Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Fjölnir
Fjölnir
Lengjudeild karla
Fjölnisvöllur
Skýjað og smá vindur. Sólin lætur sína sig inn á milli.
1 - 1
Völsungur
Völsungur
Bjarni Þór Hafstein (víti) 87'1 - 01 - 189' Sergio Parla Garcia (víti)
Dómari: Jens Elvar Sævarsson

SKÝRSLAN: Liðin deila stigum eftir ótrúlegar loka mínútur

Hvað réði úrslitum?

Fjölnir voru betra liðið á vellinum, sértakleg aí fyrri hálfleik. En varnaleikur Völsunga og Ívar í markinu voru frábærir í dag.

Bestu leikmenn

1. Ívar Arnbro Þórhallsson

Lang flottasti leikmaðurinn á vellinu og þá sértakelga í fyrri hálfleik þar sem hann átti þrjár svaka vörslur til að halda Völsungi enn inn í leiknum. Stórt praise á hann í dag!

2. Inigo Albizuri Arruti

Var mjög flottur í vörninni í leiknum. Hann náði að pota eða sparka boltanum í burtu þegar leikmenn Fjölnis voru komnir í hættulega stöðu.

Atvikið

Svo sannarlega vítadómarnir sem komu nokkrum mínútum á milli hvort annarri. Fjölnis menn voru viss um þeir voru að fara sigra leikinn eftir vítið þeirra, svo nokkru mínútum seinna fær Völsungur víti og skora úr því líka. Ótrúlegar senur frá leik sem var ekki með mikið af hápunktum.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir er jöfn stigum við Fylkir en eru fyrir neðan vegna lélagari markatölu og liggja í fallsæti. Völsungur liggur enn í 7. sæti.

Vondur dagur

Fjölnir eru svekktara liðið eftir þennan punkt sem er skiljanlegt miða við þau færi sem þeir fengu. Þeir voru mikið frammi en náðu ekki að brjóta Völsungana í opnum leik, eins mikið og þeir reyndu. Fjölnir gerði þó vel þegar Völsungur fóru upp og náði að loka fyrir metu hættu þeirra líka. Það var að mestu nýting á færum Fjölnis manna sem var vandamálið hjá þeim í dag.

Dómarinn - 8

Jens og teymið hans var með fína línu sem hann hélt yfir nánast allan leikinn. Það er lítið hægt að segja um þeirra vinnu. Það var þó eitt atvik þegar leikmaður Völsunga sparkar fast til baka á ívar sem tekur svo boltann upp með höndunum og Jens segir ekkert við því, en annars var restin vel dæmt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.