SKÝRSLAN: Blikar færast fjær Evrópu
Hvað réði úrslitum?
FH voru heilt yfir betri í leiknum fannst mér. Hins vegar gerðu Blikar vel og áttu markið skilið eftir að hafa legið aðeins á FH. Blikar hefðu svo getað stolið þessu undir lokin en allt kom fyrir ekki.
Bestu leikmenn
1. Kjartan Kári Halldórsson
Skoraði hvorki né lagði upp í dag en hefði hins vegar átt það skilið. Alltaf þegar hann fékk boltann varð hætta við mark Blika og á öðrum degi hefði hann endað leikinn með mörk og stoðsendingar, ekki í dag þó.
2. Tómas Orri Róbertsson
Tómas öflugur í dag eins og svo oft áður á tímabilinu, skoraði síðan markið sem var svo nálægt því að nægja Hafnfirðingum til sigurs.
Atvikið
Rosenorn lætur reka sig af velli eftir jöfnunarmark Blika og Sigurður Bjartur Hallsson fór í rammann. Siggi Hall sýndi þar flotta takta og varði einu sinni vel frá Kristni Jónssyni.
Hvað þýða úrslitin?
FH eru enn í 5. sæti, í engri baráttu um neitt. Blikar eru hins vegar sæti ofar og fjarlægast 3. sætið, sem gefur sæti í Sambandsdeildinni að ári.
Vondur dagur
Blikar eru enn á höttunum eftir sínum fyrsta sigri í 2 mánuði. Ekki kom hann í dag og baráttan um Evrópusætið verður bara erfiðari. Það yrði mikið og þung högg, fótboltalega jafnt sem fjárhagslega að missa af Evrópusætinu.
Dómarinn - 7
Ekkert út á Twana að setja að mínu mati.




