Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
Í BEINNI
Undankeppni HM kvenna
Ísland
79' 1
0
Úkraína
Ísland
1
0
Úkraína
Alexandra Jóhannsdóttir '47 1-0
14.04.2026  -  18:30
Laugardalsvöllur
Undankeppni HM kvenna
Aðstæður: Rigning og sjö stiga hiti
Dómari: Shona Shukrula (NED)
Byrjunarlið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen ('66)
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('73)
16. Hildur Antonsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
20. Thelma Karen Pálmadóttir ('66)
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Arna Eiríksdóttir
5. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir ('73)
7. Katla Tryggvadóttir
9. Diljá Ýr Zomers
11. Birta Georgsdóttir
14. Hlín Eiríksdóttir ('66)
15. María Catharina Ólafsd. Gros
17. Ída Marín Hermannsdóttir
21. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
22. Linda Líf Boama ('66)

Liðsstjórn:
Þorsteinn Halldórsson (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
79. mín
Petryk tekur horn fyrir gestina en Glódís stekkur manna hæst og kemur þessu frá
78. mín
Myndir af markinu
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

76. mín
Hlín nær fínustu fyrirgjöf á Sveindísi sem nær ekki að setja hann almennilega, boltinn berst út á Sædísi sem ætlar að þruma honum á markið en skýtur í varnarmann
75. mín
Hætta hérna Korsun setur Boychuk eina í gegn en flaggið fer réttilega á loft!
73. mín
Inn:Emilía Kiær Ásgeirsdóttir (Ísland) Út:Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Ísland)
71. mín
Inn:Yelyzaveta Molodiuk (Úkraína) Út:Lidiia Zaborovets (Úkraína)
71. mín
Inn:Tanya Boychuk (Úkraína) Út:Yana Kalinina (Úkraína)
Boychuk ætti að vera öllum hnútum kunn hérna í Laugardalnum en hún spilaði með Þrótti árið 2023
70. mín
Sveindís með ágætis tilraun, fær fínasta bolta frá Karólínu Leu en boltinn aðeins of laus
67. mín
Fyrsti landsleikurinn hjá Lindu Líf
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

66. mín
Inn:Hlín Eiríksdóttir (Ísland) Út:Thelma Karen Pálmadóttir (Ísland)
66. mín
Inn:Linda Líf Boama (Ísland) Út:Sandra María Jessen (Ísland)
64. mín
Inn:Kateryna Samson (Úkraína) Út:Daria Keliushyk (Úkraína)
64. mín
SKIPTING Hún er komin hér inn á bekkinn, þær eru að fara skipta henni út?!?! Þetta er svakalegt, hún er búin að vera að verja eins og maskína
61. mín
Hún virðist hafa fengið högg á andlitið í vörslunni og fær hér aðhlynningu
60. mín
Karólína Lea, tekur hornið, stórhættulegur bolti en Keliushyk er að eiga stórleik í markinu, hendir sér á boltann og kýlir hann frá
60. mín
Sveindís reynir fyrirgjöf en Korsun nær að koma sér fyrir, horn!
58. mín
Thelma þeysist upp með boltann, klárlega brotið á henni en dómarinn vill meina að hún sé að fá hagnað...þetta var skrítð
56. mín
Útlandarigning Það svoleiðis er eins og hellt úr fötu hérna á vellinum núna!

Völlurinn má eiginlega ekki við þessu, hann lítur svolítið út eins og bara neðri deildarvöllur á Englandi...
55. mín
OJ OJ OJ Karólína tekur aukaspyrnuna, margir virðast ætæa að reyna við boltann en enginn nær honum, hann syngur samt í fjærstönginni, þessi hefði alveg mátt bara liggja inni!
54. mín
Olkhova rífur Söndru Maríu niður og fær gott tiltal frá dómaranum, sleppur þó við spjaldið
53. mín
Alexandra er staðin upp og gengur hér á hliðarlínunni reiðubúin að koma aftur inn á sem betur fer
52. mín
Þær liggja tvær eftir óvígar, Alexandra hoppar upp í skalla og þær skalla saman
51. mín
Karólína Lea tekur hornspyrnu en Kalinina skallar frá
49. mín
ÚFFF Þarna munaði hársbreidd að Sveindís setti annað mark en skallinn frá henni rétt framhjá
47. mín MARK!
Alexandra Jóhannsdóttir (Ísland)
Stoðsending: Glódís Perla Viggósdóttir
JÁ JÁ JÁ! Þarna kom að þessu! Sveindís með langt innkast, Glódís flikkar boltanum áfram og Alexandra skallar þetta inn af öryggi
46. mín
Karólína sparkar seinni hálfleiknum aftur á stað
45. mín
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

45. mín
Hálfleikur
0-0 í hálfleik!

Þetta hefur verið fínasti leikur, stelpurnar okkar hafa haft yfirhöndina í leiknum og átt mun fleiri og hættulegri færi.

Ég skil hins vegar að þær Úkraínsku hafi náð að setja mörk gegn bæði Englandi og Spáni þær eru svakalega fljótar í transitioni og að refsa

Markið hefur legið í loftinu hjá stelpunum okkar og ég á ekki von á öðru en að þær setji mark í seinni hálfleik!

45. mín
Þetta svoleiðis liggur í loftinu! Glódís er mætt í baráttuna inn í teignum
45. mín
uppbótatími a.m.k. 2 mínútur
45. mín
Úffff Sandra María nær fyrirgjöf sem Sveindís er í en rennur svo útaf eftir viðkomu í varnarmann
44. mín
Glódís á enn og aftur í baráttu við Keliushyk í markinu sem handsamar boltann en liggur svo eftir
43. mín
Ahhhh Sveindís á langt innkast, hittir á Söndru Maríu, boltinn berst svo tilo Thelmu sem ætlar svoleiðis að þruma honum á markið í fyrsta en hittir ekki boltann, sú hefði smellthitt á markið ef hún hefði hitt boltann
41. mín
Sveindís á háan bolta fyrir á Söndru Maríu sem á skalla beint í hendina á Petryk sýnist mér en hornið dæmt, dómarinn alveg viss í sinni sök
40. mín
Flottir taktar hjá Thelmu, nær að koma boltanum fyrir en gestirnir eru vel á verði og eru fyrsta á boltann
38. mín
Kravchuk fær boltann inn fyrir vörn stelpnanna, Glódís er eiginlega búin að missa hana frá sér þegar Cecilía mætir og hreinsar. Þær e4ru ótrúlega fljótar að átta sig og keyra fram
36. mín
Guðrún Arnardóttir gerir ótrúlega vel, hleypur Ovdiychuk uppi og tæklar svo boltann útaf og bægir hættunni frá
33. mín
Úfffff Karólína leikur listir sínar og platar varnarmann Úkraínu upp úr skónum, setur hann svo þéttingsfast fyrir markið, Sandra María lætur hann fara og Sveindís ætlar að stíga manninn út og þruma honum á markið en tekst ekki í þetta skiptið... Þetta hlýtur að fara að detta!
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Sveijdís keyrir upp völlinn, reynir skot en mætir þar þéttum varnarpakka og boltinn berst að endingu til Keliushyk í markinu sem pikkar hann upp
29. mín
Zaborovets nær skalla á markið en Cecilía ver vel
28. mín
Þær Úkraínsku er stórhættulegar þegar þær komast á skrið, Ovdiychuk nær hættulegri fyrirgjöf,
24. mín
Þetta liggur í loftinu Glódís finnur Söndru Maríu í löngum bolta fram, sú er í kapphlaupi sem endar með því að Keliushyk er komin útúr teignum til að mæta o skallar boltann frá.
23. mín
Hildur reynir stungu inn á Karólínu sem hefði sett hana í geggjaða stöðu en aðeins of föst sending
23. mín
Karólína tekur horn er að ná að finna Sveindísi en aftur er Keliushyk mætt og kýlir boltann í burtu
22. mín
jeeeeesús Keliushyk er aldeilis mætt í stuði! Glódís nær geggjuðum skalla á markið en sú fyrrnefnda ver þetta fáránlega vel
21. mín
Sandra María nær frábærum skalla sem Keliushyk þarf að hafa sig alla við að verja!!
19. mín
Cecelíaaaaaaaaaaa Kravchuk kemst inn í sendingu bara upp við miðjuboga, er aleeeeeeeeein og á ekki eftir að gera neitt nema leggja boltann framhjá Cessu í markinu en sú ver þetta vel! Kemur algjörlega óhrædd á móti
18. mín
Thelmaaaaa Thelma er að byrja þetta af miklum krafti!
Reynir skot á fjær en það er framhjá
17. mín
Okeiiii Thelma með frábæra fyrirgjöf fyrir teiginn þar kemur Sandra María askvaðandi en hittir ekki boltann nægilega vel
15. mín
Myndir frá leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson



Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

13. mín
Kotyk brýtur á Söndru Maríu, Guðrún og Karólína taka þetta stutt
10. mín
ÚFFFF Sveindís með risa innkast á teiginn, darraðardans í teignum sem endar rétt framhjá, þarna mátti ekki miklu muna
10. mín
Það er greinilegt að Úkraínukonur ætla að sitja neðarlega á vellinum og vonanst eftir hröðum skyndisóknum
8. mín
Kotys tekur aukaspynru við vítateigahornið setur hann fyrir, boltinn berst svo út á Zaborovets sem reynir skot, boltinn berst svo á Kalinina sem á lúmskt skot á nærhornið en rétt framhjá
7. mín
Úffff þarna var smá einbeitingsleysi í íslensku vörninni, þær stíga allar upp en markmaður Úkraínu Keliushyk setur hann hratt fram og yfir þær allr, Sædís Rún endar í eltingaleik við Kalinina sem nær semi skoti semi fyrirgjöf á markið en sem betur fer rúllar þetta framhjá
5. mín
Fínasta tilraun, Sædís Rún setur hann fyrir og finnur Söndru Maríu sem setur hann í fyrsta en boltinn bæði yfir og framhjá en ágætis tilraun samt sem áður
4. mín
Sandra María nær skalla að markinu en framhjá
3. mín
Ágætis sókn hjá stelpunum okkar skipta kantana á milli sem senda með að Guðrún setur boltinn upp ó horn á Thelmu en hún á í baráttu við Shaynuk og boltinn útaf.
1. mín
Leikur hafinn
Kalinina sparkar þessu af stað fyrir gestina
Fyrir leik
Styttist Hér er ekkert til fyrirstöðu að við fáum frábæran leik.
Völlurinn er blautur og það er bjart og logn.

Bara eins og eeeeeekta íslenskur sumardagur!

Við eigum von á góðu ég finn það á mér...
baráttuleikur af gamla skólanum
Fyrir leik
Glódís jafnar leikjametið Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins, mun í kvöld jafna leikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og verða þær jafnar með 145 spilaða landsleiki.

„Ég er alveg búin að vita af þessu í smá tíma, maður getur ekki flýtt fyrir þessu, gerist bara þegar þetta gerist. Það hafa mörg ár liðið síðan ég kom fyrst inn í landsliðið og margt sem hefur gerst. Þetta er bara gaman og vonandi er alveg slatti eftir," sagði Glódís á fréttamannafundi í gær.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
Linda gæti tekið þátt í leiknum Linda Líf Boama er nýliði í hópnum og kemur framherjinn heit inn í landsliðsverkefnið eftir að hafa byrjað tímabilið frábærlega með Kristianstad í Svíþjóð. Gæti hún tekið þátt í leiknum?

„Það gæti allt eins verið, það kemur allt í ljós. Auðvitað skiptir máli að leikmanninum líði vel á vellinum og líði vel þegar hann kemur hingað, komi með jákvæða strauma og jákvæða líðan. Hún er alveg eins líkleg til að taka eitthvað þátt í leiknum."

Mynd: KSÍ
Fyrir leik
Þess má geta að Thelma Karen var í byrjunarliði í fyrsta sinn í Bestu deildinni fyrir tæpum tveimur árum og núna er hún mætt í byrjunarlið landsliðsins í gríðarlega mikilvægum leik tveimur árum síðar.

Fyrir leik
Svona stillum við upp
Mynd: Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fyrir leik
Thelma Karen byrjar í fyrsta sinn
Mynd: KSÍ
Fyrir leik
Svona er byrjunarlið Íslands 1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
16. Hildur Antonsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
20. Thelma Karen Pálmadóttir
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
Fyrir leik
Fyrri viðureignir Ísland og Úkraína hafa mæst 7x í gegnum árin.

Ísland hefur sigrað 4x
Úkraína 2x
Í eitt skiptið skildu liðin jöfn 2-2

Liðin mættust síðast í vináttulandsleik árið 2020 þar sem Ísland fór með sigur af hólmi 0-1

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Shona úr hollensku sögubókunum
Mynd: EPA

Dómarateymið í kvöld kemur að mestu frá Hollandi. Shona Shukrula er aðaldómari en hún afrekaði það 2024 að vera fyrsta konan til að dæma atvinnumannaleik í karlaflokki í hollenska boltanum. Löndur hennar Isabelle van Gilst aðstoðardómari og Marisca Overtoom fjórði dómari eru einnig í teyminu en hinn aðstoðardómarinn kemur frá Austurríki og heitir Amina Gutschi.
Fyrir leik
Af hverju er þessi leikur svona mikilvægur? Fyrirkomulagið í undankeppninni er þannig að efsta liðið í riðlinum fer beint í lokakeppni HM en hin liðin þrjú fara í umspil. Öll liðin í riðlinum eru í A-deild Þjóðadeildarinnar og hafa því þannig unnið sér inn þátttökurétt í umspili.

Það eru talsvert miklar líkur á því að Ísland fari í umspilið þar sem riðillinn er það erfiður. Í umspilinu verður barist um sjö laus sæti í lokamótinu.

Umspilið skiptist í tvær umferðir og verður leikið heima og að heiman í báðum umferðum.

Liðin sem enda í öðru og þriðja sæti í riðlinum sínum í A-deild fara í leið eitt og byrja á því að mæta liðum úr C-deild í fyrstu umferð. Liðin sem enda í fjórða sæti í riðlunum í A-deild fara í leið tvö og byrja á því að mæta liðum úr B-deild.

Sextán lið komast áfram úr umferð eitt og mætast svo. Liðin úr leið eitt dragast gegn liðum úr leið tvö. Það er því mjög mikilvægt að enda í öðru eða þriðja sæti í riðlinum til að eiga betri möguleika á að komast í lokakeppnina. Segja má að helsta barátta Íslands í riðlinum sé gegn Úkraínu og það eru leikir sem við verðum að byrja á því að vinna.

Það munu átta lið standa uppi sem sigurvegarar í umspilinu en þau sjö lið enduðu með bestan árangur í heildartöflu undankeppninnar komast inn á lokakeppnina. Áttunda sigurliðið í umspilinu, sem var með lakastan árangur í undankeppninni, fer í annað umspil á móti þjóðum úr öðrum heimsálfum.

Leikirnir gegn Úkraínu verða hins vegar risastórir upp á það að eiga sem bestan möguleika á að komast í lokakeppni HM. Það er nefnilega, eins og áður kemur fram, mjög mikilvægt að stelpurnar okkar endi í að minnsta kosti þriðja sæti riðilsins.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
Eru án stiga Stelpurnar okkar eru án stiga eftir fyrstu leiki riðilsins, útileiki gegn Englandi og Spáni sem eru tvö af sterkustu landsliðum heims. Úkraína er einnig án stiga eftir leiki gegn sömu liðum.

Mynd: EPA
Fyrir leik
Velkomin! Verið velkomnir kæru lesendur! Framundan er afar mikilvægur leikur hjá íslenska kvennalandsliðinu. Stelpurnar okkar mæta Úkraínu í þriðja leik sínum í undankeppni HM.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Byrjunarlið:
12. Daria Keliushyk (m) ('64)
3. Anna Petryk
4. Yana Kotyk
7. Yana Kalinina ('71)
8. Maryna Shaynyuk
13. Lidiia Zaborovets ('71)
15. Nadiia Kunina
16. Olha Ovdiychuk
18. Kateryna Korsun
19. Roksolana Kravchuk
21. Lesia Olkhova

Varamenn:
1. Kateryna Boklach (m)
23. Kateryna Samson (m) ('64)
2. Iryna Podolska
5. Veronika Andrukhiv
6. Daiana Semkiv
9. Tanya Boychuk ('71)
10. Viktoriia Radionova
11. Yelyzaveta Molodiuk ('71)
14. Iryna Kotiash
17. Daryna Apanaschenko
20. Inna Hlushchenko
22. Olha Basanska

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: