SKÝRSLAN: KA í bullandi séns gegn Silkeborg
Hvað réði úrslitum?
Engin spilar betur en andstæðingurinn leyfir. Við höfum öll heyrt þennan frasa og það oftar en einu sinni. Mér finnst hann eiga virkilega vel við eftir þennan leik. Lið KA mætti til leiks með plan, þeir spiluðu á sínum styrkleikum og ýttu leikmönnum Silkeborg út í það að gera hluti sem KA átti ekki í vandræðum með varnarlega. Þá hægðu þeir vel á leiknum þegar á þurfti og fóru í allra fínustu taugar leikmanna og stuðningsmanna Silkeborgar. Þegar upp var staðið var það það sem réði úrslitum. Auðvitað er viss heppni að hafa jafnað á lokaandartökum leiksins. En KA hafði fengið færi fram að því og þar að auki segir annað máltæki. Þú skapar þína eigin heppni.
Bestu leikmenn
1. Steinþór Már Auðunsson
Var hreint út sagt frábær, varði nokkrum sinnum afar vel úr hættulegum færum og var öruggur í teignum. Var hreinlega óheppinn að leggja ekki upp mark.
2. Marcel Römer
Honum leið virkilega vel á Jysk Park í kvöld og átti frábæran leik á miðjunni. Sannaði það að hann var ekki að fara til Íslands til að deyja drottni sínum sem fótboltamaður heldur ætti hann fullt erindi í danska boltann ennþá.
Atvikið
Auðvitað jöfnunarmark Hallgríms. Frábært slútt úr teignum og gleði KA manna í stúkunni sem og fyrir framan sjónvarpið var mikil.
Hvað þýða úrslitin?
Allt jafnt fyrir seinni leikinn á Akureyri. KA menn með blóð á tönnunum eftir kvöldið og ætla eflaust að láta liði Silkeborg líða enn verr á Greifavellinum en þeir gerðu í Danmörku í kvöld.
Vondur dagur
Virðing danskra fjölmiðla fyrir þessu KA liði er engin. Miðlar hafa skrifað að lið Silkeborgar hafi gert sig að fífli með þessum úrslitum og þar fram eftir götunum. Ekki það þeir mega skrifa það sem þeim sýnist en þetta voru sanngjörn úrslit.
Við elskum að fara í taugarnnar á þeim Danska og það fer fátt meira í þá en að mistakast gegn Íslendingum,.
Dómarinn - 8
Ekkert upp á Belgan að klaga. Með allt sitt í teskeið.


