Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
Lengjudeild karla
Grótta
24' 0
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
18' 0
0
ÍR
Lengjudeild karla
HK
22' 1
0
Ægir
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 0
0
Völsungur
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 0
0
Njarðvík
Besta kvenna
ÍBV
LL 3
2
Víkingur R.
Afturelding
0
0
Völsungur
01.05.2026  -  16:00
Malbikstöðin að Varmá
Lengjudeild karla
Aðstæður: Heiðskýrt, 5 gráður og smá vindur
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Áhorfendur: 491 with John Andrews
Byrjunarlið:
1. Arnar Daði Jóhannesson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Axel Óskar Andrésson ('90)
5. Jón Vignir Pétursson ('74)
6. Aron Elí Sævarsson (f)
9. Joacim Holtan
10. Elmar Kári Enesson Cogic
11. Óðinn Bjarkason
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
27. Enes Þór Enesson Cogic
33. Andi Hoti
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
85. Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m)
4. Gunnar Bergmann Sigmarsson
8. Bart Kooistra ('74)
14. Daníel Darri Þorkelsson ('90)
23. Ari Hrafn Haraldsson
24. Trausti Þráinsson
79. Róbert Agnar Daðason

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Enes Cogic
Gunnar Ingi Garðarsson
Garðar Guðnason
Þórður Ingason

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiðinlegum leik lokið Ekki mikið fyrir auga því miður
91. mín
4 mínútum bætt við
90. mín
Inn:Daníel Darri Þorkelsson (Afturelding) Út:Axel Óskar Andrésson (Afturelding)
89. mín
Hættuleg skyndisókn hjá Völsungi Komast þrír á móti tveimur en ná ekki að spila nógu vel úr þessu.

Fá þó hornspyrnu og vondar fréttir fyrir Aftureldingu, Axel fékk aftan í læri og þarf að fara út af.
88. mín
Ef ykkur finnst textalýsingin í styttri kantinum? Þá þurfið þið að horfa á þennan leik, ekkert að gerast
81. mín
Afturelding með horn Algjör ringulreið inn í teig Völsungs boltinn út um allt, en heimamenn ná ekki að skapa sér færi

Þetta er þema dagsins, Afturelding nær ekki að skapa sér færi þrátt fyrir að vera í ákjósanlegum stöðum á köflum.
74. mín
Inn:Bart Kooistra (Afturelding) Út:Jón Vignir Pétursson (Afturelding)
71. mín
Inn:Fernando Jimenez Arranz (Völsungur) Út:Steinþór Freyr Þorsteinsson (Völsungur)
71. mín
Inn:Andri V. Bergmann Steingrímsson (Völsungur) Út:Tómas Bjarni Baldursson (Völsungur)
70. mín
Fint færi hjá Enes Fær sendingu eftir góðan undirbúning bróður síns en nær ekki að krafti í færið.
68. mín
Óðinn tekinn niður inni í teig En Stefán dæmir ekkert

Afturelding vill vita
62. mín
Ekkert að frétta því miður Ekki mikið eða jafnvel ekkert að gerast þessa stundina
56. mín
Inn:Bjarki Fannar Helgason (Völsungur) Út:Gestur Aron Sörensson (Völsungur)
54. mín
Loksins almennilegt færi Joacim kominn einn í gegn en rangstaða dæmd
50. mín
Heimamenn mikið með boltann Afturelding með einkarétt á boltanum þessa stundina en lágblokkin hjá Völsungi hleypir engu í gegn

46. mín
Seinni hafinn
45. mín
Þjálfarateymið hjá Húsvíkingum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Tveir "ellismellir" í baráttunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Rólegum fyrri hálfleik lokið

Tökum okkur 15
42. mín
Afturelding trekk í trekk að komas í góðar stöður En ná ekki að skapa almennilegt færi af einhverjum ástæðum

Lokahnykkurinn klikkar reglulega.
34. mín
Jón Vignir með öflugar hornspyrnur í leiknum Nær að senda hann ítrekað á hættulegan stað rétt hjá markmanninum.

