Leik lokið!
TIL HAMINGJU VÍKINGUR ÓLAFSVÍK!
Ólsarar sigra þennan úrslitaleik og taka þann stóra í kveðju leik Brynjars!
Til hamingju allir Ólsarar nær og fjær!
95. mín
InnHaukur Smári Ragnarsson
ÚtIngvar Freyr Þorsteinsson
95. mín
InnReynir Már Jónsson
ÚtGabriel Þór Þórðarson
94. mín
InnSigurður Snær Ingason
ÚtSvetislav Milosevic
94. mín
InnDaníel Smári Sveinsson
ÚtSverrir Hrafn Friðriksson
94. mín
InnIvan Tsvetomirov Tsonev
ÚtKolbeinn Tumi Sveinsson
92. mín
Viktor Smári kemur með bolta inn á teiginn sem Svetislav rennir sér í en hann hittir ekki boltann almennilega og hann fer framhjá.
91. mín
Áhorfendamet!
1160 áhorfendur mættir að sjá þennan stórleik sem er áhorfendamet í Fótbolta.net bikarnum.
Geggjuð stemning í þessu í dag!
90. mín
+4 mínútur í uppbótartíma
87. mín
Aftur vilja Stólarnir víti!
Sá ekki almennilega hvað gerðist en menn eru að biðja um peysutog. Stólarnir ekki sáttir!
86. mín
Manuel tekur spyrnuna inn á teiginn sem Jón Kristinn gerir fáranlega vel í að kýla frá í miklum pakka á markteignum.
85. mín
Stólarnir fá horn!
83. mín
Gult spjald
Asmer Begic
Brot á miðjum velli. Líklega rétt hjá Gunnari.80. mín
Fær Brynar sigur og bikar í kveðjuleiknum?

79. mín
Stólarnir eru að banka og banka, í leita að marki til þess að búa til leik úr þessu.
78. mín
InnJóhann Daði Gíslason
ÚtArnar Ólafsson
76. mín
Áttu Stólarnir að fá víti áðan?






73. mín
Hvar er Auddi Blö?
"Hvar er Auddi Blö?" syngja Ólsarar núna.

69. mín
Þessar aukaspyrnur hjá Luis!
Ivan Lopez Cristobal (stoðsending: Luis Alberto Diez Ocerin)
Luis Alberto tekur aukaspyrnu á nákvæmlega sama stað og hann skoraði úr áðan inn á teiginn. Boltinn fer beint á pönnuna á Ivan Lopez sem stýrir boltanum í netið. Þessar aukaspyrnur frá miðjum vellinum rúmlega eru eins og víti fyrir Luis Alberto!67. mín
InnViktor Smári Sveinsson
ÚtDavíð Leó Lund
66. mín
InnEllert Gauti Heiðarsson
ÚtHektor Bergmann Garðarsson
66. mín
InnBjörn Darri Ásmundsson
ÚtIngólfur Sigurðsson
65. mín
Stólar vilja víti!
David Bercedo fer niður í teignum og Stólarnir vilja vítaspyrnu en fá hana ekki.
Þeir eru vægast sagt alls ekki sáttir og hópast í kringum aðstoðardómarann og dómarann.


63. mín
Gult spjald
Gabriel Þór Þórðarson
61. mín
Færi á báðum endum vallarins!
Spyrnan kemur inn á teiginn og það myndast smá klafs inni á teignum áður en Ivan Lopez sleppur í gegn en Nikola ver frá honum.
Eftir það keyra Stólarnir upp 2 á 1 sem endar með skoti David Bercedo á Jón Kristinn sem Jón ver.
59. mín
Ólsarar fá hornspyrnu
55. mín
Maraþon tæklingar!
Manuel Ferriol Martínez
Þetta var svakalegt. Liðin skiptast á að henda sér í tæklingar í 10 sekúndur. Manuel átti tæklingu númer 5 og þá fær Gunnar nóg og flautar, gult spjald líka. Svona á þetta vera!52. mín
Stólarnir halda áfram að banka
Kolbeinn Tumi fær boltann inn á teignum og reynir skotið sem fer rétt yfir.
Stólarnir að vakna.
51. mín
Hneigðu þig drengur!

