Jökull I Elísabetarson
Jökull ósáttur við dómarana og lætur vel í sér heyra, við litla hrifningu Jóhanns Inga sem spjaldar Jökul.Örvar Eggertsson
Patrick Pedersen
Albin Skoglund þrumar boltanum í slánna, boltinn fer aftur út í teiginn og hver annar en Patrick Pedersen er réttur maður á réttum stað og stýrir boltanum í netið!Vi har Pedersen! Patrick Pedersen skorar sitt annað mark og allt tryllist á Hlíðarenda???? pic.twitter.com/mb7K4EH0ol
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 1, 2025


Orri Sigurður Ómarsson
Orri fer í bókina góðu fyrir tæklingu.Valsmenn leiða í undanúrslitum eftir mark Patrick Pedersen! Kristinn Freyr átti góðan sprett inn í teig og Patrick fann glufuna???? pic.twitter.com/r3TQZzYmL2
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 1, 2025
Patrick Pedersen (stoðsending: Kristinn Freyr Sigurðsson )
Kristinn spólar sig frábærlega í gegnum vörn Stjörnunnar, kominn við endalínu og gefur fyrir á Patrick Pedersen sem stýrir boltanum í stöngina og inn af stuttu færi.Valsmenn leiða!


,,Það er leyft mikið og mikið flæði. Kannski skemmtilegt fyrir áhorfendur en við þurfum að ná smá stjórn á leiknum."
Var sætt að setja hann gegn sínum gömlu félögum?
,,Nei nei, við erum að horfa á úrslitaleikinn og það er ekkert sætara enn að komast þangað."
Þá var hann jafnframt spurður út í brot Árna á Albin Skoglund.
,,Mér fannst þetta vera dýfa, mér fannst það aldrei brot þú sérð það hvernig hann dettur," segir Andri jafnframt.

Þór styrktarþjálfari Stjörnunnar með alvöru power move fyrir leikinn. Power stance. Power coach. Með Stjörnu tattú. Trylltur pic.twitter.com/Knku2MT6G9
— Jói Ástvalds (@JoiPall) July 1, 2025
Aðstoðarþjálfara comboið Steve Caulker og Garpur Ingason Elísabetarson
— Freyr S.N. (@fs3786) July 1, 2025
Hvaða djók er þetta rektu manninn útaf??!
— Jói Skúli (@joiskuli10) July 1, 2025
Hérna hver eru rökin hjá Jóhanni Inga fyrir því að þetta sé einungis gult spjald á Árna Snæ?
— Rikki G (@RikkiGje) July 1, 2025
Stuðningsmenn Stjörnunnar baula á dómarakvartettinn er þeir ganga inn til búningsklefa, ég veit þó ekki hvers vegna.
Valsmenn keyra upp í skyndisókn, Jónatan Ingi fær boltann og sker á vinstri og smellir boltanum í utanverða stöngina. Síðasta færi fyrri hálfleiks.
Liðin vaða í færum hér í þessum fyrri hálfleik, áhorfendum til mikillar skemmtunar. Minnir helst á KR þar sem færin eru heldur betur ekki af skornum skammti.
Valsmenn nú með yfirhöndina eftir sterka byrjun gestanna.
Jónatan Ingi Jónsson
Jónatan fær boltann úti á hægri kantinn, sker inn til vinstri og lætur vaða á nær og boltinn í netinu.Set spurningamerki við Árna Snæ þarna sem var farinn í fjærhornið. Einhver hiti verður svo milli manna í kjölfar marksins, en þó ekkert alvarlegt.
Jónatan Ingi Jónsson jafnar metin fyrir Valsmenn!???? pic.twitter.com/X5MXjCYrO5
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 1, 2025
Stjarnan leiðir 1-0 gegn Val í undanúrslitum bikarsins í fótbolti. Andri Rúnar sneiddi boltann snyrtilega í markið eftir 4 mínútur? pic.twitter.com/fBpLxkiBns
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 1, 2025





Árni Snær Ólafsson
Albin Skoglund sleppur í gegn og fellur við snertingu frá Árna Snæ, markverði Stjörnunnar. Valsmenn baula og vilja sjá annan lit á spjaldinu.Fyrst Jóhann dæmir á þetta er skrítið að sjá gult spjald fara á loft, Árni er aftasti maður. En Valsmenn fá aukaspyrnu á vítateigslínu!


Andri Rúnar Bjarnason
Benedikt með frábæra fyrirgjöf beint á kollinn á Andra Rúnari sem er óvaldaður í teignum og stangar boltann í netið af stuttu færi!Andri heldur sér réttstæðum og stingur sér inn fyrir varnarlínuna á hárréttum tímapunkti.



Á Epic er að finna áhugaverða spesjala á leikinn.
Valur kemst áfram, Patrik Pedersen skorar og Alex Þór Hauksson í bókina er á stuðlinum 9.5 og hinsvegar Stjarnan kemst áfram, Benedikt Warren skorar og stjarnan fær 3+ hornspyrnur á stuðlinum 11.


Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, gerir einungis eina breytingu frá 1-4 tapi gegn Breiðabliki í síðustu umferð. Inn í byrjunarlið Stjörnunnar kemur fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson í stað Örvars Loga Örvarssonar sem tekur út leikbann.

Stjarnan mætti þáverandi bikarmeisturum Víkings og fór leikurinn alla leið í vítaspyrnukeppni. Þar höfðu Víkingar betur og tryggðu sér þar með farseðilinn á Laugardalsvöll.

Þá er sömuleiðis óvíst hvort að Tryggvi Hrafn Haraldsson verði með Valsmönnum í kvöld en hann var veikur í síðasta deildarleik gegn KA.
Birkir Heimisson, Marius Lundemö og Aron Jóhannson, leikmenn Vals, eru jafnframt allir meiddir.

Í 8-liða úrslitum tóku bikaróðir Eyjamenn á móti Völsurum þar sem Valur vann 1-0 iðnaðarsigur á ÍBV, Hólmar Örn með eina mark leiksins.
32-liða úrslit: Grindavík 1-3 Valur
16-liða úrslit: Valur 2-1 Þróttur
8-liða úrslit: ÍBV 0-1 Valur

Stjarnan mætti Njarðvíkingum í fyrstu umferð og þar vantaði ekki upp á dramatíkina. Örvar Eggertsson kom leiknum í framlengingu með jöfnunarmarki í uppbótartíma, þar sem Stjörnumenn kláruðu svo leikinn.
Því næst fóru Stjörnumenn upp á Skaga og mættu þar 2. deildarliði Kára. Leikurinn fór óvænt alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Stjarnan hafði betur.
Stjörnumenn voru komnir með leið á því að fara alltaf í framlengingu er þeir mættu Keflvíkingum og sigruðu þá því 4-2 í venjulegum leiktíma.
32-liða úrslit: Stjarnan 5-3 Njarðvík
16-liða úrslit: Kári (1)1-1(4) Stjarnan
8-liða úrslit: Stjarnan 4-2 Keflavík

Þá hefur Stjarnan þrisvar sinnum leikið til úrslita og einu sinni borið sigur úr býtum og þar með hreppt bikarinn. Var það 2018 er Stjarnan sigraði Breiðablik í vítaspyrnukeppni eftir markalausar 120 mínútur.







