Leik lokið!
HK fer í úrslit á Laugardalsvelli
HK fær séns á að fara beint aftur upp í Bestu deildina, og munu mæta Keflavík næstu helgi.
95. mín
Boltinn inn í teig og Ólafur missir boltann úr höndum sér. Hann dettur fyrir Kára sem reynir að lyfta boltanum í netið en HK voru með menn fyrir aftan að dekka þetta.
92. mín
Karl Ágúst sloppinn í gegn, einn gegn markmanni. Skotið ekki alveg nógu gott og Þórhallur ver.
91. mín
Gult spjald
Baldur Hannes Stefánsson
90. mín
Villi Kaldal reynir skot af löngu færi en beint á Ólaf.
88. mín
Gult spjald
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Tuðar frekar hressilega í Jóhanni.87. mín
Þróttur með aukaspyrnu og Kári reunrir skotið, mjög fast en beint á Ólaf sem grípur þetta.
81. mín
HK næstum alveg búnir að ganga frá þessu. Jóhann með stórhættulega sendingu inn fyrir og það munaði engu að Karl Ágúst náði til boltans á undan Þórhalli.
80. mín
Slök spyrna sem fer ekki yfir fyrsta mann.
80. mín
Þróttarar fá horn.
79. mín
InnÞorvaldur Smári Jónsson
ÚtMagnús Arnar Pétursson
79. mín
InnArnþór Ari Atlason
ÚtTumi Þorvarsson
79. mín
InnViktor Andri Hafþórsson
ÚtLiam Daði Jeffs
78. mín
Gult spjald
Brynjar Snær Pálsson
77. mín
Gult spjald
Liam Daði Jeffs
Of seinn í tæklingu.76. mín
Aukaspyrna hjá HK af frekar löngu færi. Ívar reynir skotið, en það fer framhjá.
74. mín
HK aftur tveimur mörkum yfir.
Þeir svara strax!
Tumi Þorvarsson (stoðsending: Ívar Örn Jónsson )
HK með hornspyrnu og Ívar ætlar að reyna það sama og áðan en boltinn svífur rétt yfir hausinn á Hauk. Boltinn kemur þá á fjær þar sem Tumi lúrir og skorar af svona tveggja metra færi.HK aftur tveimur mörkum yfir.
71. mín
Þetta var það fyrsta sem Vilhjálmur gerði í leiknum.
Það er tími fyrir dramatík!
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (stoðsending: Eiríkur Þorsteinsson Blöndal)
Eiríkur með frábæra sendingu inn fyrir á Villa sem virtist vera búinn að klúðra færinu þegar hann gerir það þrengra og fer að endalínu. En hann skýtur svo utanfótar og það fer framhjá Ólafi!Þetta var það fyrsta sem Vilhjálmur gerði í leiknum.
70. mín
InnVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
ÚtViktor Steinarsson
64. mín
HK aftur komið með tveggja marka forystu!
Haukur Leifur Eiríksson (stoðsending: Ívar Örn Jónsson )
Ívar með hornspyrnuna á miðjan teiginn og Haukur axlar boltann í netið!64. mín
Ívar með skot af löngu færi, fer í varnarmann og HK fær horn.
59. mín
InnJóhann Þór Arnarsson
ÚtDagur Orri Garðarsson
53. mín
Gult spjald
Eiður Atli Rúnarsson
Ljót tækling, Þróttarar voru að biðja um annan lit.53. mín
Gult spjald
Hrafn Tómasson
Fyrir tuð.53. mín
Gult spjald
Tumi Þorvarsson
51. mín
Gult spjald
Dagur Orri Garðarsson
47. mín
Hér má sjá vítadóminn
Lítur ekki út fyrir að vera nokkur snerting hérna. Þó að sjónarhornið er ekki frábært.
Eg skil þetta eftir hér. pic.twitter.com/vjAApirqsT
— Jakob Gunnar (@JakobGunnarr) September 21, 2025
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn!
46. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtKári Gautason
45. mín
Stuðullinn á að Þróttur klári einvígið á heimavell úr því sem komið er og komist í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni er 3.30 nú í hálfleik á Epic.
45. mín
Þróttarar þurfa eitt mark í seinni hálfleik til að jafna þetta einvígi. HK enn í bílstjórasætinu.
45. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti tvær mínútur.
45. mín
Kári með skotið fyrir utan teig, en beint á Ólaf.
41. mín
Þróttarar eru á lífi í þessu einvígi!
Aron Snær Ingason
Baldur með langan bolta fram sem á að fara á Liam. Hann leyfir hins vegar boltanum að fara og Aron Snær kemur í hlaupið bakvið hann og klárar snyrtilega framhjá Ólafi!40. mín
InnUnnar Steinn Ingvarsson
ÚtHlynur Þórhallsson
Hlynur reyndi að þrauka fram að hálfleik en það tókst ekki.
37. mín
Hrafn með fast skot utan af teig og Ólafur í smá veseni með þetta. Ver boltann út í teig en HK-ingar ná að hreinsa.
35. mín
Leikurinn búinn að róast töluvert, en HK ennþá töluvert meira með boltann og mikið á vallarhelmingi Þróttar.
28. mín
Tumi með mjög hættulegan bolta fyrir markið, og Dagur er hársbreidd frá því að ná til boltans svona meter frá markinu.
25. mín
Gult spjald
Aron Kristófer Lárusson
Stöðvar Liam sem er að sleppa í gott færi.23. mín
Rétt yfir!
HK í góðri sókn og þeir koma boltanum á Brynjar Snæ sem tekur skotið en boltinn rétt yfir.
21. mín
STÖNGIN!
Þróttarar með horn og Kári lyftir boltanum á fjær. Aron Snær nær skallanum en hann fer aftur á Kára, sem kemur með annan bolta fyrir. Kolbeinn fær þá boltann í algjöru dauðafæri, en skotið í stöngina, Aron Snær nær frákastinu en skotið hans í varnarmann.
19. mín
Hlynur er staðinn á lappir og heldur áfram leik.
18. mín
Hlynur Þórhallsson situr í grasinu eitthvað þjáður og fær aðhlynningu.
13. mín



Hafliði Breiðfjörð náði myndum af markinu og fagnaðarlætunum




12. mín
Þróttur fær aukaspyrnu á góðum stað, eiginlega fyrsta skiptið sem þeir fara yfir miðju.
7. mín
Rétt framhjá!
Góð sending inn fyrir frá Tuma inn á Dag Inga sem er kominn í fínt færi en hjann setur boltann rétt framhjá.
HK byrjar leikinn af miklum krafti!
HK byrjar leikinn af miklum krafti!
5. mín
Vítadómurinn
Eiríkur fer í Dag þegar hann er að fara taka skot úr dauðafæri, þetta er held ég bara réttur dómur hjá Jóhanni. Þróttarar líka að kvarta undan að þetta hafi verið rangstæða en sýnist það líka bara vera rétt hjá Jóhanni.
4. mín
HK er þá með tveggja marka forystu.
Öruggt!
Dagur Orri Garðarsson
Dagur setur boltann niður í vinstra hornið og Laddi fer í hina áttina.HK er þá með tveggja marka forystu.
3. mín
HK FÆR VÍTI!
1. mín
Jóhann Ingi flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Leikmenn labba inn á völl, þetta er að fara skella á.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar gerir tvær breytingar frá síðasta leik. Kári Kristjánsson og Liam Daði Jeffs koma inn í liðið, en Viktor Andri Hafþórsson og Unnar Steinn Ingvarsson fá sér sæti á bekknum.
Hermann Hreiðarsson þjálfari HK gerir þrjár breytingar á sínu liði. Þorsteinn Aron Antonsson og Bart Kooistra eru utan hóps, líklega vegna meiðsla, og Þorvaldur Smári Jónsson sest á bekkinn. Inn fyrir þá koma Dagur Orri Garðarsson, Brynjar Snær Pálsson og Kári Gautason.
Hermann Hreiðarsson þjálfari HK gerir þrjár breytingar á sínu liði. Þorsteinn Aron Antonsson og Bart Kooistra eru utan hóps, líklega vegna meiðsla, og Þorvaldur Smári Jónsson sest á bekkinn. Inn fyrir þá koma Dagur Orri Garðarsson, Brynjar Snær Pálsson og Kári Gautason.
Fyrir leik
Þróttarar hafa ekki enn unnið HK
Þessi leikur verður í fjórða skiptið sem þessi lið mætast á tímabilinu. Liðin skildu jöfn 2-2 í fyrst leiknum, en HK hefur síðan unnið síðustu tvo. Fyrst var það 5-2 sigur í næst síðasta leik deildarkeppninnar og síðan var það fyrri leikurinn í þessari viðureign sem fór 4-3.

Fyrir leik
Leikurinn er í beinni á Livey!
Fyrir leik
HK með forystuna
Fyrri leikurinn í þessari viðureign fór 4-3 fyrir HK í Kórnum. Fyrri hálfleikurinn var alls ekki merkilegur og endaði 0-0, en seinni hálfleikurinn reyndist vera ein besta skemmtun sumarsins. HK komst í 2-0, en Þróttarar komu til baka og skoruðu þrjú mörk á 10 mínútum. Þróttarar þá yfir, en þá var það komið að HK að taka endurkomu, og þeir skoruðu tvö og unnu leikinn 4-3. 

Fyrir leik
Leiðin á Laugardalsvöll
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þróttar gegn HK í seinni leik þeirra í undanúrslitum umspilsins í Lengjudeildinni.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður spilaður á AVIS vellinum.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður spilaður á AVIS vellinum.






