SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Blika í Sambandsdeildinni í hús
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í kvöld var hreinlega bara seiglan og trúin hjá Blikaliðinu. Þeir höfðu alltaf sjálfstraustið og trúðu því svo innilega að þeir væru að fara taka stigin þrjú! og það er bara hreinlega það sem réði úrslitum í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Óli Valur Ómarsson
Hreinlega ekki hægt að velja neinn annan! Með ótrúlega mikilvægt mark og stoðsendingu í kvöld. Hann var síðan bara ótrúlega sprækur fram á við og átti hættulegar fyrirgjafir
2. Viktor Örn Margeirsson
Skoraði fyrsta markið og var solid í vörninni ásamt Damir sem átti líka frábæran leik.
Mjög margir sem gera tilkall hérna í dag þar sem þetta var ótrúlega góð liðsframmistaða í dag
Atvikið
Set þetta á þriðja mark Blikana, það er alveg skrítið að setja markmanninn fram svona snemma í uppbótatíma en jú svo sem ef hann hefði skorað væri ég að skrifa eitthvað allt annað. Eeeeeeen Kristinn Jónsson gerir vel! Hugsar hratt, keyrir upp með boltann og setur hann svo þéttingsfast stöngin inn í autt markið af löngu færi.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Breiðablik er komið með 5 stig og hoppa upp í 26. sætið og eiga því alvöru möguleika á að ná í umspilssæti ef þeir ná í úrslit gegn Strasbourg.
Shamrosk Rovers hins vegar sitja enn í 35. sæti og ljóst að þeir eru dottnir út.
Vondur dagur
Vondur dagur bara hjá Shamrock Rovers í heild að tapa leiknum. En svo sem enginn leikmaður sem var eitthvað eitthvað lélegur.
Dómarinn - 7
Bara skítfínt hjá Albanska dómaranum í kvöld, svo sem engar erfiðar ákvarðanir en hafði góð tök á leiknum og leyfi honum að fljóta nokkuð vel


