SKÝRSLAN: Varið víti og þrjú Þróttara stig
Hvað réði úrslitum?
Hörkuleikur þar sem Þróttur lokaði rammanum. Voru mun betra liðið í seinni og mark úr hornspyrnu skilaði verskuldaðri forystu í hálfleik. Stjarnan kom ekki boltanum í netið í seinni og fara tómhentar heim.
Bestu leikmenn
1. Mollee Swift
Heldur hreinu og þurfti heldur betur að hafa fyrir því. Ver vítaspyrnuna frábærlega.
2. Kate Cousins
Frábær á miðjunni sérstaklega í fyrri, stjórnaði leiknum. Mjög óheppin að fá markið sitt dæmt af.
Atvikið
Vítaspyrnu senur! Úlfa Dís fiskar víti, sjálf á punktinn og búin að vera í bana markastuði líkt og framlína Stjörnunnar. Hingað og ekki lengra sagði Mollee í markinu og greip hann í skutlunni.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur sækir þrjú stig sem hefðu getað verið dýrmæt ef FH hefði ekki unnið sinn leik einnig í dag. Þær eru þremur stigum frá 2.sæti en markatala FH er alltof góð til að þær missi Evrópusætið sitt.
Stjarnan heldur sér í 4.sæti, tveimur stigum ofar en Valur.
Framundan er síðasta umferð Bestu Deildar Kvenna.
Stjarnan heldur sér í 4.sæti, tveimur stigum ofar en Valur.
Framundan er síðasta umferð Bestu Deildar Kvenna.
Vondur dagur
Framlína Stjörnunnar hefur verið rjúkandi heit og það er langt síðan þær skoruðu ekki í leik. Þrátt fyrir nokkur færi og góðan seinni hálfleik ná þær ekki að skora.
Sárt fyrir Þrótt að FH sótti sigur og því missar þær af Evrópusætinu.
Sárt fyrir Þrótt að FH sótti sigur og því missar þær af Evrópusætinu.
Dómarinn - 6
Að öllum líkum flottur leikur hjá dómurunum í dag, mögulega hægt að skoða rangstæðu mark Stjörnunnar og brotið sem var dæmt á Þrótti þegar þær komu boltanum í netið í annað sinn.



