Höjlund færist nær Milan - Ramsey á leið til Newcastle - Man City í viðræðum um Donnarumma
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 3
1
ÍR
Lengjudeild karla
Fjölnir
LL 1
2
Njarðvík
Lengjudeild karla
Selfoss
LL 3
0
HK
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 1
0
Fylkir
Lengjudeild karla
Keflavík
LL 4
0
Grindavík
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 2
5
Þór
2. deild karla
KFA
LL 6
1
Höttur/Huginn
Besta-deild kvenna
Valur
LL 4
2
Stjarnan
Þróttur R.
3
1
ÍR
Liam Daði Jeffs '59 1-0
1-1 Gils Gíslason '61
Viktor Andri Hafþórsson '77 2-1
Viktor Andri Hafþórsson '95 3-1
13.08.2025  -  19:15
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Sól og sumarylur!
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
4. Njörður Þórhallsson
7. Hrafn Tómasson ('93)
8. Baldur Hannes Stefánsson (f) ('70)
21. Brynjar Gautur Harðarson
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
32. Aron Snær Ingason
33. Unnar Steinn Ingvarsson
80. Liam Daði Jeffs ('64)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
3. Stefán Þórður Stefánsson
6. Emil Skúli Einarsson
9. Viktor Andri Hafþórsson ('64)
19. Benóný Haraldsson
27. Sigfús Árni Guðmundsson ('93)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('70)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Hans Sævar Sævarsson
Amir Mehica
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira
Örn Þór Karlsson

Gul spjöld:
Hrafn Tómasson ('40)
Aron Snær Ingason ('50)
Kári Kristjánsson ('92)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þróttarar með risa sigur hér í Laugardalnum. Þeir eru þá aðeins einu stigi á eftir ÍR. Mennirnir úr Breiðholtinu fjarlægast hins vegar toppinn.

Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld.
97. mín Gult spjald: Marc Mcausland (ÍR)
Stöðvar Vilhjálm sem er að taka hlaupið í skyndisókn.
95. mín MARK!
Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
ÞEIR KLÁRA ÞETTA! Frábært spil úti á hægri kantinum, þeir koma boltanum á Vilhjálm inn á teig sem er í frábærri stöðu. Hann er óeigingjarn og leggur hann á Viktor sem þarf ekki annað en að pota boltanum yfir línuna.
93. mín
Inn:Sigfús Árni Guðmundsson (Þróttur R.) Út:Hrafn Tómasson (Þróttur R.)
93. mín
Spyrnan kemur inn í teig en Unnar skallar frá.
92. mín Gult spjald: Kári Kristjánsson (Þróttur R.)
ÍR fær aukaspyrnu um miðjan vallarhelming Þróttara við hægri hliðarlínu.
91. mín
Emil Nói með fyrirgjöfina frá hægri beint á kollinn á Gabríel Aron en skallinn framhjá. Nú fer tíminn að vera naumur fyrir ÍR.
87. mín
Léttur skallatennis inn í teig Þróttara og boltinn berst út til vinstri beint á Víði. Hann tekur skotið á nær en Þórhallur ver.
86. mín
Ótrúlega vel gert Vilhjálmi úti vinstra megin. Hann er með tvö menn í sér og nær á einhvern ótrúlegan hátt að halda boltanum. Hann fer inn í teig en er þá farinn að missa jafnvægið þannig að sendingin hans ætluð Viktor kemst ekki alla leið og Vilhelm tekur boltann.
81. mín
Inn:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR) Út:Gils Gíslason (ÍR)
79. mín
ÍR-ingar með horn sem kemur á fjær. McAusland nær skotinu í varnarmann og svo dæmir Gunnar brot á gestina.
77. mín MARK!
Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
FRÁBÆR SKYNDISÓKN! ÍR í sókn en Þróttarar vinna boltann. Þeir koma boltanum hratt upp á hægri kantinn á Vilhjálm sem keyrir upp kantinn. Hann kemur svo með gullfallega fyrirgjöf sem hittir beint í hlaupaleið Viktors og hann klárar þetta mjög vel!
73. mín
Þróttarar í góðri sókn og fyrirgjöfin kemur frá fjær. Brynjar Gautur í frábæri færi en hittir ekki boltann og hann fer framhjá.
70. mín
Inn:Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR) Út:Alexander Kostic (ÍR)
70. mín
Inn:Gabríel Aron Sævarsson (ÍR) Út:Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
70. mín
Inn:Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.) Út:Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur R.)
Það er sóknarmaður inn á fyrir varnarmann.
68. mín Gult spjald: Óliver Elís Hlynsson (ÍR)
Það er tuð í gangi á meðan það er verið að hlúa að Baldri. Held þeir séu að biðja um víti, en miðað við endursýningar þá sé ég ekki hvað þeir meina með því.
66. mín
ÍR með horn og úr verður þessi klassíski darraðardans. Skotin fljúga en öll í varnarmenn og eftir þetta liggur Baldur Hannes og þarf aðhlynningu. Hann er nýkominn til baka eftir meiðsli, væri vont fyrir heimamenn að missa hann.
64. mín
Inn:Óðinn Bjarkason (ÍR) Út:Guðjón Máni Magnússon (ÍR)
64. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.) Út:Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
63. mín Gult spjald: Guðjón Máni Magnússon (ÍR)
61. mín MARK!
Gils Gíslason (ÍR)
Stoðsending: Alexander Kostic
ÞEIR JAFNA ÞETTA STRAX!! Óliver með fast skot fyrir utan teig sem Þórhallur ver en nær ekki að úta þessu nógu langt frá sér. Alexander Kostic lúrir þarna hjá honum og hælar boltann til baka á Gils sem getur svo ekki annað en skorað.
59. mín MARK!
Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
ÞRÓTTARAR LEIÐA ÍR með langt innkast og Alli Kostic með skotið hátt yfir. Þórhallur er fljótur að koma sparka lengst fram og Liam er bara sloppinn í gegn. Hann keyrir í átt að marki, einn gegn Vilhelm og klárar vel.