48. mín
MARK ÁRSINS?!?!
Luis Alberto Diez Ocerin
Hvaða þvælumark var þetta? Ólsarar með aukaspyrnu mjög aftarlega á sínum vallarhelmingi sem Luis Alberto tekur. Hann ætlar að koma boltanum inn á teiginn en endar á því að klína honum í skeytin fjær og í netið. Þetta var rosalegt. Maður setur spurningamerki á Nikola í markinu en þvílik afgreiðsla samt! Ólsarar leiða!46. mín
Seinni hafinn!
Stólarnir sparka þessu í gang á ný.
46. mín
InnAsmer Begic
ÚtKwame Quee
Brynjar breytir í hálfeik
45. mín
Haukur Gunnarsson er vopnaður myndavél í Laugardalnum



45. mín
Allt hnífjafnt í hálfleik
Nokkuð góðum fyrri hálfleik að baki hér á Laugardalsvelli. Ólsarar betri en Stólarnir hafa fengið færi.
Tökum okkur korterspásu áður en við mætum aftur með síðari hálfleikinn.
45. mín
+1 - Ingó Sig í færi
Hornspyrna sem kemur inn á teiginn hjá Ólsurum og það myndast mikið klafs inni á teignum. Það endar með skoti Ingólfs Sigurðssonar sem Nikola gerir vel í að verja.
45. mín
+1 mínúta í uppbótartíma
45. mín
Svetislav með skot við vítateigslínuna eftir góða takta sem fer beint á Jón.
43. mín
Ingvar Freyr gerir glæsilega og keyrir upp hægri kantinn. Hann rúllar boltanum fyrir vítateiginn á Kwame Quee sem tekur skotið rétt yfir markið. Menn eru að fara illa með góðar stöður hérna trekk í trekk.
40. mín
DAUÐAFÆRI!
Hektor Bergmann er skyndilega sloppinn einn í gegn. Hafsentar Tindastóls stigu upp en ekki bakverðirnir og hann var því ekki fyrir innan.
Hann er kominn einn á móti Nikola sem bara étur hann. Beint á Nikola sem gerði gífurlega vel þarna og koma á móti þessu og taka þetta.
37. mín
Kristófer Áki aftur með hættulegan bolta fyrir markið sem var á leiðinni til Hektors Bergmanns. Hann nær ekki til boltans, varnarmaður Stóla var á undan og hreinsar frá.
35. mín
Ólsarar í færi!
Ingvar Freyr gerir vel og keyrir inn á teiginn. Hann rúllar boltanum fyrir markið á Kwame Quee sem lætur boltann fara í gegnum klofið á sér og á Luke Williams. Hann er aleinn, tekur á móti boltanum og tekur skotið sem er laflaust og Nikola í engum vandræðum.
33. mín
Nokkrar glóðvolgar myndir frá Hauki Gunnars









30. mín
Kwame Quee í færi
Kwame Quee fær góða sendingu í gegnum varnarlínu Stóla og reynir skotið á markið en Nikola ver það. Skotið fór beint á hann og tiltölulega auðvelt að verja þrátt fyrir að hann hafi varið þetta með herkjum.
En Kwamee Quee átti að gera betur þarna að mínu mati.
29. mín
Mér finnst Ólsarar heilt yfir líklegri og betri aðilinn en þetta er samt sem áður afar lokaður leikur. Finn það samt á mér að það styttist í eitthvað mark.
23. mín
FÆRI!
Stólarnir vinna boltann ofarlega á vellinum. Benjamín fær boltann inn á teignum og rúllar boltanum til hliðar á Arnar Ólafsson sem tekur skotið í fyrsta en Jón Kristinn ver skotið vel aftur fyrir í annað horn.
Arnar búin að fá einu færi Stóla í leiknum. Þetta var klárlega mun betra færi en það fyrra. Þarna áttu Stólarnir klárlega að gera betur.
21. mín
Stólarnir hreinsa aftur frá og sækja hratt, svo fá þeir innkast á vallarhelmingi Ólafsvíkur og geta mögulega reynt að koma boltanum inn á teginn núna.
20. mín
Luis Alberto tekur spyrnuna inn á teiginn og Kwame Quee reynir skemmtilega hælspyrnu sem fer í varnarmann og aftur fyrir í annað horn.
20. mín
Hætta á ferð!
Kristófer Áki kemur með stórhættulegan bolta fyrir markið. Það þurfti bara eina snertingu og hann hefði farið inn en Stólarnir ná að hreinsa frá í horn.
14. mín
Leikurinn hefur aðeins róast. Stólarnir eru að vinna sig inn í leikinn eftir góðan kafla Ólsara.
8. mín
Luis Alberto krullar boltann inn á teiginn en Stólarnir gera vel að hreinsa frá. Sóknarpressa Ólsara heldur samt sem áður áfram.
8. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins
Ólsarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
5. mín
Færi!
Ólsarar spila sig vel upp völlinn sem endar í skoti frá Birni Henrý sýnist mér rétt framhjá.
Þetta var gott færi!
5. mín
Það er gír á pöllunum!


3. mín
Fyrsta færið komið
Benjamín kemur með boltann inn á teiginn á Arnar Ólafs sem tekur skotið yfir markið.
Smá stress í mönnum greinilega, eftir á er auðvelt að segja að það hefði mátt gera betur þarna.
1. mín
Það eru Ólsarar, nánar tiltekið Hektor Bergmann, sem sparka þriðja úrslitaleik Fótbolta.net bikarsins í gang.
Góða skemmtun!
0. mín
Heiðursgestir
Kristján Björn og Vanda Sigurgeirsdóttir eru heiðursgestir þessa leiks. Þau ganga hér inn á ásamt formönnum félaganna og formanni KSÍ, Þorvaldi Örlygssyni.
0. mín
Gunnar gegn Gunnari
Gunni Birgis og Gunnar á Völlum takast á í rökræðum þar sem þeir verða að vera sammála eða ósammála nokkrum staðhæfingum.
0. mín
Ólsarar líklegri en Stólarnir heitir
0. mín
Sjóðandi heitur upphitunarpakki!
Elvar Geir er orðinn jafn spenntur og öll þjóðin fyrir þessum íþróttaviðburði að hann henti í einn góðan upphitunarpakka.
0. mín
Þriðja liðið - Tveir Gunnarar
Stórmeistarinn Gunnar Freyr Róbertsson fær það skemmtilega verkefni að dæma þennan úrslitaleik. Honum til halds og trausts verða þeir Þórður Arnar Árnason og Antoníus Bjarki Halldórsson. Fjórði dómari þessa leiks er Goddurinn sjálfur, Gunnar Oddur Hafliðason. Eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Ingi Guðjónsson.

0. mín
Undanúrslitaleikur sem hafði allt
Ólsararnir fjölmenntu á Seltjarnarnesið í seinustu viku og sáu þar hreint út sagt magnaðan leik. Eftir að Grótta tók forystuna snéri Víkingur þessu við og voru komnir í 3-1. Á seinustu mínútu venjulegs leiktíma jafnaði Grótta sem voru mun líflegri í framlengingunni en Ólsararnir unnu vítaspyrnukeppnina og sóttu sér farmiðann á Laugardalsvöllinn.Erfið leið Ólsara í úrslitin
Víkingur Ólafsvík hafa farið erfiða leið í úrslitin. Þeir fóru austur í 8-liða úrslitunum og slógu þar út KFA í vítaspyrnukeppni eftir 2-2 jafntefli í framlengingu. Í umferðinni á undan unnu þeir Reyni Sandgerði en þetta byrjaði allt saman á 6-1 sigri gegn Elliða.
0. mín
Læti á Króknum í síðustu viku
Stólarnir eru komnir á Laugardalsvöll eftir gífurlega mikinn hasar í undanúrslitaleiknum gegn grönnum þeirra í Kormáki/Hvöt. Leikurinn fór 3-1 en gestirnir frá Blönduósi voru alls ekki sáttir undir leiks lok með dómara leiksins. Þökk sé góðri gæslu Tindastóls á leiknum náðu þeir að hópast í kringum dómarann og verja hann frá brjáluðum Húnvetningum.Hafa slegið út tvö 2. deildarlið
Í 8-liða úrslitunum slógu Stólarnir KFG út örugglega með 4-1 sigri og þar á undan í 16-liða úrslitunum unnu þeir Þróttara úr Vogum. En þetta byrjaði all saman með 2-0 sigri gegn Árborg í 32-liða úrslitum.
0. mín
Sú yngsta og sprækasta!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Víkings Ólafsvíkur og Tindastóls í úrslitaleik í þeirri yngstu og sprækustu, Fótbolti.net bikarnum.
Hér mætast tvö landsbyggðalið sem komust í úrslitaleikinn eftir afar tíðindamikla undanúrslitaleiki.











