Leik lokið!
Víkingar eru Reykjavíkurmeistarar!
Ekki gæðamesti leikurinn, enda buðu kannski aðstæður ekki upp á það. En Víkingar verðskuldaðir sigurvegarar og kláruðu leikinn eftir stórbrotið jöfnunarmark Aron Snæs Ingasonar.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.
95. mín
InnDaníel Bjarnason
ÚtDavíð Helgi Aronsson
95. mín
InnGestur Alexander Ó. Hafþórsson
ÚtStígur Diljan Þórðarson
92. mín
Atli að klára þetta!
Atli Þór Jónasson (stoðsending: Viðar Elí Bjarnason)
Viðar Elí gerir vel og á góða sendingu fyrir markið sem fer beint á Atla Þór sem klárar vel af stuttu færi.90. mín
Stígur að tryggja sigurinn?
Stígur Diljan Þórðarson
Víkingar taka skot úr aukaspyrnu, Aron Dagur ver en Stígur fylgir vel á eftir og skallar boltann í netið.88. mín
Rautt spjald
Brynjar Gautur Harðarson
Brynjar fær sitt seinna gula og er rekinn af velli. Braut af sér í skyndisókn Víkinga.87. mín
Ef allt endar jafnt eftir venjulegan leiktíma þá förum við beint í vítaspyrnukeppni.
85. mín
Gult spjald
Brynjar Gautur Harðarson
84. mín
InnViðar Elí Bjarnason
ÚtDavíð Örn Atlason
83. mín
ÞVÍLÍKT MARK!
Aron Snær Ingason
Aron fær boltann vel fyrir utan vítateig og gerir sér lítið fyrir og þrumar boltanum í samskeytin. Allt jafnt!82. mín
Þróttarar fá aukaspyrnu við endalínu Víkingsmegin. Boltinn kemur fyrir en Víkingar skalla frá.
82. mín
Víkingur fær hornspyrnu, boltinn kemur í mittishæð á Gunnar Vatnhamar sem lætur vaða en hann skýtur hreinlega í sjálfan sig.
81. mín
InnBirgir Halldórsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
81. mín
InnÖrn Bragi Hinriksson
ÚtUnnar Steinn Ingvarsson
80. mín
InnBenóný Haraldsson
ÚtTryggvi Snær Geirsson
80. mín
InnAtli Þór Jónasson
ÚtNikolaj Hansen
79. mín
Stöngin!
Frábær skyndisókn hjá Víkingum, Stígur Diljan gefur fyrir á Erling sem setur boltann í stöngina af stuttu færi.
75. mín
InnÞorri Ingólfsson
ÚtElías Már Ómarsson
75. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtÁrmann Ingi Finnbogason
74. mín
Gult spjald
Nikolaj Hansen
Nikolaj fer í harkalega tæklingu á Hlyn Þórhalls sem liggur eftir og þarfnast aðhlynningar.67. mín
Gult spjald
Elías Már Ómarsson
Elías fer í bókina góðu fyrir tæklingu á Unnar Stein. Sýndist Elías þó fara í boltann þarna.66. mín
Gult spjald
Ármann Ingi Finnbogason
Stöðvar skyndisókn.65. mín
InnAdam Árni Róbertsson
ÚtVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Sá markahæsti að mæta inn á
Adam Árni Róbertsson var markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra. Hann var keyptur í Þrótt frá Grindavík í vetur.
55. mín
Góð varsla!
Ármann Ingi tekur lúmskt viðstöðulaust skot úr teignum en Aron Dagur sýnir góða takta og ver vel.
53. mín
Gunnar Vatnhamar tekur skot á lofti frá 30 metrum sem Aron Dagur handsamar ögrugglega.
51. mín
Gult spjald
Unnar Steinn Ingvarsson
Unnar fer harkalega í Ármann og fær að líta gula spjaldið. Víkingar eru ósáttir og hefðu viljað sjá rauða kortið fara á loft. Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings, fær gult spjald fyrir mótmæli.49. mín
Elías Már með fast skot rétt utan vítateigs sem fer rétt framhjá marki gestanna.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Víkingar leiða í hálfleik
Vilhjálmur Alvar flautar til hálfleiks. Var ansi lokað framan af en Víkingar hertu tökin eftir því sem leið á hálfleikinn og leiða sanngjarnt.
44. mín
Það bætir í vindinn og snjóinn, skrautlegar aðstæður.
43. mín
Davíð brýtur ísinn!
Davíð Helgi Aronsson (stoðsending: Ármann Ingi Finnbogason)
Ármann Ingi með góða fyrirgjöf beint á Davíð Helga sem klárar vel af stuttu færi.
40. mín
Unnar Steinn með góða sendingu í gegn á Vilhjálm Kaldal en Gunnar Vatnhamar á enn betri tæklingu og kemur hættunni frá.
37. mín
Víkingar fá aukaspyrnu mitt á milli vítateigs og hliðarlínu. Ármann gefur fyrir en Þróttarar skalla frá.
35. mín
Víkingar fá hornspyrnu en hún er ægileg og Þróttarar skalla frá.
28. mín
Niko Hansen á skalla framhjá marki Þróttara. Heimamenn mun hættulegri.
23. mín
Víkingar gefa góðan bolta fyrir, í teignum er Nikolaj Hansen en hann nær ekki til knattarins.
22. mín
Stígur Diljan með góða tilraun
Sker inn á hægri rétt utan vítateigs og tekur skotið sem fer rétt framhjá marki gestanna.
19. mín
Gult spjald
Davíð Örn Atlason
Þróttarar keyra upp í skyndisókn. Aron Snær geysist upp með boltann á hægri kanti en Davíð Örn fer harkalega í hann og Aron endar með andlitið í snjóskafli rétt utan vallarins.19. mín
Víkingur fær hornspyrnu, boltinn fer á Gunnar Vatnhamar sem á lausan skalla sem Aron Dagur handsamar auðveldlega.
17. mín
Lítið um færi hér í upphafi leiks.
8. mín
Víkingar gefa fyrir úr aukaspyrnu og boltinn fer manna á milli í teignum en að lokum koma Þróttarar boltanum frá.
7. mín
Gult spjald
Sigurður Egill Lárusson
Sigurður Egill brýtur á Davíð Erni Atlassyni og uppsker gult spjald að launum.7. mín
Ármann Ingi sker inn frá hægri kanti og gefur fyrir en boltinn yfir pakkann og fer aftur fyrir endalínu.
1. mín
Klukkan er 19:20 og loks erum við farin af stað!
0. mín
Liðin ganga til vallar
Nú sautján mínútur yfir sjö ganga liðin til vallar. Um þrjátíu glerharðir stuðningsmenn mættir í stúkuna.
0. mín
Leikurinn hefst 19:15
Bæði lið hita stuttlega upp!
0. mín
Ríkjandi Íslandsmeistar að spila hér til úrslita gegn Þrótti sem er í Lengjudeildinni, -1.5 á Víking er á stuðlinum 2.29. Það hlýtur að kitla einhverja þó svo að lykilmenn séu úti í Mexíkó.
0. mín
Bæði lið farin að hita upp!
Miðað við að leikmenn voru að mæta út til að hita upp þá mun leikurinn líklegast hefjast 19:30.


0. mín
Leikurinn hefst ekki klukkan 19
Leiknum verður frestað um einhverjar mínútur. Hvorugt lið er byrjað að hita upp vegna mikillar snjókomu. Miðað við það sem ég heyri hefst leikurinn korter yfir sjö.


0. mín
Byrjunarlið Víkings
Sölvi Ottesen hefur valið byrjunarlið kvöldsins gegn Þrótturum. Sjáumst í stúkunni, leikurinn hefst kl. 19:00 ?????? pic.twitter.com/PwGSGrxGmV
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) February 25, 2026
0. mín
Við fáum leik!
Gul veðurviðvörun vegna talsverðrar snjókomu tók gildi á höfuðborgarsvæðinu í dag og gildir til sjö í kvöld. Hún setur þó ekki strik í reikninginn varðandi leikinn.
Víkingur hefur tilkynnt að leikurinn fari fram á tilsettum tíma á heimavelli hamingjunnar. Hinsvegar er búið að fresta leik kvennaliðs Víkings gegn Breiðabliki.


0. mín
Bæði lið virk á markaðnum
Víkingur
Komnir
Elías Már Ómarsson frá Kína
Aron Snær Friðriksson frá Njarðvík
Ármann Ingi Finnbogason frá ÍA (var á láni hjá Grindavík)
Björgvin Brimi Andrésson frá Gróttu (lánaður til baka)
Davíð Helgi Aronsson frá Njarðvík (var á láni)
Farnir
Matthías Vilhjálmsson hættur
Pablo Punyed í Hauka
Pálmi Rafn Arinbjörnsson hættur
Haraldur Ágúst Brynjarsson til Njarðvíkur (lán)
Almo (var á láni hjá Njarðvík)
Þróttur R.
Komnir
Sigurður Egill Lárusson frá Val
Adam Árni Róbertsson frá Grindavík
Aron Dagur Birnuson frá Stjörnunni (á láni)
Tryggvi Snær Geirsson frá Fram
Farnir
Kári Kristjánsson í FH
Liam Daði Jeffs í ÍBV
Viktor Andri Hafþórsson í Fjölni
Hrafn Tómasson í KR (var á láni)
Sigfús Árni Guðmundsson í Fram (var á láni)
Samningslausir
Emil Skúli Einarsson



0. mín
Vantar stóra pósta í Víkingsliðið
Íslenska landsliðið mætir Mexíkó í vináttuleik klukkan tvö í nótt. Leikurinn er utan hefðbundins landsleikjaglugga og því er hópurinn að mestu skipaður leikmönnum sem eru á mála hjá íslenskum félagsliðum.
Fimm leikmenn Víkings eru í landsliðshópnum, þeir Karl Friðleifur Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Daníel Hafsteinsson, Óskar Borgþórsson og Helgi Guðjónsson.
Þá voru þeir Aron Elís Þrándarson og Valdimar Þór Ingimundarson valdnir í upprunalega landsliðshópinn en þurftu að draga sig út vegna meiðsla og verða þeir jafnframt fjarverandi í kvöld.


0. mín
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins!
Heilir og sælir lesendur góðir og verið velkomin til leiks í þráðbeina textalýsingu frá Víkingsvelli þar sem Íslandsmeistararnir fá Lengjudeildarlið Þróttar í heimsókn í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í kvöld.
Víkingur fékk tíu stig úr fjórum leikjum í riðlakeppni mótsins. Liðið vann ÍR, Leikni og Fjölni en gerði jafntefli við Fram. Þróttur fékk sjö stig úr sínum þremur leikjum í riðlakeppninni. Liðið vann KR og Val en gerði jafntefli við Fylki.