Spurningamerki yfir varnarmönnum ÍR þarna, voru ekki tilbúnir í þennan langa bolta.
55. mín
Breki með fyrirgjöfina og auðvitað nær Bergvin skallanum en hann setur þennan yfir.
54. mín
Gundur með skotið fyrir utan teig, ekki gott skot yfir markið.
53. mín
Frábær varsla!! Unnar með geggjaðan bolta inn á teig sem Liam Daði tekur niður. Hann snýr bakinu í markið þannig hann leggur bara boltann fyrir Kára sem á fínt skot en Vilhelm ver virkilega vel frá honum!
50. mín Gult spjald: Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
Aron búinn að vera brotlegur tvisvar á stuttu millibili og vælir undan báðum dómum full mikið. Gunnar fær nóg og hendir á hann gula og segir honum að hætta þessu.
46. mín
ÓTRÚLEGT AÐ ÞRÓTTUR SKULI EKKI SKORA! Fyrirgjöf frá hægri inn á teig og Hlynur í dauðafæri á fjær. Hann skýtur að marki en hittir hann ekki nógu vel. Það er í góðu því þetta reynist bara frábær sending á Liam Daða sem er bara einhverjum þremur metrum frá marki, en hann skóflar boltanum yfir markið!
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn! Gunnar Oddur í smá veseni með að laga netið í einu markinu, en það tekst á endanum.
46. mín
Inn:Gundur Ellingsgaard Petersen (ÍR) Út:Ágúst Unnar Kristinsson (ÍR)
Mátti búast við þessari skiptingu. Greinilegt að Ágúst var ekki heill og ÍR-ingar voru bara að bíða til hálfleiks með hann.
45. mín
Hálfleikur
Bráðskemmtilegum hálfleik lokið. Þróttarar hafa átt betri færi en hafa ekki náð að nýta sér þau. ÍR átti svo sitt besta færi hér í uppbótartíma þar sem Bergvin hefði átt að gera betur í skallafæri.

Það koma pottþétt mörk í seinni miðað við færasköpunina í þessum leik.
45. mín
+2 Þá fara ÍR-ingarnir upp hinumegin og Breki kemur með virkilega góðan bolta inn í teig. Bergvin er þar mættur á fjær og er í afbragðs skallafæri en hann setur boltann framhjá!
45. mín
+1 DAUÐAFÆRI!!

