Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild karla - Efri hluti
Kópavogsvöllur
1 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
Viktor Karl Einarsson 45'1 - 01 - 151' Óskar Borgþórsson1 - 275' Tarik Ibrahimagic
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Breiðablik tapaði og Evrópusætið ekki lengur í þeirra höndum

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikurinn var í járnum þannig séð, Breiðablik kannski aðeins ofan á og komust yfir undir lok fyrri hálfleiks og fóru með góða stöðu til búningsherbegja. Blikarnir voru mjög opnir í byrjun seinni hálfleiks sem kom Víkingum aftur inn í leikinn eftir frábært skyndisóknarmark. Víkingar komust svo yfir á stórkostlegum einstaklingsgæðum í Tarik og eftir það fjaraði leikurinn má segja út þrátt fyrir að Breiðablik áttu einhverja nokkra sénsa til að jafna leikinn.

Bestu leikmenn

1. Óskar Borgþórsson (Víkingur Reykjavík)

Óskar Borgþórsson sýndi svo mikil gæði á köflum í kvöld. Ógnar gríðalega með hraða sínum og krafti og er líka frábær í fótbolta. Óskar skoraði jöfnunarmarkið í kvöld sem kom upp úr skyndisókn þegar hann stakk alla af og kláraði framhjá Antoni Ara

2. Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur)

Alltof góður fyrir þessa deild? Valdimar gerði oft lítið úr andstæðingnum í kvöld, svso mikil gæði í þessum strák. Kom liðsfélögum sínum oft í frábærar stöður.

Atvikið

Sigurmark Tarik - Gylfi tók hornspyrnu stutt, fékk boltann aftur. Fann Tarik fyrir utan teig og Tarik smurði hann í fjærhornið, óverjandi fyrir Anton Ara.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik er í baráttu um þriðja sæti deildarinnar og er staðan orðin svartari eftir tapið í kvöld og liðinu takist að landa því en til þess að það gerist þarf Fram að vinna Stjörnuna eftir helgi og Breiðablik að fara í Garðabæinn og vinna Stjörnuna í síðustu umferðinni. Víkingar eru löngu orðnir Íslandsmeistarar og óku þeir forskot sitt á toppi deildarinnar.

Vondur dagur

Seinni hálfleikuirnn hjá Breiðablik fer í þennan glugga. Galopnir til baka þegar liðið var með leikinn í sínum höndum.

Dómarinn - 8

Fagmannlega dæmt í kvöld hjá Vilhjálmi Alvari og hans mönnum í kvöld að mínu mati, menn mega vera ósammála mér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.