Jeffrey kýlir boltanum út en Óðinn kemst í hann úr þröngu færi og skýtur hliðarnetið
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Elmar næstum því búinn að skora Óðinn með góðan bolta frá vinstri og þarna munaði engu að Elmar næði til knattarins rétt við hægri stöng.

Hefði bara þurft minnstu snertingu til að koma heimamönnum yfir.
28. mín
Sturluð staðreynd dagsins Það eru tveir menn á fimmtudagsaldri í byrjunarliðunum

Birki Már Sævarsson þekkja allir en hinn er Steinþór Freyr Þorsteinsson 40 ára gamall í liði Völsungs.
26. mín
Gott færi hjá Aftureldingu Elmar er kominn einn á hægri kantinum á móti einum varnarmanni Völsungs og fer þægilega framhjá honum

Á fasta sendingu inn í teig og Óðinn nær smá snertingu en ekkert meira en það

Álítleg sókn
16. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins fær Völsungur Taka það stutt og ekkert kemur úr því
14. mín
Fyrsta skot heimamanna Það er Andi Hoti sem á það og með röngum fæti ( hægri )

Laust skot rétt fyrir utan teig með hægri og þægilegt fyrir Jeffrey í markinu
13. mín
Fyrsta alvöru færið er gestanna Sending frá vinstri kantinum og boltinn dettur fyrir fæturnar á Modoumatarr.

Sá tekur skotið viðstöðulaust en þægilega yfir.

Fyrsta færið í leiknum
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Afturelding að reyna en gengur lítið Mun meira með boltann en ná ekki að koma sér í færi þrátt fyrir að komast nokkrum sinnum í góðar stöður
4. mín
Róleg byrjun Lítið að gerast til að byrja með en Afturelding meira með boltann
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir sem sparka þessu af stað
Fyrir leik
Liðin eru að labba inn á völlinn Fjörið fer að hefjast
Fyrir leik
Áhugavert nafn á skýrslu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Athygli vekur að Jóhann Kristinn Gunnarsson, fyrrum þjálfari Völsungs, er skráður í liðsstjórn Húsavíkurliðsins. Jóhann er núverandi þjálfari kvennaliðs Þróttar.

Samkvæmt okkar upplýsingum er þetta þar sem bráðabirgðaþjálfararnir Bjarki Baldvinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson eru ekki með tilskilin réttindi. Völsungur hefur víst fengið 60 daga undanþágu frá KSÍ en þarf að finna sér þjálfara með þau réttindi sem krafist er.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár Hjá Aftureldingu gerir Maggi eina breytingu frá tapleiknum gegn ÍR í síðustu umferð.

Andi Hoti kemur inn í byrjunarliðið fyrir Gunnar Bergmann Sigmarsson sem fær sér sæti á bekknum.

Hjá Völsungi gera Elfar og Bjarki þrjár breytingar á sínu liði frá jafnteflinu gegn Leikni í síðustu umferð.

Inn í byrjunarliðin koma þeir Tómas Bjarni Baldursson, Davíð Leó Lund og Inigo Ablizuri Arruti. Þeir Andri Bermgmann Steingrímsson og Arion Bjarki Kristjánsson fara á bekkinn, á meðan Indriði Ketilsson er ekki í hóp.



Fyrir leik
Spámaður vikunnar Það er enginn annar en Dagur Orri Garðarson sem spilaði einmitt í Lengjudeildinni í fyrra fyrir HK áður en hann gékk til liðs við Val fyrir tímabilið.

Hann spáir því að heimamenn rífi sig í gang og vinni Völsung þægilega:

Afturelding 5 - 1 Völsungur
Heimamenn verða með mikla yfirburði i þessum leik þar sem leikurinn endar 5-1 fyrir Aftureldingu.

Fyrir leik
Hvernig gékk í fyrstu umferð? Afturelding þarf klárlega að rífa sig í gang eftir að hafa fengið á sig hvorki fleiri né færri en sjö mörk á móti ÍR sem er nú ekki þekkt fyrir að spila glimmrandi sóknarbolta.

