Fotbolti.net
Besta deildin
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
FH
FH
3 - 2
ÍA
ÍA
0 - 15' Haukur Andri Haraldsson0 - 222' Jón Gísli Eyland GíslasonÍsak Óli Ólafsson 42'1 - 2Sigurður Bjartur Hallsson 59'2 - 2Sigurður Bjartur Hallsson 70'3 - 2
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Heimir Guðjóns kann að setja upp leikþátt

Hvað réði úrslitum?

Hvað er hægt að segja eftir svona leik? Skagamenn koma inn af miklum krafti og þegar vel var liðið á fyrri hálfleik var ekkert sem benti til neins annars en stórsigurs Skagamanna. Gamli refurinn Heimir Guðjónsson er þó eldri en tvævetur í þessum bransa, það skal ég segja ykkur. Heimir setur upp eitthvað leikrit á hliðarlínunni og í kjölfarið fer þessi leikur bara í eitthvað þvílíkt rugl og vitleysu. FH skora og fá svo víti strax í kjölfarið sem þeir reyndar klúðra en eftir það var komið panikk í Skagamenn sem réðu ekki við áræðna Hafnfirðinga í seinni hálfleik. Heilt yfir er þetta einn skemmtilegasti leikur sumarsins, leikur sem hafði allt. Rauð spjöld, víti, mörk og dramatík fyrir allan peninginn.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Bjartur Hallsson

Frábær leikmaður og sýndi það enn og aftur í dag með því að skora tvö frábær mörk og tryggja FH-ingum þrjú stig. Ég er svona að reyna átta mig á hvort hann sé Halli eða hvort hann sé Laddi. Kristall Máni Ingason, leikmaður Sonderjyske, má bara benda mér á það hvor hann er.

2. Kjartan Kári Halldórsson

Leggur upp fyrstu tvö mörkin og sótti vítaspyrnuna sem hann klúðraði reyndar sjálfur. Hefði getað lagt upp mark í fyrri hálfleik þegar aukaspyrna hans fór beint á pönnuna á Ahmad Faqa sem brást bogalistinn.

Atvikið

Ekki annað hægt en að benda á atvikið sem átti sér á stað á 39. mínútur. Atvik úti við hliðarlínu þar sem Skagamenn vilja aukaspyrnu og allt fer á hliðina niður við hliðarlínu. Dean Martin, aðstoðarþjálfari Skagamanna, og Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, fara enni í enni og Lárus Orri neyddist til þess að koma á milli þeirra og sætta mannskapinn. Atvik sem breytti algjörlega gangi leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

FH sækja dýrmæt stig og lyfta sér alla leið upp í 7. sæti en Skagamenn eru áfram neðstir og staða þeirra er hreint ekki góð.

Vondur dagur

Erik Sandberg fannst mér eiga í erfiðleikum í dag. Fær á sig vítaspyrnu og á sök á öðru markinu að einhverju leyti þegar hann spilar Sigurð Bjart réttstæðan. Maður hefur oft séð Norðmanninn betri en í dag.

Dómarinn - 8

Helgi Mikael gerði vel í dag en það var alls ekki auðvelt að dæma þennan leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.