Besta-deild karla - Efri hluti
Víkingur R.

LL
2
0
0

Besta-deild karla - Efri hluti
Breiðablik

LL
3
1
1


Víkingur R.
2
0
FH

Valdimar Þór Ingimundarson
'9
1-0
Helgi Guðjónsson
'84
2-0
05.10.2025 - 19:15
Víkingsvöllur
Besta-deild karla - Efri hluti
Aðstæður: Logn og þurrt hér undir ljósunum
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 2240
Víkingsvöllur
Besta-deild karla - Efri hluti
Aðstæður: Logn og þurrt hér undir ljósunum
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 2240
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
8. Viktor Örlygur Andrason
('71)

9. Helgi Guðjónsson


11. Daníel Hafsteinsson

19. Óskar Borgþórsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
('79)

25. Valdimar Þór Ingimundarson
('92)



32. Gylfi Þór Sigurðsson
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
('92)

7. Erlingur Agnarsson
15. Róbert Orri Þorkelsson
20. Tarik Ibrahimagic
('71)

24. Davíð Örn Atlason
27. Matthías Vilhjálmsson
('79)


33. Haraldur Ágúst Brynjarsson
48. Viktor Steinn Sverrisson
- Meðalaldur 25 ár
Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson
Gul spjöld:
Daníel Hafsteinsson ('19)
Gylfi Þór Sigurðsson ('64)
Valdimar Þór Ingimundarson ('65)
Helgi Guðjónsson ('84)
Matthías Vilhjálmsson ('97)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
VÍKINGUR ER ÍSLANDSMEISTARI 2025
Til hamingju Víkingar nær og fjær! Stuðningsmenn hlaupa inn á völl og fagna með leikmönnum og þjálfurum. Flugeldarnir fara á milljón, menn eru glaðir.
Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
94. mín
Arngrímur með góðan bolta inn í teig en Ingvar kemur út og kýlir boltann frá. Böðvar nær frákastinu en skotið hans í varnarmann og aftur fyrir.
93. mín
Klaufaskapur í öftustu línu hjá Víkingum og þeir gefa boltann bara beint á Sigurð inn í teig. Ingvar Jóns hins vegar vel á verði og lokaði alveg á skotið hjá honum.
92. mín

Inn:Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.)
Út:Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
91. mín
Gylfi í banastuði!
Vinnur boltann og kemur sér að teignum með fullt af mönnum í sér, rennur boltanum á Óskar en hann með skotið í varnarmann og aftur fyrir.
90. mín
Smá stympingar milli Ekroth og Baldurs Kára, þeir sleppa við spjald en fá gott tiltat frá Helga.
84. mín
Gult spjald: Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)

Helgi fagnar þessu gífurlega og rífur sig úr treyjunni.
84. mín
MARK!

Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson
Stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson
VÍKINGAR AÐ TRYGGJA ÍSLANDSMEISTARATITILINN!?
Stórkostleg sending inn í teig frá Karl Friðleif og Helgi nær að gera sig lausann inn í teig, rís hæst og stangar boltann í hornið!
81. mín
Matti Vill vinnur boltann af Faqa á vallarhelming FH. Kemur þá boltanum á Valdimar sem keyrir inn á teig, hann er í mjög þröngu færi og reynir skotið en þessi fer í hliðarnetið.
71. mín

Inn:Bragi Karl Bjarkason (FH)
Út:Dagur Örn Fjeldsted (FH)
Það verður einhver uppbótartíminn. Dómaraskiptin, aðhlynningar og þessi skipting. Allt tekið sinn tíma.
68. mín
Dómaraskipti
Elías Ingi haltrar hér af velli og Helgi Mikael er að taka við dómgæslunni á þessum leik.
67. mín
Það er eitthvað sem á sér stað við hornfánan og Kjartan Kári er blóðgaður. FH-ingar í stúkunni verulega ósáttir. Miðað við endursýningar virðist ekkert viljaverk hafa átt sér stað, en Kjartan fær olnbogann á Gylfa í andlitið.
64. mín
Gult spjald: Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)

Fram og til baka!
Daníel Hafsteins vinnur boltann á miðjum vellinum og keyrir af stað. Hann leggur boltann á Niko sem er kominn í góða stöðu en nær ekki skotinu. Þá fara FH-ingar upp hinumegin og Bjarni kemst í ágæta stöðu og tekur skotið en framhjá. FH fær hins vegarr aukaspyrnu þar sem Gylfi var eitthvað að toga í Bjarna.
62. mín
Ísak var það ekki, heldur Tómas Orri, hann er þó staðinn á lappir og mun halda áfram.
54. mín
FH-ingar í skyndisókn og þeir koma upp vinstri kantinn. Kjartan reynir fyrirgjöfina og Bjarni nálægt því að koma tánni í boltann en hann endar bara hjá Ingvari.
45. mín
Hálfleikur
Víkingar eru Íslandsmeistarar ef ekkert breytist í seinni hálfleik. Þeir byrjuðu leikinn miklu betur og komust verðskuldað í 1-0. FH hafa hins vegar komist töluvert inn í leikinn og átt hættuleg færi, mögulega áttu þeir líka að fá víti.
45. mín
FH með langt innkast og ná að halda úti nokkuð langri sókn eftir það. Böðvar endar á að taka skotið fyrir utan teig, en rétt yfir.
44. mín
Rétt framhjá!
FH-ingar með hornspyrnu en það kemur ekkert úr henni, sóknin heldur áfram og Sigurður Bjartur fær boltann við hægra horn teigsins, hann kemur lengra inn á teig áður en hann setur boltann fastan fyrir og Ahmad Faqa nær skotinu á nærstönginni en rétt framhjá.
38. mín
Gylfi tekur spyrnuna en þetta skot frekar beint á Daða sem er ekki í miklum vandræðum.
37. mín
Víkingar vinna boltann rétt fyrir framan vítateig FH og Gylfi tekur skotið en rétt framhjá. Tómas brýtur á Gylfa á meðan hann tekur skotið og Víkingar fá aukaspyrnu á frábærum stað.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
Víkingar í skyndisókn!
Viktor með virkilega flottan bolta fram á Valdimar sem er að keyra inn á teig, hann tekur svo skotið úr heldur þröngri stöðu en framhjá.
29. mín
VAR ÞETTA EKKI VÍTI!?
Sigurður Bjartur kominn í dauðafæri inn í teig og Gunnar Vatnhamar er kominn fyrir aftan hann, hann fer í bakið á honum og Sigurður dettur, en Elías dæmir ekkert.
Mér fannst þetta klárt víti!
Mér fannst þetta klárt víti!
29. mín
Víkingar með horn og þeir lyfta boltanum hátt á fjær. Karl Friðleifur nær skallanum en Daði grípur.
24. mín
Boltinn á fjær og Ísak nær skallanum aftur inn í teig en Víkingar skalla boltann aftur fyrir. Annað horn.
Sama uppskrift og síðast, hár bolti á fjær en núna skallar Ísak aftur fyrir.
Sama uppskrift og síðast, hár bolti á fjær en núna skallar Ísak aftur fyrir.
22. mín
Marka myndasería
Hafliði Breiðfjörð er á vellinum og náði þessum frábæru myndum af fögnuðinum eftir markið.








20. mín
SLÁIN!
Kjartan tekur spyrnuna og hún smellur af slánni! FH-ingar vinna svo aftur boltann og það verður smá hætta en boltinn á endanum af Sigurði Bjart og aftur fyrir.
19. mín
Gult spjald: Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)

Frábær sprettur hjá Sigurði Bjart og FH fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað þar sem Daníel þurfti að stöðva hann.
17. mín
Gult spjald: Bjarni Guðjón Brynjólfsson (FH)

Missir af boltanum og rennir sér alltof seint í Viktor.
16. mín
Þeir leika við hvurn sinn fingur!
Einföld sending frá miðjum vellinum á Valdimar sem fer hægt og rólega nær teignum án þess að nokkur maður fer í hann. Hann tekur þá bara skotið sem er fast, en rétt yfir.
14. mín
Víkingar aftur stórhættulegir!
Þeir koma upp vinstra megin og það kemur hár bolti á fjær þar sem Karl er mættur. Hann gefur boltann aftur fastan fyrir markið og það munar engu að það sé Víkingur sem nær að pota í boltann sem hefði líkast til verið mark, en FH-ingar hreinsa.
11. mín
Sigurður Bjartur næstum sloppinn einn í gegn, en Ingvar rétt á undan að ná til boltans. Það hefði svo sem ekki talið því aðstoðardómarinn lyftir upp flagginu.
9. mín
MARK!

Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson
Stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson
Gríðarleg verðskuldað miðað við þessa byrjun!
Hrikaleg mistök hjá Tómasi Orra sem fær boltann frá markmanni, hann snýr og veit ekki af Gylfa fyrir aftan hann sem er að koma í pressuna. Gylfi potar boltanum áfram á Valdimar sem er þá kominn í dauðafæri og klárar mjög vel!
6. mín
AFTUR ERU VÍKINGAR SVO NÁLÆGT ÞVÍ AÐ SKORA
Gylfi með hornspyrnuna sem dettur fullkomlega fyrir Niko, hann tekur skotið en Daði ver vel. Boltinn dettur þá fyrir Óskar sem nær að pota í boltann, en skotið hans í Faqa!!
3. mín
ÓTRÚLEGT AÐ ÞETTA SKULI EKKI VERA MARK!
Vandræðagangur í öftustu línu hjá FH! Boltinn lengst upp í loft og Víkingar fá boltann inn í teig, Niko Hansen með skotið sem Daði ver en Valdimar nær frákastinum svona þrem metrum frá marki með ekkert nema Ísak Óla fyrir framan sig, en Ísak nær að koma sér fyrir skotið!
Fyrir leik
Víkingar tryggja sér titilinn hér í dag og munu eflaust vilja gera það með sannfærandi sigri. Víkingur -1.5 er á stuðlinum 2.20 á epic bet og elfaust margir sem hoppa á þann díl.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Sölvi Geir Ottesen þjálfara Víkinga heldur óbreyttu liði frá 3-2 sigrinum gegn Stjörnunni í síðustu umferð.
Heimir Guðjónsson þjálfari FH gerir tvær breytingar á sínu liði frá síðustu umferð en Mathias Rosenörn fékk að líta rautt gegn Breiðablik. FH-ingar skipta því um markmann en Daði Freyr Arnarsson mun vera í markinu í kvöld, auk þess sem Dagur Örn Fjeldsted kemur inn í liðið fyrir Björn Daníel Sverrisson sem er á bekknum.
Heimir Guðjónsson þjálfari FH gerir tvær breytingar á sínu liði frá síðustu umferð en Mathias Rosenörn fékk að líta rautt gegn Breiðablik. FH-ingar skipta því um markmann en Daði Freyr Arnarsson mun vera í markinu í kvöld, auk þess sem Dagur Örn Fjeldsted kemur inn í liðið fyrir Björn Daníel Sverrisson sem er á bekknum.
Fyrir leik
Spáin
Brynjar Kristmundsson, sem stýrði Víkingi Ólafsvík til sigurs í Fótbolti.net bikarnum á dögunum, spáir í leikina að þessu sinni.
Víkingur R. 0 - 1 FH
Heimir Guðjóns tekur Lárus Orra á þetta og fer í fuck it mode og nær í sigur í Víkinni. Þeir byrja í maður á mann og það mun koma Víkingum á óvart. Siggi Hall kemur FH yfir og breytir Heimir um mode og læsir. 0-1 og við erum komin með smá toppbaráttu.
Víkingur R. 0 - 1 FH
Heimir Guðjóns tekur Lárus Orra á þetta og fer í fuck it mode og nær í sigur í Víkinni. Þeir byrja í maður á mann og það mun koma Víkingum á óvart. Siggi Hall kemur FH yfir og breytir Heimir um mode og læsir. 0-1 og við erum komin með smá toppbaráttu.

Fyrir leik
Dómarinn
Elías Ingi Árnason verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Ragnar Þór Bender og Gylfi Már Sigurðsson. Varadómari er Helgi Mikael Jónasson og eftirlitsmaður KSÍ er Ingi Jónsson.

Fyrir leik
Það verða þjálfaraskipti hjá FH
Það hefur verið tilkynnt að Heimir Guðjónsson muni ekki halda áfram sem þjálfari FH eftir þetta tímabil. Stjórnarmenn í FH segjast þegar hafa ráðið nýjan þjálfara en vilja ekki gefa upp um hver það er. Orðrómurinn um að Jóhannes Karl Bjarnason sé þessi þjálfari er hins vegar ansi sterkur.
Fyrir leik
Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar
Með sigri í kvöld gulltryggja Víkingar Íslandsmeistaratitilinn, þar sem Valur er fjórum stigum á eftir þeim í 2. sæti og aðeins tvær umferðar eftir. Sölvi Geir Ottesen þjálfari liðsins myndi þá takast þetta afrek á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari liðs.

Byrjunarlið:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
2. Birkir Valur Jónsson
('85)

4. Ahmad Faqa
('85)

7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Sigurður Bjartur Hallsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
('71)


17. Dagur Örn Fjeldsted
('71)

21. Böðvar Böðvarsson (f)
22. Ísak Óli Ólafsson
23. Tómas Orri Róbertsson
('71)

37. Baldur Kári Helgason
- Meðalaldur 24 ár
Varamenn:
12. Hilmar Karlsson (m)
6. Grétar Snær Gunnarsson
('71)

10. Björn Daníel Sverrisson
('71)

11. Bragi Karl Bjarkason
('71)

18. Einar Karl Ingvarsson
('85)

27. Jóhann Ægir Arnarsson
34. Óttar Uni Steinbjörnsson
35. Allan Purisevic
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
('85)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Emil Pálsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Guðmundur Jón Viggósson
Andres Nieto Palma
Kjartan Henry Finnbogason
Benjamin Gordon Mackenzie
Gul spjöld:
Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('17)
Rauð spjöld: