Í BEINNI
Lengjubikar karla - Undanúrslit
Þór
LL
0
2
2
Fylkir

Þór
0
2
Fylkir

0-1
Guðmundur Tyrfingsson
'13
0-2
Benedikt Daríus Garðarsson
'75
Eiður Benedikt Eiríksson
'83
17.03.2026 - 18:00
Greifavöllurinn
Lengjubikar karla - Undanúrslit
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: Fjölmennt og góðmennt
Greifavöllurinn
Lengjubikar karla - Undanúrslit
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: Fjölmennt og góðmennt
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
('81)
('81)
5. Yann Emmanuel Affi
8. Einar Freyr Halldórsson
15. Kristófer Kristjánsson
('89)
('89)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason
('46)
('46)
19. Ragnar Óli Ragnarsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
('81)
('81)
23. Ingimar Arnar Kristjánsson
25. Christian Greko Jakobsen
('73)
- Meðalaldur 24 ár
('73)
Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
3. Birgir Ómar Hlynsson
('81)
('81)
4. Hermann Helgi Rúnarsson
('73)
('73)
18. Sverrir Páll Ingason
('89)
('89)
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson
('81)
('81)
21. Elvar Baldvinsson
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
('46)
- Meðalaldur 25 ár
('46)
Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Eiður Benedikt Eiríksson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Halldór Mar Einarsson
Stefán Ingi Jóhannsson
Gul spjöld:
Christian Greko Jakobsen ('60)
Kristófer Kristjánsson ('64)
Ingimar Arnar Kristjánsson ('88)
Rauð spjöld:
Eiður Benedikt Eiríksson ('83)
Leik lokið!
Fylkir í úrslit annað árið í röð
Fylkir fer í úrslitaleik Lengjubikarsins annað árið í röð!
83. mín
Rautt spjald: Eiður Benedikt Eiríksson (Þór )
Rautt spjald: Eiður Benedikt Eiríksson (Þór )
Aðstoðarþjálfari Þórs fær rautt.
Pirraður að Sigurður dómari hafi ekki skipað Benedikt að fara stystu leið út af.
Pirraður að Sigurður dómari hafi ekki skipað Benedikt að fara stystu leið út af.
82. mín
Ingimar sleppur inn fyrir vörn Fylkis, er í góðri stöðu úti vinstra megin en skot hans fer í utanvert hliðarnetið.
79. mín
Fylkismenn fljótir að breyta vörn í sókn, Benedikt leggur boltann á Eyþór við miðlínu og Eyþór brunar upp. Eyþór fer framhjá Affi en Ragnar bjargar í horn.
75. mín
MARK!
MARK!Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
Stoðsending: Guðmundur Tyrfingsson
Stoðsending: Guðmundur Tyrfingsson
Löng sending inn fyrir, Affi og Ásbjörn ná ekki Benedikt sem gerir allt rétt og setur boltann framhjá Aroni í markinu.
Þórsarsar að reyna jafna og voru hátt uppi með línuna.
Fylkir leiðir 0-2!
Þórsarsar að reyna jafna og voru hátt uppi með línuna.
Fylkir leiðir 0-2!
71. mín
Nikulás gerir vel, ber upp boltann og finnur Theodór Inga sem á skot. Boltinn fer í Affi og Þór á svo innkast.
70. mín
Bjarni Guðjón með skot úr teignum með vinstri sem fer af varnarmanni og Ólafur Kristófer ver svo.
69. mín
Geggjaðir taktar hjá Sigfúsi, böðlar sig í gegnum þrjá Fylkismenn og Hlynur kemur svo boltanum aftur fyrir.
55. mín
Þór fær aukaspyrnu við vítateigshornið vinstra megin. Einar Freyr lætur vaða en skotið fer mjög hátt yfir.
53. mín
Eyþór býst við aukaspyrnu, tekur boltann upp og Sigurður dæmir aukaspyrnu á hann. Þórsarar kalla eftir spjaldi en fá það ekki í gegn.
50. mín
Dauðafæri
Kristófer með mjög góða fyrirgjöf sem finnur Ágúst inn á markteignum en Ágúst hittir ekki boltann með höfðinu!
46. mín
Leikmaður Fylkis liggur á vellinum. Sé ekki hver það er, leikurinn stopp. Fylkir á aukaspyrnu á miðjum velli.
Bjarki Steinsen er það.
Bjarki Steinsen er það.
45. mín
Vörn Þórsara hriplek
Guðmundur sleppur núna í gegn en Aron sér við honum. Orri á svo skalla eftir hornspyrnu Arnórs Breka.
43. mín
Boltinn unninn af Greko sem kom djúpt til baka, Nikulás er eitthvað hikandi að taka ákvörðun og Affi lokar á hann. Þórsarar kalla eftir aukaspyrnu þarna.
