SKÝRSLAN: Markaþurrð Blika í Sambandsdeildinni úr sögunni
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði hér úrslitum í dag var einfaldlega bara það að Blikarnir mættu ekkert eðlilega gíraðir til leiks! Skoruðu strax á 6. mínútu og það setti tóninn í sóknarleik Blika. Á blaði var þetta ekki endilega úrslitin sem mannskapurinn sá fyrir en Blikar með mikla elju héldu sér vel inn í leiknum og tókst að jafna. Bæði lið hefðu síðan geta komist yfir en góð færi fóru forgörðum.
Bestu leikmenn
1. Ágúst Orri Þorsteinsson
Var algjörlega frábær í þessum leik! Brjálæðislega hraður og skemmtilegur leikmaður sem ítrekað sprengdi upp sóknarleikinn hjá Blikum. Átti stoðsendinguna í fyrra markinu og var alltaf stórhættulegur þegar hann komst á ferðina. Set shoutout líka á Óla Val, Davíð, Damir og Anton Ara sem líka áttu mjög góðan leik
2. Marius Mouandilmadji
Hjá Samsunspor var markaskorarinn Marius klárlega þeirra sterkasti og hættulegasti maður! Stór og stæðilegur framherji af guðs náð, heyrði út undan mér að Man Utd hefðu gott af því að sækja svona mann… Sel það þó ekki dýrara en ég heyrði það.
Atvikið
Get ekki valið hvort það er fyrsta mark leiksins og fyrsta mark Blika í keppninni sem Davíð skoraði eftir frábæran undirbúning frá Ágústi Orra eða hvort það er jöfnunarmark Blika sem Kristófer skoraði eftir frábæran undirbúning frá Óla Val! Þannig bæði mörkin fá að vera hér!
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin í dag þýða það einfaldlega að hvort lið gengur frá leiknum með 1 stig. Mikilvægt stig fyrir Blika og markaþurrðin úr sögunni hjá þeim. Skora sín fyrstu 2 mörk í keppninni hingað til og jafnframt fyrstu 2 mörkin sem Samsunspor fær á sig.
Breiðablik situr áfram 32. sæti en nú með 2 stig og markatöluna 2:7
Samsunspor halda þá einnig efsta sætinu og en með 10 stig og markatöluna 9:2
Vondur dagur
Kannski ekki vondur dagur hjá neinum eeeen klárlega erfiður dagur hjá Rick van Drongelen sem missti Ágúst Orra ítrekað framúr sér
Dómarinn - 7
Úkraínska dómarateymið var bara nokkuð solid í dag og ég hef svo sem ekkert sérstaklega út á þá að setja.


