SKÝRSLAN: Risastórt atvik í uppbótartíma á Víkingsvelli
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var heilt yfir lokaður, ekki mikið um opin færi. Breiðablik nýtti sitt eina eiginlega færi í leiknum og mér fannst þeirra nálgun, að vera með þrjá miðverði aftast og reyna vera þéttir til baka, ganga mjög vel upp. Víkingar lágu á Blikum án þess að skapa margar opnanir og þurftu gjöf til að jafna. Í restina voru samt Blikarnir stálheppnir. Það var góð stemning í Víkinni, uppselt, fallegt veður (en kalt) og geggjað að veislan sé farin af stað.
Bestu leikmenn
1. Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur)
Fannst hann besti leikmaður Víkings í dag, lagði upp dauðafærið fyrir Nikolaj sem átti að skora og skoraði jöfnunarmarkið. Fannst hann ekki frábær í fyrri hálfleik en mjög góður í seinni.
2. Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
Gerir mjög vel í marki Breiðabliks, góð sending inn á teiginn. Ágúst var duglegur í pressunni og jákvætt fyrir hann, sem er á blaði erlendra félaga, að koma að marki strax í fyrsta leik. Það var eitthvað sem vantaði kannski upp á í hans leik.
Atvikið
Víkingar vildu fá vítaspyrnu í uppbótartíma. Það hefði verið algjört dauðafæri fyrir Víkinga til að taka öll stigin.
Hvað þýða úrslitin?
Stig á hvort lið, betra stig fyrir Breiðablik myndi maður halda eftir styttra og kannski minna sannfærandi undirbúningstímabl. Næsta umferð næsta föstudag, Blikar fá Skagamenn í heimsókn og Víkingar fara til Akureyrar og mæta KA.
Vondur dagur
Anton Ari Einarsson gefur mark í seinni hálfleik og Víkingar ná með því að jafna leikinn. Fyrir utan það átti hann mjög góðan leik, svekkjandi fyrir kappann. Oliver Ekroth leit þá alls ekki vel út í marki Breiðabliks, einhver misskilningur aftast hjá heimamönnum.
Dómarinn - 4
Vilhjálmur Alvar átti að dæma vítaspyrnu í uppbótartíma, boltinn fer í hönd Ásgeirs Helga inn á vítateig Breiðabliks og boltinn var á leið inn á markteiginn. Það átti klárlega að vera víti. Mér fannst skrítið að Oliver Ekroth fékk ekki gult fyrir að fara harkalega í Óla Val úti við hliðarlínu sem var gjörsamlega tilgangslaust návígi. Heilt yfir í leiknum fannst mér Vilhjálmur gera vel að dæma sjaldan og leyfði leiknum að fljóta. En vítadómur sem hefði getað breytt úrslitunum, það vegur þungt.




