SKÝRSLAN: Öruggur heimasigur Þórs/KA
Hvað réði úrslitum?
Góð byrjun heimastúlkna í báðum hálfleikjum slökkti á gestunum og dró úr þeim tennurnar þar til langt var liðið á hálfleikana, sérstaklega þann fyrri.
Bestu leikmenn
1. Sandra María Jessen
Sandra átti sinn besta leik fyrir Þór/KA í langan tíma, fór upp og niður kantinn eins og enginn væri morgundagurinn, setti eitt mark og hefði getað bætt öðru við.
2. Hulda Ósk Jónsdóttir
Hulda var öflug á kantinum og komst oft framhjá varnarmönnum og átti hættulegar fyrirgjafir. Átti stórkostlega fyrirgjöf á Söndru þegar hún skoraði.
Atvikið
Fyrsta markið var rothögg fyrir gestina og riðlaði algjörlega uppleggi þeirra. FHL náði sér engan veginn á strik eftir það fram að næsta marki sem kveikti aftur á þeim.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að FHL situr sem fyrr í botnsætinu með einn sigur en Þór/KA kom sér aðeins betur fyrir í framsætinu í baráttunni um sæti í efri hlutanum.
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir hina 16 ára Hrafnhildi að lenda á móti landsliðskonunni í ham. Hrafnhildur reyndi sitt besta en átti því miður fyrir hana ekki roð í Söndru. Hef samt trú á að þetta fari í reynslubankann hjá henni. Bara óheppin að Sandra var í þessum ham.
Dómarinn - 8
Sveinn lét leikinn fljóta nokkuð vel og sleppti litlum brotum sem hefðu stoppað flæðið í leiknum.



