Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Breiðablik
Breiðablik
Sambandsdeildin
Laugardalsvöllur
0 - 0
KuPS
KuPS
Dómari: Sandi Putros (Danmörk)

SKÝRSLAN: Blikar fá ekki betra tækifæri en þetta

Hvað réði úrslitum?

Finnarnir áttu sína kafla en heilt yfir voru Blikar betra liðið en fóru illa að ráði sínu. Breiðabliksliðið var talið sigurstranglegra fyrir leik og fékk svo sannarlega tækifærin til að vinna þennan leik. Ég held að Blikar fái ekki betra tækifæri en þetta til að vinna loksins leik í Sambandsdeildinni.

Bestu leikmenn

1. Valgeir Valgeirsson - Breiðablik

Fannst Valgeir besti maður vallarins í dag. Var að koma leikmönnum í góð færi sem ekki nýttust.

2. Otto Ruoppi - KuPS

Virkilega sprækur þessi 19 ára leikmaður, var að skapa usla og var hættulegastur í gestaliðinu.

Atvikið

Vítaspyrnan sem Blikar klúðruðu.

Hvað þýða úrslitin?

Þó ég líti á glasið hálftómt skil ég vel að Ólafur Ingi nýr þjálfari liðsins líti á það hálffullt. Þetta er vissulega fyrsta stig Breiðabliks í Sambandsdeildinni og spilamennskan að mörgu leyti fín í dag. Eitthvað til að byggja á.

Vondur dagur

Breiðablik fékk svo sannarlega tækifæri til að vinna þennan leik. Þar á meðal vítaspyrnu en Höskuldur Gunnlaugsson, einn sá sparkvissasti, brást a punktinum. Skaut framhjá. Svo bregðast krosstré.

Dómarinn - 6

Alltílagi, ekki gott. Notkun á hagnaðarreglu að bregðast og missti af augljósri hendi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.