upp fyrir Þrótt og í 5. sætið. Völsungur vann 2-4 útisigur gegn Grindavík í síðustu umferð, þar skoraði Jakob Héðinn þrennu. Völsungum var spáð botnsætinu fyrir mót.
Fylkir er í 10. sæti sem er ekki það sem lagt var upp með fyrir mót. Með sigri getur liðið farið upp í 9. sætið, upp fyrir Leikni.
Fylkir tapaði 1-2 gegn HK í síðasta leik og hefur einungis unnið einn leik í sumar, heimaleik gegn Selfossi. Það er slúðrað um það að sætið hjá Árna Guðna, þjálfara Fylkis, sé heitt. Fylki var spáð toppsætinu fyrir mót.
Fylkir er í 10. sæti sem er ekki það sem lagt var upp með fyrir mót. Með sigri getur liðið farið upp í 9. sætið, upp fyrir Leikni.
Fylkir tapaði 1-2 gegn HK í síðasta leik og hefur einungis unnið einn leik í sumar, heimaleik gegn Selfossi. Það er slúðrað um það að sætið hjá Árna Guðna, þjálfara Fylkis, sé heitt. Fylki var spáð toppsætinu fyrir mót.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
7. Tumi Fannar Gunnarsson
('75)

8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Eyþór Aron Wöhler

11. Pablo Aguilera Simon
('75)



17. Birkir Eyþórsson
19. Arnar Númi Gíslason
('82)

20. Theodór Ingi Óskarsson
70. Guðmundur Tyrfingsson
('65)

88. Emil Ásmundsson
('46)
- Meðalaldur 25 ár



Varamenn:
12. Hilmar Þór Kjærnested Helgason (m)
6. Þorkell Víkingsson
('82)


10. Benedikt Daríus Garðarsson
('75)


14. Þóroddur Víkingsson
18. Nikulás Val Gunnarsson
('75)

34. Guðmar Gauti Sævarsson
('65)


77. Bjarki Steinsen Arnarsson
('46)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)

Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Daði Ólafsson
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Árni Leó Þórðarson
Gul spjöld:
Emil Ásmundsson ('22)
Pablo Aguilera Simon ('52)
Benedikt Daríus Garðarsson ('76)
Árni Freyr Guðnason ('81)
Þorkell Víkingsson ('86)
Rauð spjöld: