Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
Mjólkurbikar karla
Miðgarður
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
Selfoss
Selfoss
Emil Atlason 47'1 - 0Emil Atlason 65'2 - 02 - 185' Einar Bjarki Einarsson
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Leik lokið!
Stjarnan heldur þetta út og er komið í 16-liða úrslit!
92. mín
Þetta hefði getað endað illa fyrir Stjörnunna!
Einar Bjarki með sendingu í teiginn sem Árni lendir í allskonar veseni með en endar í öruggum höndum!
90. mín
3mín í uppbót!
Boltinn mikið útaf og í þakinu þessar mundir
88. mín
Arnór Elí aftur að gera vel í markinu, myndaðist smá hætta fyrir framan markið en hann óð út og náði boltanum.
Selfoss
85. mín
2-1 erum við með leik??!!!

Einar Bjarki Einarsson

Frábær hornspyrna og Einar Bjarki rís úr þvögunni hæðst með GEGGJAÐAN skalla!!!!

Boltinn í miðjan teiginn og hann stýrir honum í fjærhornið!
84. mín
Selfoss aðeins að vakna.

Fá boltann fram og Elías Karl með gott hlaup reyndi að finna Viðar Örn en skallaði í hornspyrnu
80. mín
Þetta var sókn!
Frábært spil sem endar í skoti hjá Andra Rúnar sem fer í stöngina.

Arnór Elí nær svo til boltanns en fær Örvar Loga í sig sem ætlaði í seinni boltann
78. mín
Boltinn algjörlega búin að haldast í sókn hjá Stjörnunni en engar stórhættur að eiga sér stað fyrir framan markið.
Selfoss
76. mín
InnAron Darri Auðunsson
ÚtDagur Jósefsson
Fór útaf vegna krampa eða einhverskonar meiðsli
Selfoss
73. mín
InnBrynjar Bergsson
ÚtAron Lucas Vokes
Selfoss
73. mín
InnElías Karl Heiðarsson
ÚtReynir Freyr Sveinsson
72. mín
Daníel Finns með skot sem fór yfir
Stjarnan
69. mín
Gult spjald

Daníel Finns Matthíasson

Fékk verðskuldað gult fyrir brotið sitt rétt áðan
Stjarnan
69. mín
InnGuðmundur Kristjánsson
ÚtSindri Þór Ingimarsson
Stjarnan
69. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtEmil Atlason
69. mín
Reynir Freyr sækir aðra aukaspyrnu, núna á nokkuð góðum stað.

Skotið leeengst yfir markið
67. mín
Örvar Logi keyrði á Reynir sem var að hamra boltanum upp.

Aukaspyrna en sleppur við spjald
Stjarnan
65. mín
2-0!!

Emil Atlason (stoðsending: Birnir Snær Ingason)

Fínasta tvíeyki hér á ferð aftur.

Stjarnan búnir að vera með boltann í rólegheitum, Sindri átti svo langan botla fram á Birni sem tók á skarið. Köttar boltanum fyrir markið og Emil Atla að sjálfsögðu mættur á fjærstöngina
Stjarnan
61. mín
InnÖrvar Eggertsson
ÚtHaukur Örn Brink
Fínt að eiga þennan til að koma inná af bekknum
Stjarnan
61. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtSamúel Kári Friðjónsson
Selfoss
57. mín
InnEinar Bjarki Einarsson
ÚtFrosti Brynjólfsson
Frosti búin að vera hörku duglegur í dag.
Selfoss
57. mín
InnAron Fannar Birgisson
ÚtEysteinn Ernir Sverrisson
Tvöföld skipting hjá gestunum
56. mín
Samúel Kári með aukaspyrnu frá hægri kantinum sem fann ekki liðsfélaga en Stjarnan ennþá með boltann
53. mín
Hætta!
Allt í skrúfu þarna hjá vörn heimamanna Viðar Örn náði ekki almennilegu taki á boltanum með Árna Snær alveg í sér.
Boltinn endaði í hornspyrnu sem var vel gripin hjá Árni Snæ
52. mín
Selfoss að reyna færa boltann upp, Guðmundur Stefáns ekki alveg að finna samherjaí hlaupinu sínu á miðjum velli.
Stjarnan
47. mín
1-0

Emil Atlason (stoðsending: Birnir Snær Ingason)

Þeir voru ekki lengi að breyta þessu hér í seinni, búnir að vera í brasi að finna Emil Atla í nógu góðu færi með fyrirgjöfum sínum en þarna kom það!
46. mín
Seinni hálfleikur kominn af stað!
Stjarnan með eina skiptingu í hálfleik
Stjarnan
46. mín
InnIbrahim Turay
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
Selfoss
45. mín
Gult spjald

Reynir Freyr Sveinsson

Hefur farið framhjá mér, en Reynir fékk gult fyrir að ýta við Jóhanni Árna eftir brotið hans þar sem hann fékk einnig gult á 15mín
45. mín
Arnór Elí með 2 mikilvæg grip hér rétt í lok fyrri hálfleiks.

Fínasta skemmtun hér í fyrri hálfleik, en Selfoss hljóta að fara sáttari inn í klefa
45. mín
2mín í uppbót
Selfoss
45. mín
Gult spjald

Aron Lucas Vokes

42. mín
Ennþá er Frosti að gera vel, þeyttist upp hægri kantinn en skotið er auðvelt fyrir Árna Snær í markinu
41. mín
Smá bras!
Reynir í veseni að hreinsa, Arnór Elí þorir ekki að grípa boltann og náði skallanum gegn Emil Atla
39. mín
Selfoss að fá auka beint á teiginn, en aðeins of langt fyrir eitthvað skot

Lét þó vaða en aldrei hætta, boltinn niðri á grasinu og rúllar framhjá
38. mín
ÞVÍLÍK VARSLA!
Emil Atla með smá snertingu í teignum beint á Birni Snær sem á stórhættulegt skot en Arnór Elí ver það frábærlega og nær að grípa síðan boltann bakvið sig
36. mín
Árni Snær í smá brasi en hreinsar upp í stúku
35. mín
Vantar aðeins upp á að fyrirgjafir Stjörnunnar finni Emil Atla almennilega
34. mín
Viðar Örn ósáttur við Twana að fá ekki aukaspyrnu sem hefði verið á fínasta stað.

Lítið í þessu svo sem
32. mín
Aron Lucas Vokes að brjóta við miðjan völlinn, aukaspyrna heimamanna
30. mín
Fram og tilbaka hérna!

Aron Lucas með algjört klúður í stór hættulegu færi, boltinn beinustu leið upp þar sem Emil Atla kemst í fína stöðu og tekur skotið sem rennur rétt framhjá
28. mín
Flott skot
Aukaspyrna við vítateig Stjörnunnar upp á Emil Atla sem gerir vel,
Guðmundur Baldvin tekur skot rétt utan teig og það fer rétt yfir fær samskeytið
26. mín
Guðmundur Baldvin sem þurfti smá aðhlyningu en er kominn aftur inná
25. mín
Ivan Paponja með fyrirgjöf sem fór aðeins í varnarmann en Árni Snær með auðvelt grip á þessum
Selfoss
22. mín
Gult spjald

Guðmundur Stefánsson

Stoppaði skyndiáhlaup eftir hornspyrnu með smá peysutogi
20. mín
Allskonar kaos í teig gestanna. Jóhann Árni hleypti af skoti en vörnin stóð þetta af sér
18. mín
Árni Snær með mikilvægt inngrip og hamrar boltanum í burtu rétt áður en Frosti gat stolið honum
Stjarnan
15. mín
Gult spjald

Jóhann Árni Gunnarsson

Illa tímasett tækling á miðjum vellinum.

Réttilega gult og Selfoss aukaspyrna
14. mín
Fyrsta horn er Stjörnunnar

Boltinn fann Emil Atla en mjög erfiður skalli sem fór framhjá nær horninu
13. mín
Skyndisókna hjá Selfossi
Frosti vann þægilega boltann á miðjum vellinum og fann Viðar Örn í hlaupi upp hægri kantinn.
Guðmundur Stefáns síðan með skot sem fór rétt framhjá.

Fínasta skyndisókn
10. mín
Stjarnan að halda soldið í boltann um þessar mundir.
7. mín
Selfoss með fína sókn
Markspyrna sem skoppaði aftur fyrir vörnina og Frosti fann Guðmund Stefáns rétt við teiginn sem kom sér í fína skotstöðu en boltinn yfir.
5. mín
Birnir Snær klikkar á fyrsta færi leiksins

Kassaði boltann niður í teignum og fór í skot en framhjá
3. mín
Rangstæða dæmd á Emil Atla í teig Selfoss
1. mín
Tók ekki langan tíma í að boltinn fari í þakið. Daði Kolviður með hreinsun sem fór þangað
1. mín
Komið í gang
Stjarnan sparkar leiknum af stað!
Fyrir leik
Liðinn eru mætt inná.

Twana Khalid á flautunni í þessum leik
Fyrir leik
Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar:
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Það er bara flott, ágætt að menn hafi skoðun og trú á liðinu," segir Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, um spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Stjörnunni er spáð 3. sæti fyrir tímabilið.

„Ég held að það sé ekki auðvelt að átta sig nákvæmlega hvar öll liðin standa akkúrat núna en finnst þetta eðlileg spá um okkur."

Mjög ánægður með hópinn
Jökull segir að það hafi gengið vel í vetur og það hafi verið stígandi í liðinu.

„Það hefur gengið vel, það hefur verið stígandi í gegnum veturinn og takturinn í liðinu er mjög góður. Liðið hefur bætt sig og við höfum spilað nokkra mjög góða leiki. Okkur líður mjög vel með þann stað sem liðið er á," segir Jökull sem er jafnframt ánægður með leikmannahópinn eins og hann er núna.

„Ég er mjög ánægður með leikmannahópinn. Við erum ekki að skoða styrkingu fyrir mót, þó það sé auðvitað aldrei hægt að útiloka neitt en það væri ótrúlegt ef það myndi gerast. Hópurinn er sterkur og samheldinn og stemningin frábær."

Gerir okkur að sterkara liði í dag
Stjarnan endaði í 3. sæti á síðasta tímabili og segir Jökull að síðasta sumar hafi verið áhugavert.

„Síðasta tímabil var bara áhugavert og á köflum svolítið ólíkt okkur inni á vellinum," segir Jökull. „Árangurinn var mjög góður og lærdómurinn af síðasta tímabili er mikill og gerir okkur að sterkara liði í dag."

Hvernig eru markmiðin fyrir komandi sumar?

„Stutta, einfalda svarið er að við ætlum að berjast um allt sem er í boði. Ofan á það þá höldum við sterkt í það sem hefur einkennt okkar hugsunarhátt sem er að vinna agað að því að verða betri sem einstaklingar og sem lið á öllum sviðum."

„Liðið mun spila af ástríðu í sumar og mun gera allt sem það getur til að kveikja í stuðningsfólkinu okkar. Það verður alvöru stemmning á Samsung vellinum og ef okkur tekst að kveikja í fólkinu okkar þá verður þetta eftirminnilegt ár í Garðabæ!" sagði Jökull að lokum.
Fyrir leik
Birnir Snær Ingason er meðal byrjunarliðsmanna Stjörnunnar
Stjarnan
Komnir
Birnir Snær Ingason frá KA
Darri Bergmann Gylfason frá Augnabliki
Gustav Kjeldsen frá Vestra
Sveinn Sigurður Jóhannesson frá Val

Farnir
Adolf Daði Birgisson í FH
Steven Caulker hættur og farinn til Tyrklands
Þorlákur Breki Baxter til Keflavíkur (var á láni hjá ÍBV)
Baldur Logi Guðlaugsson til Keflavíkur
Sigurður Gunnar Jónsson í HK (lán)
Andri Adolphsson hættur
Aron Dagur Birnuson í Þrótt R. (á láni)
Tristan Freyr Ingólfsson í Gróttu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn
Viðar Örn Kjartansson er í byrjunarliði Selfyssinga en Jón Daði Böðvarsson er ekki með Selfossi og er skráður í liðsstjórn.

Óli Stefan Flóventsson stýrir Selfossi en hann tók við í vetur.

Mynd: Selfoss

Fyrir leik
Gestirnir
Selfyssingar koma í þennan leik með 7-1 sigur á Augnablik á bakinu úr fyrri umferð Mjólkurbikarsins. Þeirra deild mun þó ekki hefjast fyrr en í byrjun Maí, en eftir að þeir féllu úr Lengjudeildinni í fyrra munu þeir spila í 2.deild og markmiðin eflaust sett hátt fyrir komandi tímabil.

Fyrir leik
Stjarnan
Bestu deildar lið Stjörnunnar fær skemmtilegt verkefni í Mjólkurbikarnum í dag. Garðbæingar þurftu að sætta sig við 3.sætið í deildinni í fyrra og spámenn okkar spá endurtekningu á tímabilinu sem fer að hefjast.

Fyrir leik
Gleðilegan Páskadag!
Stjarnan tekur á móti Selfossi í dag.

Bein textalýsing frá 32-liða úrslitum í Miðgarði.

Leikurinn hefst 15:00
Mynd: Aðsend

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.