Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Vináttulandsleikur
Toronto
Vor í lofti
Haítí
Haítí
1 - 1
Ísland
Ísland
0 - 161' Gylfi Þór SigurðssonWilson Isidor 88'1 - 1
Dómari: Carly Shaw-MacLaren (Kanada)

SKÝRSLAN: Þetta átti ekki að vera fyrirsögnin

Hvað réði úrslitum?

„Gylfi skoraði sigurmarkið gegn Haítí“ hefði átt að vera fyrirsögnin eftir þennan leik en því miður þá misstum við aftur niður forystuna og fengum á okkur jöfnunarmark í lokin. Ég væri að ljúga að ykkur ef ég myndi segja að leikurinn í dag hafi verið góð skemmtun og því sleppi ég því. Ekki var mikið um færi og svekkjandi að fá ódýrt jöfnunarmark á sig í lokin. Súrt.

Bestu leikmenn

1. Gylfi Þór Sigurðsson

Flest af því góða sem var í kringum spil íslenska liðsins var í kringum Gylfa. Skoraði gott mark og minnti heldur betur á sig fyrir komandi keppnisleiki síðar á árinu.

2. Logi Tómasson

Fær þetta fyrir stoðsendinguna.

Atvikið

Leikurinn frestaðist um rúmlega klukkutíma þar sem leikmenn voru í tvígang kallaðir inn í klefa vegna varúðarráðstafana þar sem það voru eldingar í grennd við völlinn. Fyrst í upphitun og svo þegar það átti að leika þjóðsöngvana. Fíaskó.

Hvað þýða úrslitin?

Ísland fór taplaust í gegnum þennan glugga en líka sigurlaust. Er glasið hálffullt eða hálftómt? Vonandi sýna strákarnir það í komandi verkefnum að þessir tveir leikir í Kanada nýttust vel til að læra og þróast. Framtíðin verður að leiða það í ljós.

Vondur dagur

Aftur missti Ísland niður forystu, vörnin okkar leit ekki vel út í jöfnunarmarkinu í lokin. Þá talaði Arnar Gunnlaugsson um það í viðtali eftir leik að við hefðum alls ekki nýtt kantana eins og við hefðum getað gert. Það hafi skapast mörg tækifæri til þess sem ekki voru nýtt. Það er hægt að kvitta undir það.

Dómarinn - 6

Hún Carly Shaw-MacLaren var á köflum full flautuglöð að mínu mati en dæmdi þennan leik annars bara nokkuð fínt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.