Frábær bolti inn fyrir á Liam Daða sem er slopinn í gegn einn gegn markmanni. Hann á góða fyrstu snertingu og flestir á vellinum bjuggust við því að hann myndi skora með sinni seinni snertingu. Hann hinsvegar hittir bara ekki boltann og ÍR-ingar sópa þetta upp.
45. mín
Venjulegum leiktíma lokið í fyrri. Það verður einhver uppbótartími, en ekkert spjald í Laugardalnum til að segja manni hversu langur hann verður.
43. mín
Gils með endalaust pláss á hægri kantinum og kemur með góða fyrirgjöf á fjær. Guðjón reynir þá fyrirgjöfina í fyrsta en Þróttarar verjast vel og hreinsa frá.
42. mín
ÍR-ingar með langt innkast inn á teig og Þróttarar í bölvuðu basli með að hreinsa þennan bolta frá. ÍR-ingar ná ekki alveg að núta sér það og boltinn fer bara í gegnum allan teiginn.
40. mín Gult spjald: Hrafn Tómasson (Þróttur R.)
Hrafn og Renato eitthvað að kítast, sé ekki nákvæmlega hvað gerist en Renato fer í jörðina og Hrafn fær gula.
39. mín
Ágúst haltrar aftur inn á völl, hann virkar ekki alveg heill.
37. mín
Ágúst brýtur af sér og fer svo niður og þarf aðhlynningu. Það er hins vegar ekki brotið sem hann meiddist af. Hann lenti í smá samstuði áðan og er búinn að vera að kveinka sér síðan.
36. mín
Illa farið með þessa skyndisókn Þróttarar í hættulegri skyndisókn. Kári með frábæran bolta á hægri kantinn á Unnar. ÍR-ingar aldrei þessu vant fámennir aftast, en sendingin frá Unnari hrikalega slæm. Illa farið með góða stöðu þarna.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín Gult spjald: Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
Notar hendurnar full frjálslega þegar hann er að reyna að komast framhjá Njörði. Bannað að ýta í andlit.
28. mín
ÍR-ingar taka hornið en Þórhallur kemur út og grípur þennan bolta.
27. mín
Stórhættulegur bolti! Töfrasending inn fyrir vörn Þróttara og Guðjón Máni er að elta boltann. Hlynur rétt missir af því að komast inn í sendinguna en hann eltir Guðjón vel uppi og nær að komast fyrir fyrirgjöfina hans á ögurstundu.

ÍR fær horn.
25. mín
Kári með skemmtilegan bolta inn fyrir vörnina og þá fer fram alvöru barátta milli Liam Daða og Sigurðar Karls. Þeir taka alveg einverja góða átta metra þar sem þeir hlaupa saman með öxl í öxl. Rétt á síðustu stundu hefur Sigurður betur, sem betur fer fyrir hann því annars hefði Liam verið í dauðafæri!
23. mín
Aftur Þróttur í góðu færi! Þróttarar með horn sem skapar mikinn usla. Boltinn dettur dauður í miðjum teignum beint fyrir framan Njörð sem reynir skotið en beint í varnarmann. Boltinn berst þá til Unnars, sem er í frábæru færi en skotið hans frekar beint á Vilhelm.
18. mín
Þróttarar í alvöru færi Hrafn kominn í fína stöðu fyrir utan teig og tekur viktilega gott skot! Vilhelm ver hins vegar vel frá honum í horn.

Þróttarar taka hornið og boltinn berst til Unnars á fjær sem á þrumuskot en í samherja sinn Aron Snæ. Sóknin heldur áfram og Þróttur fær annað skot hinumegin í teignum en það fer í utanvert hliðarnetið.

Sumir Þróttarar á vellinum héldu að þessi væri inni og byrjuðu að fagna.
17. mín
Þróttarar vilja víti! Liam Daði og Sigurður Karl í ástkærum faðmlögum inn í teig. Þeir bara vilja alls ekki sleppa hvor öðrum og það endar með að þeir detta báðir í grasið. Þá vilja Þróttarar víti, maður hefur alveg séð dæmt á þetta.
11. mín
Taka þetta stutt, koma boltanum út á Renato Punyed sem lyftir boltanum inn í teig en Þórhallur ákafur og grípur boltann. Hann fer í Óliver Elís á leiðinni sem þarf svo aðhlynningu eftir að þeir skella saman.
11. mín
ÍR fær fyrsta horn leiksins.
10. mín
Það eru þreyfingar Þróttarar halda ágætlega í boltann en ÍR-ingar eru þéttir til baka og fljótir fram þegar þeir vinna boltann. Það má örugglega búast við að þetta verður gangur leiksins, að minnsta kosti fram að fyrsta marki.
5. mín
Uppstilling liðanna Þróttur 5-2-3
Þórhallur
Unnar - Hlynur - Njörður - Baldur - Eiríkur
Brynjar - Hrafn
Aron - Liam - Kári

