Fotbolti.net
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Häcken
Häcken
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
Hisingen Arena (Gautaborg)
7 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Helena Sampaio 25'1 - 0Felicia Schröder 30'2 - 0Monica Jusu Bah 33'3 - 0Felicia Schröder 35'4 - 0Thelma Karen Pálmadóttir 40'5 - 0Paulina Nyström 68'6 - 0Helena Sampaio 78'7 - 0
Dómari: Lina Lehtovaara (Finnland)

SKÝRSLAN: Fimm mörk á korteri í Gautaborg

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í kvöld var einfaldlega það að Häcken var bara með algjöra yfirburði yfir miklu breyttu liði Breiðabliks. Häcken stjórnaði leiknum algjörlega frá a-ö og sýndi það með því að setja hvorki meira né minna en 7 mörk í leiknum.

Bestu leikmenn

1. Felicia Schröder

Var alltaf stórhættuleg í kvöld, skoraði 2 mörk og var síógnandi. Verð samt eiginlega líka að nefna Helenu Sampaio, Paulina Nyström og Tabitha Tindell sem áttu allar stórleik að Thelmu Kareni ólastaðri!

2. Elín Helena Karlsdóttir

Hjá Blikum var það líklega Elín Helena Karlsdóttir sem var hve mikilvægust í varnarlínu Blika, þrátt fyrir 7 mörk þá átti bæði hún og Kristín Dís margar mikilvægar tæklingar sem björguðu því að tapið varð ekki enn stærra.

Atvikið

Set það á markið hennar Thelmu Karenar, hennar fyrsta fyrir félagið, og það fimmta hjá Häcken í leiknum. Það kórónaði gjörsamlega þá yfirburði sem Häcken hafði á leiknum með 5 mörk á 15 mínútna kafla í fyrri hálfleik.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það einfaldlega að Häcken er í mjög góðri stöðu og hefur sjö mörk í plús þegar þær mæta á Kópavogsvöll eftir viku í seinni leik liðanna.

Vondur dagur

Þetta var bara mjög vondur dagur fyrir Ian Jeffs og allt Blikaliðið í heild myndi ég segja

Dómarinn - 7

Vel dæmt hjá Finnska teyminu í kvöld, fyrir utan reyndar að vítið sýndist mér hafa verið fyrir utan teiginn en það kom svo sem ekki að sök.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.