SKÝRSLAN: Häcken reyndist Blikum um megn
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum hér í kvöld er einfaldlega það að Häcken er bara betra liðið. Væri hins vegar gaman að sjá leik milli þessara liða þegar Blikar eru komnir í gang og hafa náð að pússa sig saman. Þetta væri allt annað ef leikurinn væri að spilast næsta haust t.d. eftir heilt tímabil.
Bestu leikmenn
1. Agla María Albertsdóttir
Fyrirliðinn Agla María var mjög spræk í kvöld, hún fékk að vera í aðeins frjálsari hlutverki og liggja framar og það hentaði henni mjög vel í kvöld. Leikgleðin skein af henni og hún var að koma sér í ágætis stöður og átti bæði frábærar fyrirgjafir og pressur á öftustu línu Häcken.
2. Elísa Viðarsdóttir
Var flott í dag, vann mjög vel varnarlega, átti góðar sendingar upp völlinn og svo skoraði hún svakalegt mark gegn sínum gamla liðsfélaga hjá Val, Fanneyju. Set líka shoutout Hrafnhildi Ásu sem var mjög flott fram á við, ótrúlega skemmtilegur leikmaður, skapandi og hröð.
Atvikið
Verð að setja þetta á Bangerinn hjá Elísu Viðars! Alvöru mark þar á ferðinni þegar hún þrumaði honum í fjærhornið af löngu færi, hennar fyrsta mark fyrir Breiðablik og eina mark Breiðabliks í þessu einvígi.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Häcken fer áfram í undanúrslit Evrópubikarsins með 11-1 samanlagðan sigur en Breiðablik situr eftir með sárt ennið.
Vondur dagur
Klárlega vondur dagur hjá Helena Sampaio sem borin var út af á börum um miðjan fyrri hálfleik, er einn af bestu leikmönnum Häcken og átti frábæran leik í fyrri leik liðanna.
Dómarinn - 6
Dómarateymið stóð sig bara ágætlega í dag, engar stórkostlega ákvarðanir sem þurfti að taka þannig. Skrítið í lokinn að flauta leikinn af nánast áður en venjulegur leiktími var liðinn. tveir leikmenn Blika stóðu á hliðarlínunni og höfðu verið að bíða eftir að boltinn færi útaf til að fá að spila nokkrar mínútur í uppbótatíma sem varð þá bara að engu... Örugglega drullu svekkjandi...


