SKÝRSLAN: Bakdyramegin inn í toppbaráttuna
Hvað réði úrslitum?
KR-ingar réðu ríkjum á Meistaravöllum í dag, sköpuðu sér urmul af færum en vantaði upp á gæðin fyrir framan markið. Gestirnir nýttu yfirburði í föstum leikatriðum vel og skoruðu bæði mörk sín upp frá hornspyrnum. Stjörnumenn geta verið ánægðir með stigin þrjú í dag, því þetta var langt frá því að vera sannfærandi frammistaða.
Bestu leikmenn
1. Árni Snær Ólafsson
Árni kom sínum mönnum til bjargar í kvöld. KR-ingar skutu hann í gang.
2. Aron Sigurðarson
Aron er potturinn og pannan í þessu KR-liði og það var engin breyting þar á í kvöld, skoraði og skapaði mikið.
Atvikið
Sigurmark Örvars undir lok leiks stimplaði Stjörnumenn inn í toppbaráttuna.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan er komið í toppbaráttuna, liðið er komið yfir Breiðablik og eru í 3. sæti, þremur stigum frá toppliði Vals sem á leik til góða.
KR er í 10. sæti og getur farið í fallsæti ef Afturelding vinnur sinn leik á morgun.
Vondur dagur
Halldór Snær Georgsson markvörður KR-inga leit ekkert vel út í fyrra marki Stjörnunnar. Það sást voða lítið til fremstu manna Stjörnunnar, þá Benedikt Warén og Andra Rúnar. Sást ekki mikið til Örvars en hann skoraði þó bæði mörk Stjörnunnar og getur verið ánægður með dagsverkið.
Dómarinn - 7
Jóhann Ingi og félagar bara fínir í dag, engar stórar ákvarðanir sem klikkuðu. Nokkrir furðulegir dómar hér og þar, en ég er nokkuð ánægður með kvartettinn.




