Leik lokið!
1 - 1
90. mín
Fjör
Bæði lið reyna að ná sigurmarki. Karen komst í gegnum vörn FH en boltinn framhjá
90. mín
InnAníta Ingvarsdóttir
ÚtElísa Bríet Björnsdóttir
90. mín
Markið
Mark Þórs / KA kom upp úr þurru. Aldís hélt að boltinn væri á leið framhjá.
90. mín
Tilraun
Ída Marín reynir skot en yfir.
90. mín
Jöfnunarmark
Erin Flurey
800 hundraðasta mark Þórs/KA í efstu deild og fyrsta mark sumarsins og fyrsta mark þeirra á nýjum velli skorar Erin eftir að Katla María rennur á vellinum og dettur og missir boltann fyrir fætur Erin.87. mín
Horn
Þór/KA fær horn frá vinstri og boltinn berst að markinu þar sem Aldís ræður ríkjum.
84. mín
InnAgnes Birta Stefánsdóttir
ÚtArna Sif Ásgrímsdóttir
Tvöföld skipting hjá Þór/KA
84. mín
InnHildur Anna Birgisdóttir
ÚtAmalía Árnadóttir
Tvöföld skipting hjá Þór/KA
84. mín
InnJónína Linnet
ÚtAnna Heiða Óskarsdóttir
tvöföld skipting FH
84. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
tvöföld skipting FH
82. mín
FH sókn
Ingibjörg geystist upp hægri vænginn og kom boltanum inn á Thelmu sem átti skot en hitti ekki markið. Þarna hefðu FH getað tryggt stigin þrjú.
80. mín
InnHelena Maree Errington
ÚtMackenzie Elyze Smith
FH skiptir
77. mín
Hættulegt færi
Birgitta kemst upp hægra megin og á fyrirgjöf sem berst til Amelíu sem á hörkuskot en í varnarmann. Þarna skall hurð nærri hælum.
75. mín
Fyrirgjöf - skot
Erin vinnur boltann út við hornfána vinstra megin og á skot - fyrirgjöf sem siglir rétt framhjá fjærstöng
67. mín
horn FH
FH fær horn frá hægri og Andrea tekur það. Hún kemur með fína sendingu en Allie nær boltanum eftir smá bras
63. mín
177 áhorfendur
61. mín
Hættulegt færi
Margrét með geggjaða sendingu á Birgittu sem lendir í samstuði við Aldísi og boltinn upp í loft. Hann er skallaður frá og þær liggja eftir. Karen María fær boltann utan við teiginn og engin í markinu en skotið fer framhjá. - Aðhlynning.
58. mín
hættulegt færi
Erin vinnur skallabolta og kemur honum á Margréti sem er við teiginn. Margrét laumar boltanum inn á Birgittu sem er of sein að rjúka af stað. Ekkert verður því úr þessu
57. mín
InnErin Flurey
ÚtBríet Fjóla Bjarnadóttir
Skiptingar hjá Þór/(KA
Þór/KA gerir tvöfalda skiptingu
57. mín
InnBirgitta Rún Finnbogadóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
Skiptingar hjá Þór/(KA
Þór/KA gerir tvöfalda skiptingu
57. mín
Stöðvar sókn
Amalía Árnadóttir
53. mín
Horn
Ég er ekki sofnaður. Það er bara lítið að frétta. Þór/KA á horn frá vinstri og Elísa snýr boltann á nærstöng en Aldís kemst í hann og slær í burtu.
52. mín
InnIngibjörg Magnúsdóttir
ÚtNia Raisa Christopher
Skipting hjá FH
47. mín
Skot yfir
FH vinnur boltann við vítateig Þórs/KA og Mackenzie á skot yfir markið
46. mín
InnBerglind Freyja Hlynsdóttir
ÚtHafrún Birna Helgadóttir
Skipting í hálfleik hjá FH
46. mín
Leikur hafinn
Seinni
Seinni hálfleikur byrjaður.
46. mín
Horn
Andrea á gott horn, sem ekkert verður úr og þá er flautað til hálfleiks.
45. mín
Hálfleikur
hálfleikur
Staðan er 0 - 1 í kaflaskiptum leik. Ekkert mikið um dauðafæri en góðar tilraunir beggja liða.
Kaffi og svo seinni hálfleikur.
West Ham vann í dag svo allir eru kátir.
Kaffi og svo seinni hálfleikur.
West Ham vann í dag svo allir eru kátir.
44. mín
Dauðafæri
Nia fær stungusendingu inn fyrir vörnina og fer í kapphlaup við Örnu Sif. Arna nær að stýra boltanum til Allie sem bjargar í horn.
Hornið tekið á nær af Deju sem fær boltann aftur og á skot sem Arna skallar frá. FH fær aftur horn og nú frá hægri
Hornið tekið á nær af Deju sem fær boltann aftur og á skot sem Arna skallar frá. FH fær aftur horn og nú frá hægri
41. mín
Thelma með fyrirgjöf
Thelma kemst framhjá Bríet og á góða sendingu fyrir markið en Ída nær ekki að hæla hann að marki og boltinn fer í gegnum teiginn.
39. mín
Efnileg sókn Þórs/KA
Elísa á góða sendingu upp hægra megin á Huldu Ósk en hún er "étin" af Deju sem hefur haft góðar gætur á Huldu
38. mín
Skot framhjá
Thelma fær boltann hægra megin fyrir utan teig og á skot langt framhjá
37. mín
Aukaspyrna
Þór KA fær aukaspyrnu sem endar beint í fangi Aldísar
31. mín
Ída með sprett
Ída María leikur í gegnum vörn heimamanna og kemst upp að marki en þar mætir Allie og tæklar boltann í horn. Deja tekur hornið eins og hin fyrri vinstra megin og snýr boltann að marki en hann er skallaður frá. Ída stórhættuleg þegar hún fær að komast á ferðina.
29. mín
Góð tilraun
Margrét fær óvænt boltann 10 m fyrir utan teig og sér að Aldís er framarlega. Hún reynir skot sem fer yfir Aldísi en framhjá.
26. mín
Sókn
Margrét Árna með frábæra sendingu upp vinstra megin á Bríet sem er ekki nógu ákveðin. Með smá ákveðni hefði hún komist í gegn og ein á móti markmanni. Vantaði smá frekju.
24. mín
Hröð sókjn
Ída María kemur hratt upp vinstra megin, leikur inn á völlinn og reynir skot sem Hulda Björg stöðvar.
20. mín
STungusending
Langur bolti fram hjá heimamönnum og Margrét fór í kapphlaup við Aldísi markmann FH en tapaði og Aldís náði að hreinsa fram.
18. mín
Horn
Andrea tekur frábært horn. Allie missir af boltanum en Katla snýr baki að boltanum í stað þess að skalla og missir því af færinu.
17. mín
Horn
FH á enn eitt hornið og eins og áður tekur Deja það. Enn reynir hún að skrúifa boltann að marki en Arna Sif skallar aftur fyrir og nú er horn frá hægri.
16. mín
Jafnræði
FH hefur náð að koma sér betur inn í leikinn og á nú hverja sóknina á fætur annarri. Nú náði Hafrún að koma boltanum á fjærstöng á Thelmu en Allie í markinu greip skallann.
14. mín
horn
FH fær horn frá vinstri. Boltinn berst með snúningi að markinu en er skallað frá í horn. Annað horn. Aftur reynir sú hafnfirska að skjóta á markið en aftur er skallað en nú frá markinu.
13. mín
Vandræði hjá FH
Pressan hjá heimamönnum heldur áfram og varnarmenn FH eiga stundum í vandræðum með að koma boltanum á markmanninn. Núna snerist boltinn út úr teignum og urðu gestirnir örlítið á undan í boltann og komu honum af hættusvæði.
11. mín
Hröð sókn FH
FH vinnur boltann við miðju og komast fjórar gegn þremur varnarmönnum. Hafrún tekur skotið en beint á markmann.
9. mín
Thelma skorar
Thelma Lóa Hermannsdóttir
Eftir frekar góða pressu Þórs/KA náði FH góðri sókn upp vinstra megin og skildu varnarmenn heimamanna svolítið eftir á hælunum. Komu boltanum inn í teig hægra megin, inn fyrir Bríet þar sem Thelma var ein og renndi hún boltanum framhjá Allessöndru.3. mín
Pressa
Þór/KA pressar FH vel á þeirra vallarhelming og er við það að skapa góð færi en FH hefur náð að bjarga sér út úr þessu hingað til.
1. mín
Færi
Elísa Bríet kemst inn í slaka sendingu til baka til markmanns. Varnarmaður kemst fyrir skotið og Þór/KA fær horn. Eftir hornið fær Hulda Ósk boltann og á gott skot sem varið er í horn. Ekkert verður úr horninu.
Fyrir leik
Leikurinn er byrjaður
Þórsarar leika til suðurs, frá Boganum og byrja með boltann.
Fyrir leik
Spáin
FH er í flestum spám spáð 2. sætinu og að þær muni berjast við Breiðablik um titilinn.
Þór/KA er spáð frá 4. sæti til 7. sæti eftir því hverjir spá. Ég spái þeim þó ofar og í 3ja sæti. Þær eiga eftir að gera þennan völl að gryfju (eða vona það að minnsta kosti). Það á að vera erfitt að koma norður og ná í þrjú stig, eða eitt.
Þór/KA þarf að feta í fótspor Þórsara og byrja tímabilið vel og með sigri í fyrsta heimaleik á þessum fagra velli.

Leikurinn fer að hefjast - áhorfendur streyma að
Veðrið í þorpinu er fínt. Smá gola en nokkuð hlýtt. Áhorfendur mega vera fleiri og hvet ég þá sem lesa þetta að drífa sig út og á völlinn.
Fyrir leik
Félagsskipti Fh
FH fékk Mackensie Smith frá Fram og Nia og Helena frá Bandaríkjunum. Þær tvær fyrrnefndu eru í byrjunarliðinu en Helena er á bekknum.
Thelma, Arna og Elísa eru allar farnar í atvinnumennsku, Margrét Brynja í Val og útlendingarnir, Macy og Maya fóru aftur heim.
Thelma, Arna og Elísa eru allar farnar í atvinnumennsku, Margrét Brynja í Val og útlendingarnir, Macy og Maya fóru aftur heim.
Fyrir leik
Styrkingar
Þar sem ekkert er að finna á heimasíðu KSÍ reyni ég eftir bestu getu að rifja upp leikmannakaup og sölur.
Þór/KA missti fyrir tímabilið Söndru Maríu til liðs Kölnar þar sem hún hefur staðið sig gríðarlega vel. Sonja Björg og Kimberley Dóra fóru til Vals. Ellie Moreno og Jessica Berlin yfirgáfu Akureyri eftir síðasta tímabil. Einnig fór þjálfarinn Jóhann Kristinn til Þróttar.
Þetta þýddi að Þór/KA þurfti að styrkja sig og náði í þær Erin Flurey og Allie Augur að utan. Ein allra besta knattspyrnukona frá Akureyri sneri aftur norður eftir að hafa skilað nokkrum titlum á Hlíðarenda því Arna Sif er komin til að hjálpa liðinu í baráttunni í sumar. Þrjár stelpur af Króknum og ein frá Völlurum styrkja hópinn að auki.
Ein skipti eru þó enn ónefnd en liðið mætir nú til leiks með nýjan þjálfara. Jóhann Kristinn Gunnarsson, sem þjálfað hefur liðið undanfarin ár, er tekinn við Þrótti og í stað hans samdi Þór/KA við Aðalstein Jóhann Friðriksson. Aðalsteinn hefur þjálfað Völsung á Húsavík undanfarin ár, bæði karla- og kvennalið, og náð eftirtektarverðum árangri.

Fyrri leikir
KSÍ síðan er því miður ekki með neinar upplýsingar um leiki liðanna en FH vann báða deildarleikina í fyrra og einnig bikarleikinn.
Fyrir leik
Fyrsti leikur Þórs/KA á nýjum velli
Fyrsti leikur Þórs/KA á nýja vellinum í þorpinu er gegn FH. FH endaði í öðru sæti í fyrra á meðan Þór/KA endaði í neðri hlutanum og varð þar efst. Báðir forsetabikararnir komu því norður í fyrra.
Völlurinn lítur frábærlega út, annað en hægt er að segja um aðstöðuna fyrir blaðamenn. Héðan sjáum við varla völlinn. Þannig að ég missi eflaust af öllu nema því sem er í kringum miðjuna. :-)
Völlurinn lítur frábærlega út, annað en hægt er að segja um aðstöðuna fyrir blaðamenn. Héðan sjáum við varla völlinn. Þannig að ég missi eflaust af öllu nema því sem er í kringum miðjuna. :-)

Skýrsla væntanleg