Fotbolti.net
Besta deildin
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild karla
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
2 - 0
ÍBV
ÍBV
Freyr Sigurðsson 18'1 - 0Jakob Byström 29'2 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Þreyttir Framarar komnir upp í 5. sætið

Hvað réði úrslitum?

Framarar byrjuðu leikinn á tveimur mörkum sem var mjög sterkt í svona leik. Framarar urðu þreyttir snemma og Eyjamenn héldu mikið meira í boltann í seinni hálfleik án þess að ná að skapa sér mörg færi úr opnum leik. Framarar gerðu vel að halda þetta út.

Bestu leikmenn

1. Sigurjón Rúnarsson

Fannst Sigurjón vera mjög góður í vörn Framara í dag. Stóð fyrir sínu og var að mínu mati besti maður vallarins.

2. Freyr Sigurðsson

Var mjög líflegur í dag og það var alltaf einhver hætta þegar hann fékk boltann. Skoraði gott mark og var mjög góður.

Atvikið

Klárlega þegar Kennie Chopart bjargaði á marklínu áður en einn Eyjamaðurinn tók boltann niður en það var dæmt hendi á það. Þegar Goddurinn dæmdi hendi héldu allir að hann væri að dæma mark og þar að meðal ég. Það hefði getað breytt leiknum og verið einhverskonar vendipunktur.

Hvað þýða úrslitin?

Framarar fara upp í 5. sætið á markatölu þar sem Vestri tapaði gegn Skaganum í dag. Eyjamenn eru áfram í 9. sætinu en það eiga tveir leikir eftir að klárast í þessari umferð.

Vondur dagur

Mér fannst Sverrir Páll ekki eiga sinn besta leik í dag og hefði getað nýtt góðar stöður enn betur. Það vantar klárlega mikið í sóknarleik ÍBV eftir að Oliver og Omar Sowe meiddust.

Dómarinn - 9

Goddurinn og teymið stóðu fyrir sínu. Var nokkrum sinnum ekki viss með ákveðna dóma í leiknum en þegar var farið í VAR skjáinn þá kom það á daginn að Gunnar og hans menn voru með allt á hreinu. Frábær leikur hjá þeim í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.