ÍR 4-3-3
Vilhelm
Ágúst - Marc - Sigurður - Breki
Renato - Óliver - Alexander
Gils - Bergvin - Guðjón
2. mín
ÍR fær fyrsta færið Flott hjá Breka Hólm sem keyrir inn í teig og gefur hann á Guðjón Mána. Hann á skot í varnarmann, og boltinn dettur svo fyrir Gils sem á skot úr fínu færi en framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Gunnar flautar og leikurinn er kominn af stað!
Fyrir leik
Leikmenn labba inn á völl og þetta fer að skella á.
Fyrir leik
Afmæli hjá fyrirliðanum Við óskum Marc McAusland fyrirliða ÍR til hamingju með afmælið í dag. Þá er bara spurning hvort hann geti haldið upp á það í kvöld eða ekki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Byrjunarliðin Þróttur
Þróttarar gera tvær breytingar á sínu liði frá síðustu umferð. Baldur Hannes Stefánsson og Liam Daði Jeffs koma aftur inn í liðið en Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson sest á bekkinn, á meðan Viktor Steinarsson er ekki í hóp vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


ÍR
ÍR-ingar gera þrjár breytingar á sínu liði frá síðustu umferð. Sigurður Karl Gunnarsson, Alexander Kostic og Renato Punyed koma allir inn í liðið. Emil Nói Sigurhjartarson og Óliver Andri Einarsson setjast á bekkinn en Kristján Atli Marteinsson er ekki í hóp. Hann fór af velli í hálfleik í síðasta leik og því má álikta að hann sé meiddur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spáin Í kvöld hefst 17. umferðin og tók Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, að sér það verkefni að spá í leikina. Magnús er mikill fótboltaaðdáandi, stuðningsmaður ÍR og Liverpool.

Þróttur R. 1 - 2 ÍR
Hér er auðvitað á ferðinni sá leikur sem ég hef mestan áhuga á, enda verð ég í stúkunni með ÍR-húfuna og trefilinn. Á síðustu öld var þetta erkifjendaslagurinn sem við ÍR-ingar horfðum á. Þessi lið voru samstíga um langt skeið í deildunum og margir epískir bardagar sem þá áttu sér stað. Bæði lið eru í fínum málum þetta sumarið og munu gera tilkall til sætis á meðal þeirra bestu á næsta ári sem væri frábær árangur eftir dýfur beggja klúbba síðustu ár. Þróttur er á þeim skrýtna stað að hafa fengið fleiri stig á útivelli en heimavelli á meðan að ÍR hafa safnað stigum nokkuð jafnt og þétt heima og úti. Heilinn segir að hér verði ákveðin bræðrabylta og jafntefli en við munum sjá Bergvin setja eitt iðnaðarmark í lok leiksins eftir stoðsendingu frá Gils og sjá til þess að Öskubuskuævintýrið í 109 verði áfram á fullri ferð!
Fyrir leik
Leikurinn er í beinni á Livey


Fyrir leik
Dómarinn Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna í kvöld en honum til aðstoðar verða Bergur Daði Ágústsson og Kristofer Bergmann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mikilvægur toppslagur Það eru aðeins fjögur stig milli þessara liða. Þróttur er í fimmta sæti með 29 stig og ÍR í öðru sæti með 33 stig. ÍR er einnig aðeins einu stigi á eftir toppsætinu, því gæti þessi leikur haft mikil áhrif á titilbaráttuna.
Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar! Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þróttar og ÍR í 16. umferð Lengjudeild karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
3. Breki Hólm Baldursson
4. Sigurður Karl Gunnarsson
8. Alexander Kostic ('70)
9. Bergvin Fannar Helgason ('70)
11. Guðjón Máni Magnússon ('64)
13. Marc Mcausland (f)
15. Óliver Elís Hlynsson
18. Gils Gíslason ('81)
23. Ágúst Unnar Kristinsson ('46)
30. Renato Punyed Dubon
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
7. Óðinn Bjarkason ('64)
14. Víðir Freyr Ívarsson ('81)
16. Emil Nói Sigurhjartarson ('70)
17. Óliver Andri Einarsson
19. Gabríel Aron Sævarsson ('70)
25. Gundur Ellingsgaard Petersen ('46)
29. Reynir Haraldsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Ívan Óli Santos
Ómar Atli Sigurðsson
Hrafn Hallgrímsson
Andri Magnús Eysteinsson
Davíð Örvar Ólafsson
Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson

Gul spjöld:
Bergvin Fannar Helgason ('31)
Guðjón Máni Magnússon ('63)
Óliver Elís Hlynsson ('68)
Marc Mcausland ('97)

Rauð spjöld: