Fotbolti.net
Besta deildin
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
ÍA
ÍA
Besta-deild karla
ELKEM völlurinn
3 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Ómar Björn Stefánsson 12'1 - 0Gísli Laxdal Unnarsson 37'2 - 0Steinar Þorsteinsson 99'3 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Skaginn vann leik sem þurfti að vinnast og Blikar tapa leik sem mátti ekki tapast

Hvað réði úrslitum?

Skagamenn mæta öflugri út í leikinn og virtust líklegri frá fyrstu mínútu. Skora tvö góð mörk í fyrri hálfleik þar sem Blikar fengu vissulega sín færi en Árni Marinó varði oft á tíðum mjög vel. Í seinni hálfleik bara loka Skagamenn leiknum meistaralega áður en þeir skora þriðja markið úr skyndisókn.

Bestu leikmenn

1. Rúnar Már Sigurjónsson

Spilaði hafsent í dag sem er staða sem hann er ekki vanur að spila en það var ekki að sjá neitt óöryggi. Hann var eins og kóngur í vörninni og bjargaði svo meistaralega í seinni hálfleik þegar Kristófer Ingi var sloppinn einn i gegn.

2. Árni Marinó Einarsson

Hélt marki sínu hreinu og varði oft á tíðum vel. Átti eina af sínum betri vörslum í sumar þegar hann varði glæsilega frá Óla Val. Þess utan var hann öruggur í fyrirgjöfum.

Atvikið

Gísli Laxdal tvöfaldaði forystuna undir lok seinni hálfleiks. Það vita allir að 2-0 er svo miklu meira en 1-0. Skagamenn gátu því farið nokkuð þægilegir inn í hálfleikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar eru nú í fjórða sæti 7. stigum frá toppnum. Skagamenn eru að stimpla sig aftur inn í deildina, 5 stigum frá öruggu sæti.

Vondur dagur

Blikar eru með þessu tapi að öllum líkindum að stimpla sig út úr toppbaráttunni. Það hljóta að teljast vonbrigði.

Dómarinn - 8

Ekkert út á Sigurð Hjört að setja í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.