42. mín
Þarna var séns
Ingimar með sendingu inn fyrir Hlyn Sævar sem Kristófer rétt missir af, Ólafur Kristófer kemst í boltann og gestirnir bruna upp. Benedikt er í fínni stöðu vinstra megin á teignum, reynir skot/fyrirgjöf sem fer af Aroni og afturfyrir.
39. mín
Vel spilað hjá Fylki við vítateig Þórsara, boltanum flikkað skemmtilega á Bjarka sem er í góðu hlaupi, hann reynir að finna Benedikt en hann fipast eitthvað til í dauðafæri og nær ekki skoti á markið.
37. mín
Ingimar Arnar í hörkufæri
Færi í hverri sókn!
Núna fær Ingimar boltann vinstra megin í teig Fylkis, tékkar til baka og ætlar að þruma boltanum í fjær en hittir ekki markið. Illa farið með gott færi.
Núna fær Ingimar boltann vinstra megin í teig Fylkis, tékkar til baka og ætlar að þruma boltanum í fjær en hittir ekki markið. Illa farið með gott færi.
36. mín
Aron Birkir!
Á meðan ég er að skrifa á símann sækja gestirnir og Guðmundur Tyrfingsson er í góðu færi en Aron Birkir mætir út, gerir sig breiðan og ver vel.
35. mín
Ólafur Kristófer!
Affi með fastan bolta út á Kristófer sem á sprettinum á hægri kantinum. Kristófer sker boltann út á Greko sem er í mjög góðu færi og lætur vaða en Ólafur Kristófer les hann!
Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Þórsarar fá hornspyrnu sem Einar tekur. Boltinn kemur út úr þvögunni á Kristófer sem lætur vaða með vinstri en boltinn fer í mann á leiðinni að marki og rúllar hægt á Ólaf í markinu.
29. mín
Þórsarar í mjög álitlegri stöðu
Þórsarar pressa hátt í innkasti Fylkis, vinna boltann við teiginn og Greko á fasta fyrirgjöf sem mér sýnist Ólafur Kristófer ná að stýra frá Ingimar. Fannst Greko geta gert betur þarna!
25. mín
Fylkismenn gera vel í hraðri sókn sem endar með skoti frá Eyþóri hægra megin úr teignum. Þröngt færi og Aron Birkir ver þægilega. Affi leit ekki vel út í varnarleiknum og stöðva þarf leik þar sem hann lá aðeins eftir. Ekkert alvarlegt og Affi heldur leik áfram.
21. mín
Álitleg sókn hjá Þór sem Hlynur Sævar truflar með góðum leiklestri.
Sókn Þórsara heldur áfram og Ágúst vinnur hornspyrnu. Þórsarar ógna en gestirnir verjast vel.
Sókn Þórsara heldur áfram og Ágúst vinnur hornspyrnu. Þórsarar ógna en gestirnir verjast vel.
20. mín
Ingimar Arnar fer niður við vítateig Fylkis og vill heyra flaut en Sigurður dómari metur ekkert brot í þessu atviki.
19. mín
Dauðafæri
Guðmundur finnur Eyþór með góðri sendingu framhjá varnarmönnum Þórsara, Eyþór er hægra megin í teignum og þrumar boltanum fyrir en einhvern veginn kemst Benedikt ekki í þennan bolta sem hefði átt að enda í neti heimamanna.
13. mín
MARK!
MARK!Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Stoðsending: Nikulás Val Gunnarsson
Stoðsending: Nikulás Val Gunnarsson
Virkilega vel tekið hjá Guðmundi. Þórsarsar eitthvað ósáttir með aðdragandann, vildu fá flaut og aukaspyrnu á Fylki. Ég sá þetta ekki nógu vel. Guðmundur fær boltann fyrir utan teig Þórsara, í mjög góðu skotfæri og skorar með góðu skoti í fjærhornið.
11. mín
Ólafur Kristófer í smá brasi, mætir út fyrir teig eftir langan bolta frá Ásbirni, kemur boltanum ekki langt frá sér og er heppinn að tilraun Ágústs er ekki betri. Hættan líður hjá.
10. mín
Benedikt vinnur hornspyrnu fyrir Fylki.
Orri Sveinn kemst í boltann frá Arnóri Breka en Þórsarar ná svo að vinna boltann.
Orri Sveinn kemst í boltann frá Arnóri Breka en Þórsarar ná svo að vinna boltann.
6. mín
Fínt skotfæri fyrir Birki Eyþórs fyrir utan teig Þórsara en skotið er ekki frábært og auðveld varsla fyrir Aron Birki.
4. mín
Þórsarar byrja betur
Fínt skot sem Ólafur ver. Ragnar Óli á svo skalla framhjá eftir hornið sem kom í kjölfarið.
4. mín
Lið Fylkis
Appelsínugulir/svartir
Ólafur
Bjarki - Orri - Hlynur - Arnór Breki
Birkir - Nikulás
Theodór - Guðmundur - Benedikt
Wöhler
Ólafur
Bjarki - Orri - Hlynur - Arnór Breki
Birkir - Nikulás
Theodór - Guðmundur - Benedikt
Wöhler
2. mín
Lið Þórs
Hvítir/rauðir
Aron Birkir
Kristófer - Ragnar - Affi - Ásbjörn
Einar - Bjarni
Fannar - Ágúst - Ingimar
Greko
Aron Birkir
Kristófer - Ragnar - Affi - Ásbjörn
Einar - Bjarni
Fannar - Ágúst - Ingimar
Greko
Fyrir leik
Moli dagsins
Þórsarar hafa verið mjög öflugir á undirbuningstímabilinu og það verður engin breyting á því í dag. Bæði lið eru sóknarsinnuð svo Þórs sigur og yfir 3,5 mörk á Epic ætti að vera flott veðmál.
Fyrir leik
Úrslitaleikurinn á Dalvík eða í Árbæ
Það er orðið ljóst eftir hlutkesti að sigurliðið hér í kvöld fær heimaleik í úrslitaleik. Ef Þór vinnur verður spilað á Dalvíkurvelli en ef Fylkir vinnur verður spilað á tekk VELLINUM í Árbæ. KR verður því á útivelli í úrslitaleiknum sem verður spilaður á laugardag.
Fyrir leik
Kalt á Akureyri
Samt frábært veður, þið vitið hvernig þetta virkar.
Smá gola, skýjað og mínus tvær gráður.
Smá gola, skýjað og mínus tvær gráður.
Fyrir leik
Byrjunarliðin: Tvær og þrjár breytingar
Það eru tvær breytingar á byrjunarliði Þórs frá liðinu sem vann 5-1 gegn Val í síðustu viku. Atli Sigurjónsson er ekki í leikmannahópi Þórs og Sverrir Páll Ingason tekur sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Kristófer Kristjánsson og Fannar Daði Malmquist.
Þrjár breytingar eru á liði Fylkis frá 4-2 sigrinum á ÍBV. Sigurbergur Áki meiddist illa og Guðfinnur Þór Leósson er heldur ekki með. Kári Sigfússon tekur sér sæti á bekknum. Inn koma þeir Theodór Ingi Óskarsson, Birkir Eyþórsson og Orri Sveinn Segatta sem er með fyrirliðabandið í dag.
Þrjár breytingar eru á liði Fylkis frá 4-2 sigrinum á ÍBV. Sigurbergur Áki meiddist illa og Guðfinnur Þór Leósson er heldur ekki með. Kári Sigfússon tekur sér sæti á bekknum. Inn koma þeir Theodór Ingi Óskarsson, Birkir Eyþórsson og Orri Sveinn Segatta sem er með fyrirliðabandið í dag.
Fyrir leik
Í beinni á Livey
Livey hefur sýnt frá leikjunum í Lengjubikarnum og á því verður engin breyting í kvöld.
Tryggðu þér áskrift hér.
Tryggðu þér áskrift hér.
Heimir Guðjóns er að rækta karakter í Árbænum. Keyra norður í veturinn, spila leikinn úti á gervigrasi og keyra heim eftir leik.
— Guðmundur Egill (@gudmegill) March 17, 2026
Karakter sem er yfirleitt bara til í leikmönnum og liðum utan af landi. #fotboltinet
Fyrir leik
Markahæstu menn
Atli Sigurjónsson er markahæsti leikmaður Lengjubikarsins með sjö mörk í keppninni. Hann skoraði öll fimm mörkin í sigri Þórs á Val í síðustu viku.
Guðmundur Tyrfingsson er markahæsti leikmaður Fylkis með fjögur mörk skoruð í keppninni.
Guðmundur Tyrfingsson
Guðmundur Tyrfingsson er markahæsti leikmaður Fylkis með fjögur mörk skoruð í keppninni.

Guðmundur Tyrfingsson
Fyrir leik
Fréttir af Þór
Eftir sigurinn á Val í síðustu viku var greint frá því að Ibrahima Balde, einn besti leikmaður liðsins á síðasta tímabili, væri á förum frá félaginu og samdi hann í kjölfarið við Vestra hvaðan hann kom til Þórs eftir tímabilið 2024.
Fótbolti.net greindi þá frá því í gær að Magnus Holte, norskur unglingalandsliðsmaður, væri á leið til Þórsara á láni frá Rosenborg.
Fótbolti.net greindi þá frá því í gær að Magnus Holte, norskur unglingalandsliðsmaður, væri á leið til Þórsara á láni frá Rosenborg.
Fyrir leik
Fréttir af Fylki
Eftir að síðasta leik hjá Fylki (sigur á ÍBV) lauk kom í ljós að Sigurbergur Áki Jörundsson er með slitið krossband og verður ekkert með liðinu á komandi tímabili.
Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag var FH-ingurinn Dagur Traustason orðaður við Fylki og Kristján Óli Sigurðsson orðaði Skagamanninn Albert Hafsteinsson við félagið í gær.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, verður spurður út í leikmannatíðindi eftir leikinn í kvöld.
Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag var FH-ingurinn Dagur Traustason orðaður við Fylki og Kristján Óli Sigurðsson orðaði Skagamanninn Albert Hafsteinsson við félagið í gær.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, verður spurður út í leikmannatíðindi eftir leikinn í kvöld.
Fyrir leik
Vítaspyrnukeppni ef endar með jafntefli
Sigurður Hjörtur Þrastarson er með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða þeir Patrik Freyr Guðmundsson og Ágúst Þór Ásgeirsson. Bergvin Fannar Hunnarsson er fjórði dómari og Þóroddur Hjaltalín er eftirlitsmaður KSÍ.
Ef staðan verður jöfn eftir 90 mínútur og uppbótartíma mun vítaspyrnukeppni ráða úrslitum um hvort liðið fer í úrslitaleikinn.
Ef staðan verður jöfn eftir 90 mínútur og uppbótartíma mun vítaspyrnukeppni ráða úrslitum um hvort liðið fer í úrslitaleikinn.

Fyrir leik
Leiðin í undanúrslitin
Þór endaði í toppsæti riðils 2 eftir að hafa unnið Val, Aftureldingu og Gróttu. Liðið vann einnig stórsigur á Völsungi sem í kjölfarið dró sig úr keppni. Eina jafntefli Þórs kom gegn ÍA á Akrenesi.
Fylkir endaði í toppsæti riðils fjögur eftir að hafa lagt Breiðablik, Leikni, FH og ÍBV að velli. Þróttur hefði getað náð Fylki að stigum með því að vinna ÍBV með fimm marka mun í fimmta leik sínum en þeim leik var frestað fyrr í veturog ekki var hægt að spila hann í lok riðlakeppninnar þar sem Þróttur fór út í æfingaferð. Þróttur vann 3-0 sigur á Fylki i innbyrðisleik toppliðanna.
Fylkir endaði í toppsæti riðils fjögur eftir að hafa lagt Breiðablik, Leikni, FH og ÍBV að velli. Þróttur hefði getað náð Fylki að stigum með því að vinna ÍBV með fimm marka mun í fimmta leik sínum en þeim leik var frestað fyrr í veturog ekki var hægt að spila hann í lok riðlakeppninnar þar sem Þróttur fór út í æfingaferð. Þróttur vann 3-0 sigur á Fylki i innbyrðisleik toppliðanna.
Fyrir leik
Góðan daginn og velkomin á Greifavöllinn
Hér verður bein textalýsing frá leik Þórs og Fylkis í undanúrslitum Lengjubikarsins. Sigurvegarinn í kvöld mun mæta KR í úrslitaleik á laugardag.
Spilað er á Greifavellinum þar sem Þórsvöllur, nýr gervigrasvöllur Þórsara, er ekki alveg tilbúinn.
Þór verður í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa unnið Lengjudeildina í fyrra en Fylkir verður annað árið í röð í Lengjudeildinni.
Spilað er á Greifavellinum þar sem Þórsvöllur, nýr gervigrasvöllur Þórsara, er ekki alveg tilbúinn.
Þór verður í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa unnið Lengjudeildina í fyrra en Fylkir verður annað árið í röð í Lengjudeildinni.

Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Orri Sveinn Segatta (f)
9. Eyþór Aron Wöhler
('89)
('89)
10. Benedikt Daríus Garðarsson
('84)
('84)
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson
20. Theodór Ingi Óskarsson
('72)
('72)
70. Guðmundur Tyrfingsson
('95)
('95)
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
- Meðalaldur 25 ár
Varamenn:
99. Sævar Snær Pálsson (m)
7. Máni Austmann Hilmarsson
('89)
('89)
11. Magnús Daði Ottesen
('84)
('84)
21. Nói Hrafn Ólafsson
25. Jóel Baldursson
('95)
('95)
72. Helber Josua Catano Catano
92. Kári Sigfússon
('72)
- Meðalaldur 20 ár
('72)
Liðsstjórn:
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Heimir Guðjónsson (Þ)
Ólafur Engilbert Árnason
Árni Leó Þórðarson
Björn Viðar Ásbjörnsson
Gul spjöld:
Nikulás Val Gunnarsson ('54)
Ólafur Kristófer Helgason ('83)
Kári Sigfússon ('86)
Rauð spjöld:



