Fotbolti.net
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild karla
Kórinn
HK
HK
4 - 1
Grótta
Grótta
0 - 130' Jónatan Ari BragasonTumi Þorvarsson 42'1 - 1Karl Ágúst Karlsson 53'2 - 1Dominik Radic 67'3 - 1Jóhann Þór Arnarsson 82'4 - 1
Dómari: Elías Ingi Árnason
Leik lokið!
Elías flautar hér leikinn af og HK sigra hér sannfærandi gegn Gróttu.

Viðtöl og skýrla koma inn sienni í kvöld, eigið áfram góða helgi og takk fyrir mig!
91. mín
Björgvin Brimi hjá Grótta á flott skot á markið sem Ólafur gerir vel í að verja. Grótta fær horn.

Ólafur grípur boltann beint frá horninu.
87. mín
Dagur Bjarka rennur sér á boltann en tekur Svavar Örn með sér sem liggur niðri. Hann hoppa hér á einum fæti útaf á meðan það er verið að skoða hann.
HK
82. mín
Faglega gert þarna!

Jóhann Þór Arnarsson

Jóhann hleypur einn upp vinstri kantinn með mann á sér. Hann kemmst að teignum og sér að Guðmundur í markinu er skríngilega staðsettur og rennur boltanum frá vinstri kanti, kavið Guðmund og inn í mark.
HK
81. mín
InnRóbert Quental Árnason
ÚtTumi Þorvarsson
Grótta
77. mín
InnViktor Orri Guðmundsson
ÚtKristófer Dan Þórðarson
Grótta
73. mín
Gult spjald

Elmar Freyr Hauksson

Gult spjald eftir að hafa verið inná í tvær mínútum
73. mín
Matías Kjeld með auakspyrnu inn í teig sem Ólafur nær að grípa.
HK
72. mín
Gult spjald

Tumi Þorvarsson

HK
72. mín
Gult spjald

Aron Kristófer Lárusson

HK
71. mín
InnHaukur Leifur Eiríksson
ÚtKarl Ágúst Karlsson
HK
71. mín
InnJóhann Þór Arnarsson
ÚtÞorsteinn Aron Antonsson
Grótta
71. mín
InnElmar Freyr Hauksson
ÚtAndri Freyr Jónasson
Grótta
71. mín
InnAlexander Emil Stefánsson
ÚtTristan Freyr Ingólfsson
Grótta
71. mín
InnBjörgvin Brimi Andrésson
ÚtEinar Tómas Sveinbjarnarson
HK
67. mín
Komnir tvem mörkum yfir!

Dominik Radic (stoðsending: Atli Hrafn Andrason)

Markið kemur beint frá hornspyrnu. Atli Hrafn stendur beint fyrir frmana markið með boltann og reynir skot. Varnamaður Gróttu kemur fyrir skotinu en boltinn fer aftur á Atla. Atli ákveður að senda boltann til vinstri á Radic sem er alveg opinn og kemur boltanum inn í netið.
64. mín
Þvílík varsla!
Tristan Freyr skallar boltanum á markið frá stuttu fær eftir fyrirgjöf inn í teig. Ólafur er þó með frábæra vörslu og nær einhvern vegin að bjarga þessu frá því að fara inn í mark.
HK
62. mín
InnAtli Þór Gunnarsson
ÚtMagnús Arnar Pétursson
60. mín
Grótta fær aukaspyrnu
Kristófer með sendingu inn á teigin sem Ólafur í marki HK nær að grípa.
59. mín
Andri Freyr hjá Grótta með skot sem endar rétt frmahjá. Elías dæmir honr fyrir Gróttu, sá samt ekki hvern boltinn snerti í leiðinni útaf.
Grótta
58. mín
InnElmar Freyr Hauksson
ÚtGrímur Ingi Jakobsson
HK
53. mín
Óvænt mark!

Karl Ágúst Karlsson

Grótta búnir að sækja mikið seinustu mínútur á mark HK, en HK á hér fína sókn sem endar á Karl Ágúst kemur boltanum framhjá Guðmundi, Karl að skora sitt annað mark í dag og koma HKingu yfir í fyrsta sinn í þessum leik!
52. mín
Grótta eiga hornspyrnu
Grótta með tvö skot í teignum sem varnamenn HK ná að koma sér fyrir.
Grótta
51. mín
Gult spjald

Caden Robert McLagan

Stendur fyrir Ólafi í markinu þegar hann tekur útspark.
50. mín
Grótta með aukaspyrnu
Tristan Freyr tekur spyrnuna og skýtur á markið. Ólafur nær að verja skotið.
49. mín
Sigurður Gunnar tæklar Kristófer Dan niður eftir að hann er kominn einn í gegn. Elías gefur Sigurði aðeins gult og bæði Kristófer og stuðningsmenn Grótta eru brjálaðir að Sigurður hafi ekki fengið rautt spjald þarna.
HK
49. mín
Gult spjald

Sigurður Gunnar Jónsson

47. mín
HK vinnur hornspyrnu
Ívar Örn skallar boltanum yfir markið.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Kristófer Dan hjá Gróttu sparkar leiknum aftur í gang!
45. mín
Hálfleikur
Jafn og spennadi leikur hér á ferð. Sjáumst eftir 15 mínútur.
HK
42. mín
HAAAA?!?

Tumi Þorvarsson

Þvílikt mark frá Tuma þarna. Hann hleypur upp hægri kantinn og er kominn að stönginnu á línunni og ég hélt að hann hafði misst boltann útaf. Hann er með mann í sér en tekur skot alveg við línunna sem kemst einhvern vegin inn í markið. Alveg ótrúlegt mark sem hann gerði alveg sjálfur.
41. mín
HK fær hornspyrnu
Ekkert gerist í þessu horni.
41. mín
Dominik Radic hjá HK á skot á markið sem Guðmundur ver vel. Radic fær boltann aftur og reynir sot. Varnamaður Gróttu kemur fyrir skotið og HK fær horn.
Grótta
38. mín
Gult spjald

Grímur Ingi Jakobsson

Mjög ódýrt spjald sem ég held að hann hafi fengið fyrir að sparka bolta útaf sem var úr leik.
36. mín
Mattías Kjeld með skot fyrir utan teig sem endar langt yfir markið.
35. mín
Grótta eiga aukaspyrnu stutt fyrir utan teig
Kristófer leggur botlann fyrir Einari sem á skot á markið. Boltinn fer í leikmann HK og Grótta fá horn.
33. mín
Mikil læti hérna í Kórnum
HKingar eiga skot á mark sem Guðmundur gerir mjög vel í að verja. Svo á Jónatan tæklingu á leikmann HKinga inn í teignum en Elías telur það hafa verið boltinn. HK stuðningsmenn ekki sáttir með sú ákvörðun.
32. mín
Grímur tekur niður Þorstein Aron inn ít eignum eftir að HK tekur hornspyrnu. Þetta geta alveg hafa verið víti í mínum bókum, en Elías sér ekkert í þessu
Grótta
30. mín
Þvílikt mark!

Jónatan Ari Bragason (stoðsending: Caden Robert McLagan)

Markið kemur beint frá honspyrnunni. Boltinn endar á Caden McLagan sem sendir boltann áfram á Jónatan Ára sem er alveg opið færi og lætur vaða á markið.

Mjög flott spil þarna hjá Gróttu!
29. mín
Grótta á hornspyrnu
24. mín
HK vinnur hornspyrnu
Boltinn nær inn í teigin en Elías virðist dæma brot inn í teig eftir að hornið er tekið.
20. mín
Mattías Kjeld hjá Gróttu fékk fastan bolta frá stuttu færi beint í andlitið og Elías dómari stoppar hér leikinn.

Mattías virðist vera í góðu lagi og er tekinn til hliðar í smá stund meðan hann nær sér.
18. mín
HK vinnur horn
Hornið tekið stutt á Ívar Örn sem kemur boltanum á Aron Kristófer sem stendur fyrir utan teig. Aron tekur lágt skot sem endar rétt framhjá markinu.
17. mín
Grímur Ingi tekur auakspyrnu fyrir Gróttu á vallarhelming HK. Spyrnan nær inn í teig en Ólafur grípur boltann í loftinu.
16. mín
Andri Freyr hjá Gróttu skýtur á markið, en varnamaður HKinga nær að koma fyrir skotið. Það eru alvöru senur hérna fyrsta korterið í þessum leik!
15. mín
Tristan með lága fyrirgjö inn í teig HKinga, en Ólafur tekur á móti snedingunni.
14. mín
Dagur Bjarka með flotta fyrirgjöf inn í teig HK sem Kristófer Dan reynir að skalla inn í mark en Ólafur í marki HK nær að grípa boltann.
10. mín
Tumi með svakalega sprett upp að teignum fyrir HK og reynir skoti á markið. Guðmundur er þó tilbúin og ver skotið vel.
9. mín
Andri Freyr með skot fyrir Gróttu sem endar rétt framhjá markinu.
3. mín
VÁÁ
Tumi fyrir HK á skot á mark sem Guðmundur ver. Boltinn endar aftur á Tuma sem er við stöngina og reynir að renna boltanum inn í markið, en boltinn endar í gengum allan teigin. Leit í smá stund eins og boltinn væri á leiðinni inn í mark þarna!
1. mín
Grímur Ingi með skot fyrir Gróttu sem Ólafur fer létt með að grípa
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn sparka þessu í gang!
Fyrir leik
Halli Hróðmars spáir í 1 umferð
Haraldur Árni Hróðmarsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur, spáir í leikina sem eru framundan. Haraldur býst við markamiklum jöfnunarleik hér í Kórnum.

HK 2 - 2 Grótta
HK hefur lekið mörkum í allan vetur og Grótta nær í sterkt stig í Kórnum.
Fyrir leik
Dómarateymið
Aðaldómari leiksins er Elías Ingi Árnason. Með honum til aðstoðar eru Guðni Freyr Ingason og Ragnar Arelíus Sveinsson. Eftirlitsmaður leiksins frá KSÍ er Ásgrímur Helgi Einarsson.
Fyrir leik
Komnir/farnir
HK
Komnir
Svavar Örn Þórðarson frá Njarðvík
Sigurður Gunnar Jónsson frá Stjörnunni á láni
Dominik Radic frá Njarðvík
Atli Hrafn Andrason frá KR
Róbert Quental Árnason frá Leikni

Farnir
Atli Arnarson hættur
Dagur Orri Garðarsson í Val (var á láni frá Stjörnunni)
Eiður Atli Rúnarsson í ÍBV
Kristján Snær Frostason í FH
Bart Kooistra í Aftureldingu
Marten Leon Jóhannsson til Bröndby
Hákon Ingi Jónsson
Rúrik Gunnarsson í Leikni (var á láni hjá Grindavík)
Kári Gautason í KA (var á láni)

Grótta
Komnir
Nökkvi Már Nökkvason frá ÍBV
Emil Skúli Einarsson frá Þrótti R.
Guðmundur Rafn Ingason frá KFG
Jónatan Ari Bragason frá Leikni
Tristan Freyr Ingólfsson frá Stjörnunni
Andri Freyr Jónasson alfarið frá Aftureldingu (var á láni)
Mattías Kjeld frá Val

Farnir
Pétur Theódór Árnason hættur
Marvin Darri Steinarsson í Vestra
Marciano Aziz til Þýskalands
Þórður Sveinn Einarsson í Val (var á láni)
Kristófer Melsted í Kríu
Fyrir leik
Styttist í leikinn
Áhugavert að sjá hérna í upphitun að Grótta eru að fara spila í bláum treyjum og hvítum buxum, sem er ekki skrítið. En HK æfa hér í bláum buxum og virðist vera að fara spila í rauðri treyju og bláum buxum, sem er alveg frekar ruglingslegt. Vonandi á þetta ekki eftir að rugla fólk þegar leikurinn hefst.
Fyrir leik
Smá skemmtun fyrir upphitun
Lengjudeildin hefur aldrei verið öflugri og fékk hún stóra sviðið í útvarpsþættinum á X977. Þátturinn er kominn á allar veitur og í spilarann á .Net:

Fyrir leik
Grótta spáð í 10. sæti
Þjálfarrar og fyrirliðar liða í Lengjudeildinni spáðu í spilunum fyrir deildina í ár. Samkvæmt þeirra spá endar Grótta í 10. sæti.

Seltirningar stoppuðu ekki lengi í 2. deild, voru bara þeir í eitt ár og eru komnir aftur upp í Lengjudeildina. Grótta fór í uppbyggingu við fallið úr Lengjudeildinni sumarið 2024 og voru lengi í gang í 2. deild í fyrra. Þegar þeir komust hins vegar í gang, þá voru þeir illviðráðanlegir og þeir enduðu mótið frábærlega. Það réðist í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni hvort Grótta færi upp eða Þróttur Vogum og þar voru Gróttumenn sterkari á svellinu, unnu 2-0 sigur þar sem Andri Freyr Jónasson og Kristófer Dan Þórðarson skoruðu mörkin. Síðast þegar Grótta lék í Lengjudeildinni þá skítféllu þeir en ef þessi spá rætist þá halda þeir sér uppi í sumar og það er klárlega eitthvað sem stefnt er að á Seltjarnarnesinu.

Fyrir leik
HK spáð 5. sæti
Þjálfarrar og fyrirliðar liða í Lengjudeildinni spáðu í spilunum fyrir deildina í ár. Samkvæmt þeirra spá endar HK í 5. sæti.

HK fer inn í Lengjudeildina þetta sumarið með skýran metnað eftir að hafa farið alla leið í úrslit umspilsins í fyrra, þar sem draumurinn um sæti í efstu deild rann þeim úr greipum á lokametrunum. Þeir áttu ekki mikinn möguleika í Keflavík í úrslitaleiknum og urðu að gera sér það að góðu að vera áfram í næst efstu deild. Það var þó tímabil sem sýndi að liðið hefur burði til að komast upp og væntingarnar eru því eðlilega til staðar. HK er spáð 5. sæti, sem setur þá í hóp þeirra liða sem gætu hæglega blandað sér í toppbaráttuna. Breytingar hafa orðið fyrir tímabilið, þar sem nýr þjálfari hefur tekið við keflinu. Áfram er það þó Eyjamaður sem stýrir skútunni og því má gera ráð fyrir því að það verði mikil stemning í Kórnum í sumar. Ef HK nær að byggja ofan á það sem gekk vel í fyrra og bæta enn frekar ofan á það, þá er alls ekki ólíklegt að þeir verði í Bestu deildinni að ári.

Fyrir leik
'Besta' deildin er hafin!
Góða dagin gott fólk og verið hjartanlega velkomin á þessa beina textalýsingur frá Kórnum þar sem HK býður nýliðum Gróttu velkomin. Lengjudeildin er nú loksins hafin, einhverjir meina það vera besta deildin á Íslandi. Deildin hóf með látum í gær þar sem 14 mörk voruð skoruð í aðeins tvem leikjum. Ég væri alls ekki á móti því að fá marka leik hér í dag!

Leikurinn hefst kl. 16:00.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.