Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
A. le Coq
24 gráður og sól
Flora Tallinn
Flora Tallinn
1 - 2
Valur
Valur
0 - 129' Tryggvi Hrafn HaraldssonRauno Sappinen 41'1 - 11 - 293' Jónatan Ingi Jónsson
Dómari: Oscar Johnson (Svíþjóð)
Leik lokið!
Valur vinnur 5-1 samanlagt og fer áfram
Fyrri leikurinn 3-0 og 2-1 í dag. Fagmannlega gert hjá Völsurum, sjöundi sigur liðsins í röð staðreynd. Ég ætla leyfa mér að fullyrða að Valsarar muni mæta Kauno Zalgiris, toppliði litháensku deildarinnar í næstu umferð.
Flora Tallinn
96. mín
InnSander Alamaa
ÚtSergei Zenjov
Flora Tallinn
96. mín
InnMaksim Kalimullin
ÚtTristan Teeväli
95. mín
Stefán Þór!
Dauðafæri hjá heimamönnum, allt galopið, en Stefán Þór sér við framherja heimamanna.
Valur
93. mín
Frábærlega gert!

Jónatan Ingi Jónsson

Valsarar komnir áfram, staðan 5-1 í einvíginu. Flott spil úti hægra megin, fyrirgjöf inn á teiginn ætluðu Albin Skoglund, tæklað fyrir þann bolta og Jónatan þefar uppi lausan bolta, sýnir mikla yfirvegun og vippar yfir markmannn Eistanna. Jónatan skorar sitt annað Evrópumark á ferlinum, fyrra markið kom í fyrri leiknum gegn Flora. Mikilvægast að vinna einvígi, en það er mikilvægt upp á Evrópustig að vinna leiki líka, það telur allt saman.
Valur
91. mín
Gult spjald

Lúkas Logi Heimisson

Fer auðveldlega niður í teig Eistanna og sænski dómarinn ekki hrifinn af því.
91. mín
Átta mínútur í uppbótartíma
85. mín
Markus Poom lætur vaða af þessu langa færi og boltinn fer ofan á þaknetið, ekki galin spyrna.
84. mín
Lúkas Logi dæmdur brotlegur á miðjum vallarhelmingi Vals. Alveg skotfæri, en þó langt.
Valur
82. mín
InnStefán Þór Ágústsson
ÚtFrederik August Albrecht Schram
Vonandi var þetta ekki þungt höfuðhögg sem Frederik fékk, leit ekki þannig út allavega, en fékk blóðnasir við höggið.
81. mín
Stefán Þór Ágústsson gerir sig kláran í að koma inn á. Frederik þarf að fara af velli.
Flora Tallinn
79. mín
InnMarco Lukka
ÚtSander Tovstik
78. mín
Frederik fær blóðnasir og fær aðhlynningu. Eitthvað farið í hann, samstuð við Hólmar Örn sem skýldi boltanum eða Lepik sem setti pressu á Hólmar, þegar Frederik handsamaði boltann.
77. mín
1002 í stúkunni
Setið í 1/14 af sætunum í stúkunni.
Valur
76. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
Pálsson út, Pálsson inn
Valur
76. mín
InnOrri Hrafn Kjartansson
ÚtAdam Ægir Pálsson
Fyrsti Evrópuleikur Orra á ferlinum
73. mín
Mark Anders Lepik með skemmtilega tilraun eftir samspl við Sappinen, reynir utanfótar snuddu með vinstri vinstra megin úr teignum en skotið framhjá fjærstönginni.
Flora Tallinn
71. mín
Gult spjald

Rauno Sappinen

Brýtur á Bjarna Mark á miðjum velli.
70. mín
Alvöru darraðadans
Mikill atgangur inn á vítateig Vals og heimamenn gera sig líklega, en ná ekki að koma skoti á rammann, Valsarar henda sér fyrir og ná að hreinsa.
Valur
67. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtKristinn Freyr Sigurðsson
Valur
67. mín
InnAlbin Skoglund
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
Markaskorarinn af velli
Flora Tallinn
67. mín
InnMark Anders Lepik
ÚtAndero Kaares
Flora Tallinn
67. mín
InnDanil Kuraksin
ÚtNikita Mihhailov
Flora Tallinn
65. mín
Gult spjald

Sander Tovstik

Brýtur á Jónatani Inga.
64. mín
Orri Sigurður með hættulegan bolta inn á teiginn en aðeins of innarlega fyrir Tryggva Hrafn. Valsarar undirbúa tvöfalda breytingu, Lúkas Logi og Albin Skoglund að gera sig klára.
62. mín
Orri Sigurður með skot með vinstri fæti fyrir utan teig en það fer framhjá. Tryggvi Hrafn fór niður í D-boganum í aðdragandanum og þar hefði vel mátt dæma aukaspyrnu.
60. mín
Tilraun frá Markus Poom sýnist mér sem fer í utanvert hliðarnetið.
57. mín
Fyrirgjöf sem Frederik handsamar. Flora sækir í byrjun seinni hálfleiks, en ekkert færi til þessa.
53. mín
Flora fær fyrstu hornspyrnu seinni hálfleiksins. Boltanum spyrnt lágt að nærstönginni og Valsmenn hreinsa. Eistarnir vinna svo annað horn stuttu seinna sem Valsarar hreinsa líka í burtu.
47. mín
Adam reynir að finna Kristin í gegn en sendingin aðeins of löng.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Engar sjáanlegar breytingar á liðunum.
45. mín
Beint í netið
Þetta skot frá Tryggva er eitthvað annað, sveif yfir markmann Eistanna og í netið, án þess að snerta grasið. Tryllt!
45. mín
1-1 (1-4) í hálfleik
Það lifnaði heldur betur yfir þessu eftir mjög rólegar fyrstu 20 mínútur. Valsarar geta verið sáttari en heimamenn með jafnari stöðu í hálfleik finnst mér.
45. mín
Skot frá heimamönnum úr vítateig Vals en það fer hátt yfir. Einni mínútu bætt við fyrri hálfleikinn.
45. mín
Skalli úr markteignum
Sergei Zenjov rekur höfuðið í boltann úr markteignum en Frederik er vel á verði og ver þetta. Flora að banka, ná heimamenn að minnka muninn í einvíginu enn frekar fyrir leikhlé?
44. mín
Andero Kaares nálægt því að komast í dauðafæri inn á vítateig Vals en Orri Sgurður nær að stíga hann út á síðustu stundu.
43. mín
Adam nálægt því að senda Kristin Frey í gegn við vítateig Flora en annað hvort var sendingin aðeins of þung eða snertingin hjá Kidda klikkaði, því ekki kom færi út úr þessu.
Valur
42. mín
Gult spjald

Orri Sigurður Ómarsson

Brot hátt uppi á vellinum.
Flora Tallinn
41. mín
Líflína?

Rauno Sappinen (stoðsending: Markus Poom)

Boltanum lyft inn á teiginn, skalla þríhyrningur hjá heimamönnum og svo klárar Sappinen með góðu skoti úr teignum. Nokkuð skemmtilega gert.
38. mín
Jónatan Ingi með flottan sprett, finnur Adam sem ætlar að senda á Kristin en snertingin er þung og boltinn fer aftur fyrir. Valsarar vinna svo boltann hátt uppi á vellinum en ná ekki að nýta sér þá stöðu.
36. mín
Þung sókn hjá Val, Tómas Bent með tilraun sem fer í varnarmann og svo reynir Orri Sigurður en heimamenn hreinsa.
31. mín
Bilað mark hjá Tryggva Hrafni sem innsiglar sigur Vals í þessu einvígi, það eru alveg hreinar línur. Þriðja Evrópumark Tryggva á ferlinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur
29. mín
VÁÁÁÁÁ!!!!!! FYRIR AFTAN MIÐJU!

Tryggvi Hrafn Haraldsson (stoðsending: Adam Ægir Pálsson)

Adam Ægir vinnur boltann á eigin vallarhelmingi, boltinn berst á Tryggva sem lætur vaða fyrir aftan miðju og boltinn svífur yfir Grünvald og í netið! Sturlað mark hjá Tryggva, þvílík spyrna!!!! Valur 4-0 yfir í einvíginu!
Flora Tallinn
27. mín
Gult spjald

Markus Poom

Sonur Mart Poom kominn í bókina. Braut á Tómasi Bent.
25. mín
Gott færi
Valsarar heppnir þarna að fá ekki mark á sig þarna, sofanda háttur, sem ég skil eftir byrjunina. Heimamenn fá horn og fyrirliðinn Kristo Hussar á tilraun sem fer himinhátt yfir.
25. mín
Markus Poom með skot sem Frederik ver. Eistarnir vaknaðir.
24. mín
Sláin!
Nikita Mihhailov með skot af vítateigslínunni, í varnarmann og Frederik ver boltann í slána. Frederik vel vakandi.
Valur
23. mín
Gult spjald

Kristinn Freyr Sigurðsson

Mislukkuð móttaka og brot í kjölfarið.
21. mín
Fínn spilkafli hjá Val, sem verður að teljast fréttnæmt. Lítið haldið í boltann til þessa.
20. mín
Ég er ennþá hérna, akkúrat ekkert gerðist síðustu fimm.
15. mín
Þetta er sennilega eitt leiðinlegasta korter af fótbolta sem ég hef séð.
13. mín
Hólmar Örn brýtur af sér á miðjum vellinum. Af því tilefni ætla ég að tilkynna að það eru um 24 gráður núna í Tallinn og sólskin.
9. mín
Uppstilling Vals
Frederik Orri S - Hólmar - Nakkim - Sigurður Egill Tómas Bent - Bjarni Mark Jónatan - Kristinn - Adam Tryggvi
8. mín
Tryggvi með sendingu á markmanninn
Tryggvi í nokkuð fínni stöðu en á annað hvort mjög misheppnaða sendingu eða fáránlega laust skot sem endar sem sending beint á Grünvald í marki heimamanna.
7. mín
Rólegt yfir þessu, heimamenn reyna að leita að glufum í vörn Valsara sem geta leyft sér að bíða eftir því að Eistarnir komi á þá.
2. mín
Bjarni Mark með tirlaun yfir mark Flora, sýndist þetta allavega vera Duffield sem lúðraði með vinstri, en engin hætta.
2. mín
Kristinn Kjærnested lýsir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í beinni á Sýn Sport
1. mín
Kristinn Freyr sparkar þessu af stað.
Valsarar svartklæddir í dag. Koma svo Valur!
0. mín
Af æfingu fyrir leikinn
0. mín
Ein breyting frá fyrri leiknum
Ein breyting er á liði Vals frá fyrri leiknum, Adam Ægir Pálsson kemur inn fyrir Patrick Pedersen. Tryggvi Hrafn Haraldsson verður fremsti maður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Kauno Zalgiris bíður
Það er líklegast að sigurliðið úr þessu einvígi mætir litháenska liðinu Kauno Zalgiris í næstu umferð forkeppninnar. Kauno er 3-0 yfir gegn velska liðinu Penybont eftir fyrri leik liðanna.
0. mín
Valsarar unnið sex leiki í röð
Valur hefur unnið sex leiki í röð í öllum keppnum; tvo bikarleiki, þrjá deildarleiki og svo fyrri leikinn gegn Flora.
0. mín
Rúmlega 14 þúsund manna leikvangur
Mynd: EPA
0. mín
Sænskir dómarar
Oscar Johnson er með flautuna í dag, Mikael Hallin og Simon Kristensson eru honum til aðstoðar og Richard Sundell er fjórði dómari.
0. mín
Sannfærandi sigur í fyrri leiknum
Valsmenn voru mun betra liðið í fyrri leiknum, Tómas Bent Magnússon skoraði fyrstu tvö mörk leiksins og Jónatan Ingi Jónsson skoraði svo þriðja markið; öll mörkin komu í fyrri hálfleik.
0. mín
Velkomin til Tallinn
Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í textalýsingu frá leik Flora Tallinn og Vals í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildeinni. Um seinni leik liðanna er að ræða en Valur vann fyrri leikinn 3-0 á heimavelli. Leikurinn er sýndur á Sýn Sport og er stuðst við þá útsendingu í þessari lýsingu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.