Bose-bikarinn Úrslit
Stjarnan
LL
1
3
3
Víkingur R.
Úrslit Lengjubikarsins
Fylkir
LL
8
7
7
KR

Stjarnan
1
3
Víkingur R.

Örvar Eggertsson
'22
1-0
1-1
Óskar Borgþórsson
'36
1-2
Valdimar Þór Ingimundarson
'56
1-3
Gylfi Þór Sigurðsson
'77
21.03.2026 - 17:00
Miðgarður
Bose-bikarinn Úrslit
Aðstæður: Það er kalt en þó logn inni í Miðgarðinum
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: Fínasta mæting í Miðgarðinn
Miðgarður
Bose-bikarinn Úrslit
Aðstæður: Það er kalt en þó logn inni í Miðgarðinum
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: Fínasta mæting í Miðgarðinn
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
6. Sindri Þór Ingimarsson
('47)
('47)
7. Örvar Eggertsson
('71)
('71)
14. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
('58)
('58)
21. Ibrahim Turay
22. Emil Atlason (f)
('47)
('47)
23. Benedikt V. Warén
('58)
('58)
29. Alex Þór Hauksson
('58)
- Meðalaldur 28 ár
('58)
Varamenn:
10. Samúel Kári Friðjónsson
('58)
('58)
20. Alpha Conteh
('71)
('71)
32. Örvar Logi Örvarsson
('47)
('47)
37. Haukur Örn Brink
('58)
('58)
78. Bjarki Hauksson
('58)
('58)
99. Andri Rúnar Bjarnason
('47)
- Meðalaldur 26 ár
('47)
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Alex Þór Hauksson ('2)
Bjarki Hauksson ('62)
Rauð spjöld:
86. mín
Mér sýnist að Víkingarnir séu að klára þetta. Stjörnumenn þurfa að skipta um gír og það strax ef þeir vilja gera einhvern leik úr þessu.
77. mín
MARK!
MARK!Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
Bannað að gefa þessum manni þennan tíma!
Árni Snær var nýbúinn að verja stórkostlega eftir skalla frá Valdimar af stuttu færi. Víkingar halda sóknarpressunni sinni áfram og það er síðan Gylfi Sig sem klárar eftir að hafa fengið boltann í sinni draumastöðu við D-bogann.
Hann bara tekur við honum og slúttar mjög Gylfalega í markið og Árni kemur engum vörnum við.
Hann bara tekur við honum og slúttar mjög Gylfalega í markið og Árni kemur engum vörnum við.
66. mín
Hér á Livey!
Minni líka á að leikurinn er í þráðbeinni og galopinni dagskrá á Livey þar sem meistari Höddi er að lýsa leiknum með glæsibrag. Gott að vera með hann í eyranu yfir leiknum.
64. mín
Sláin!
Stjörnumenn með frábæra hornspyrnu inn á teiginn sem fer af einhverjum (engin leið að sjá af hverjum) og í slána.
58. mín
Inn:Samúel Kári Friðjónsson (Stjarnan)
Út:Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
56. mín
MARK!
MARK!Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
Víkingar leiða!
Frábær sending á teiginn hjá Helga Guðjóns á Valdimar sem er mættur á fjærsvæðið. Hann sparkar í jörðina í fyrsta og yfir Árna í markinu, mjög áhugavert mark.
Víkingar einu skrefi nær því að vera Bose meistarar.
Víkingar einu skrefi nær því að vera Bose meistarar.
53. mín
Frábær sókn hjá Víkingum!
Stígur keyrir með boltann upp og kemur honum á Óskar sem rúllar honum til hliðar á Valdimar. Valdimar kemur með góða sendingu alveg á fjærstöngina þar sem Stígur Diljan er mættur en nær ekki almennilega til boltans og hann rúllar rétt framhjá markinu.
47. mín
Inn:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
Út:Emil Atlason (Stjarnan)
Stjörnumenn gera sýnist mér þrjár breytingar, á meðan ég finn út hverjir fóru útaf og inn á kemur ein breytingin.
43. mín
Víkingar fá hornspyrnu en ná ekki að gera sér neitt úr henni og Stjörnumenn standa vaktina vel.
36. mín
MARK!
MARK!Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Stígur Diljan Þórðarson
Stoðsending: Stígur Diljan Þórðarson
Víkingar jafna!
Sýndist það vera Stígur sem kemur með sendinguna á teiginn. Óskar tekur við boltanum og gabbar varnamann Stjörnunnar þannig að hann fær ennþá meiri tíma inn á teignum.
Hann tekur skotið sem reyndist frábær afgreiðsla og allt jafnt í Miðgarði!
Hann tekur skotið sem reyndist frábær afgreiðsla og allt jafnt í Miðgarði!
Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Víkingar skjóta í slána!
Frábær fyrirgjöf inn á teiginn og skyndilega er Oliver Ekroth mættur á svæðið. Hann tekur skotið á markið sem Árni ver í slána og aftur fyrir. Víkingar halda áfram að banka.
Spyrnan var slök og Víkingar brjóta á sér sömuleiðis.
Spyrnan var slök og Víkingar brjóta á sér sömuleiðis.
27. mín
Gult spjald: Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Gult spjald: Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Stoppar hraða skyndisókn Stjörnumanna og fær réttilega gult spjald.
24. mín
Stígur í dauðafæri!
Víkingar keyr upp hinum meginn fljótlega eftir mark Stjörnunnar. Óskar gerir frábærlega á hægri kantinum og kemur með góðan bolta inn í teig á fjærsvæðið þar sem Stígur Diljan er mættur einn á auðum sjó.
Það héldu eflaust flestir að hann væri að fara að jafna metinn og rúlla honum þægilega framhjá Árna í markinu en hann dúndrar boltanum yfir í staðinn.
Illa farið með frábært tækifæri.
Það héldu eflaust flestir að hann væri að fara að jafna metinn og rúlla honum þægilega framhjá Árna í markinu en hann dúndrar boltanum yfir í staðinn.
Illa farið með frábært tækifæri.
22. mín
MARK!
MARK!Örvar Eggertsson (Stjarnan)
Stoðsending: Emil Atlason
Stoðsending: Emil Atlason
Frábærlega útfærð sókn hjá Stjörnumönnum
Þetta þarf ekki alltaf að vera flókið!
Emil Atla fær góðan bolta í gegn og keyrir af stað. Þá er Örvar Eggerts mættur í teiginn og öskrar á boltann. Emil rúllar honum í teiginn og Örvar klárar örugglega framhjá Ingvari.
Stjörnumenn hafa heilt yfir verið betri finnst mér og þeir leiða!

21. mín
Góðgerðaleikur
Víkingur og Stjarnan hafa ákveðið að allur ágóði af miðasölunni rennur í ferðasjóð Stjarnan/Ösp. Stór hluti hópsins er á leið á Special Olympics í Danmörku. Fallegt framtak hjá Stjörnunni og Víkingum.
13. mín
Helgi Guðjóns með hættulega sendingu fyrir markið og mér sýndist það vera Sindri Þór sem kemst fyrir hana og er næstum því búinn að setja boltann í sitt eigið net en setur boltann aftur fyrir í horn.
Víkingar ná fínum skalla úr hornspyrnunni en aldrei rauveruleg hætta.
Víkingar ná fínum skalla úr hornspyrnunni en aldrei rauveruleg hætta.
6. mín
Hvað var þetta hjá Niko?!
Nikolaj Hansen með fáranlega sendingu til baka sem Emil Atla kemst í en Ingvar Jóns var fljótur út úr markinu og nær að komast í boltann og kemur honum í burtu.
5. mín
Víkingar í dauðafæri!
Víkingar vinna boltann og keyra af stað. Stígur Diljan er kominn inn á teiginn og rennir boltanum til hliðar á Nikolaj Hansen sem nær ekki til boltans nógu vel. Hann teygir sig í boltann sem fer aftur fyrir markið.
2. mín
Gult spjald: Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
Gult spjald: Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
Fer fyrst í boltann en fylgir harkalega á eftir með takkana uppi og fer í Karl Friðleif. Rétt hjá Ella finnst mér þótt Stjörnumenn kvarta.
Fyrir leik
Allt að verða klárt
Liðin ganga til vallar og gera sig klár í slaginn, styttist í þetta.
Fyrir leik
Tveir leikir í dag hjá Víkingum - Unnu FH 3-0
Víkingur - Stjarnan er annar leikur dagsins hjá Víkingum en þeir unnu FH í æfingaleik í dag 3-0. Þeir stilltu upp öðru liði í þeim leik.
Fyrir leik
Styttist í úrslitaleikinn
Þá er undirritaður búinn að tilla sér í Miðgarðinum þegar það eru 23 mínútur í úrslitaleikinn. Hér er yngri flokkaleikur að klárast, Stjarnan er að vinna FH-inga 5-2. Gefur það einhver góð fyrirheit fyrir Garðabæjarliðið?
Fyrir leik
Vegleg verðlaun
Úrslitaleikur Bose bikarsins fer fram í Miðgarði. Leikur Stjörnunnar og Víkings mun hefjast klukkan 17:00.
Víkingur er ríkjandi meistari eftir að hafa unnið KR í úrslitaleik síðasta móts. Mótið er haldið í 14. sinn í ár og var riðlakeppnin spiluð fyrir áramót.
Tilkynning mótshaldara
Leikir mótsins hafa verið afar skemmtilegir á að horfa. Liðin hafa mætt gríðarlega vel undirbúin og sett tóninn strax í upphafi tímabilsins. Bose bikarinn hefur enn á ný sannað sig sem spennandi og mikilvægur hluti af íslenska fótboltaárinu.
Það er því sannkölluð úrslitastund þegar tvö sterk lið mætast í leik þar sem allt er undir. Áhorfendur geta búist við alvöru fótboltaveislu á laugardaginn og er stefnan á að umgjörð leiksins verði eins og um leik í Bestu deildinni sé að ræða.
Glæsileg verðlaun
Sigurvegarar Bose bikarsins fá að launum Bose S1 Pro + hátalara sem hentar vel fyrir aðstæður með allt að 150 manns og því geggjaður til þess að peppa hópinn fyrir leiki og byggja upp stemmningu.
Maður leiksins fær að launum glæsleg Bose QC ultra heyrnartól. Þau eru endurhönnuð frá grunni með nýrri tegund noise cancellation tækni sem virkar líka á hljóðneman sem gerir þau frábær á opnum vinnustöðum.
„14. ár BOSE bikarsins hefur verið afar skemmtilegt og mótið hefur þegar sannað sig sem frábær upphitun fyrir komandi keppnistímabil. Það er einnig augljóst að liðin taka mótið alvarlega og leggja mikið upp úr því að ná árangri. Ég er sérstaklega spenntur fyrir úrslitaleiknum. Þegar tvö svona sterk lið mætast myndast alltaf sérstök stemning og það er ljóst að mikið er undir," segir Ágúst Þór Gylfason sem er vörustjóri hjá Ofar.

1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth
6. Gunnar Vatnhamar
8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson
19. Óskar Borgþórsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
25. Valdimar Þór Ingimundarson
32. Gylfi Þór Sigurðsson
77. Stígur Diljan Þórðarson
- Meðalaldur 29 ár
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Valdimar Þór Ingimundarson ('27)
Óskar Borgþórsson ('63)
Rauð spjöld: