Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla - Umspil
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
2 - 3
HK
HK
0 - 14' Dagur Orri Garðarsson (víti)Aron Snær Ingason 41'1 - 11 - 264' Haukur Leifur EiríkssonVilhjálmur Kaldal Sigurðsson 71'2 - 22 - 374' Tumi Þorvarsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: HK fer á Laugardalsvöll eftir markaveislu

Hvað réði úrslitum?

HK-ingar byrjuðu leikinn af gríðarlegum krafti og voru verðskuldað yfir þótt vítið hafi ekki verið verðskuldað. Þróttarar eiga svo góðan kafla síðustu 10 í fyrri hálfleik og jafna leikinn. Í seinni hálfleik er þetta svo frekar jafnt en HK nær að klára leikinn eftir góðar hornspyrnur frá Ívari.

Bestu leikmenn

1. Ívar Örn Jónsson (HK)

Tvær stoðsendingar úr hornspyrnunum hans. Sterkur varnarlega og leiddi ungt lið gríðarlega vel.

2. Tumi Þorvarsson (HK)

Eitt mark og var sá sem skapaði mest fyrir HK í leiknum. Var líka gríðarlega duglegur í pressu og varnarvinnu.

Atvikið

Vítið á 3. mínútu. Ég hef núna horft á endursýningar af þessu gríðarlega oft, og er orðinn sannfærður um að það er nákvæmlega engin snerting. Dagur Orri hittir bara ekki boltann og sparkar í grasið. Við það dettur hann, og fær víti.

Hvað þýða úrslitin?

HK fer í úrslitleik um að komast upp í Bestu deildina gegn Kelfavík á Laugardalsvelli næstu helgi.

Vondur dagur

Mér fannst Þróttara liðið sem heild varla trúa því að þeir væru að fara vinna þetta einvígi. Þar af leiðandi voru þeir undir í allri baráttu á löngum köflum í leiknum.

Dómarinn - 5

Vítið kolrangur dómur og er gríðarlega stórt atvik. Annars fannst mér þetta ágætlega dæmdur leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.