Afturelding steinlá 4-7 á heimavelli í leik þar sem Magnús Már Einarsson talaði um verstu frammistöðu varnar sem hann hafði séð í mörg ár.



Völsungur byrjaði tímabilið betur og tókst að knýja fram jafntefli á 84. mínútu þegar varamaðurinn Tómas Bjarni Baldursson 18 ára gamall nýkominn inn á þremur mínútum áður jafnaði leikinn og lokatölur 1-1.

Þannig að það er mikið í húfi fyrir bæði liðin hér á verkalýðsdeginum sjálfum. Bæði liðin þurfa á iðnaðarsigri að halda.

Fyrir leik
Breytingar fyrir tímabilið Völsungur Flestir sparksérfræðingar eru á því að Völsungur mætir til leiks með lakari leikmannahóp en á sama tíma í fyrra.

Liðið er að missa þrjá leikmenn í Bestu deild karla sem spiluðu með liðinu í fyrra og munar þar mest um Jakob Héðinn Róbertsson sem skrifaði undir hjá KA fyrir mót.

Og ekki hjálpar óstöðuleikurinn er varðar þjálfaramál liðsins en nýráðinn þjálfari liðsins fyrir mót var rekinn og er saga til næsta bæjar að segja frá því.



Komnir:
Jeffrey Baltus frá Nepal
Modoumatarr Mbye frá Svíþjóð
Juan Guardia frá Þór
Davíð Leó Lund frá Tindastóli (var á láni)
Ýmir Hjálmsson frá Njarðvík
Javon Jerrod Sample frá Dalvík

Farnir:
Jakob Héðinn Róbertsson í KA
Bjarki Baldvinsson hættur
Elvar Baldvinsson í Þór
Ívar Arnbro Þórhallsson í KA (var á láni)
Ismael Salmi Yagoub til Víkings Ó.f
Sergio Parla Garcia til Spánar
Pétur Orri Arnarson í Þór (var á láni)
Ólafur Jóhann Steingrímsson í Magna
Rafnar Máni Gunnarsson hættur
Einar Ísfjörð Sigurpálsson í Tindastól
Aron Bjarki Jósepsson í KV
Fyrir leik
Breytingar fyrir tímabilið Afturelding Það er erfitt að færa rök fyrir öðru en blóðtöku fyrir tímabilið hjá Aftureldingu eins og á það til að verða raunin eftir fall.

Það má helst nefna Hrannar Snæ Magnússon sem var með betri mönnum í Bestu deild karla í fyrra og hélt út í atvinnumennsku.
Jökul Andrésson markvöður liðsins fór einnig og skrifaði undir hjá FH fyrir tímabilið.



Komnir:
Birkir Már Sævarsson frá Svíþjóð
Joacim Holtan frá Noregi
Óðinn Bjarkason frá KR (var á láni hjá ÍR)
Andi Hoti frá Val á láni
Jón Vignir Pétursson frá Selfossi
Daníel Darri Þorkelsson frá KFG
Kristján Hjörvar Sigurkarlsson frá Kára
Bart Kooistra frá HK

Farnir:
Hrannar Snær Magnússon til Noregs
Jökull Andrésson í FH
Aron Jóhannsson hættur
Oliver Sigurjónsson hættur
Aron Jónsson í FH
Arnór Gauti Ragnarsson hættur
Þórður Gunnar Hafþórsson í Vestra
Bjarni Páll Linnet Runólfsson í Fram
Benjamin Stokke
Luc Kassi

Fyrir leik
Spáin fyrir mót Völsungur Völsungur var nýliði í Lengjudeildinni í fyrra og var eins og í ár spáð falli en það reyndist heldur betur ekki vera tilfellið.

Liðið kom skemmtilega á óvart og endaði í 7. sæti og var í raun aldrei í alvöru fallhættu.

Nú er stóra spurningin geta Húsvíkingar komið á óvart annað árið í röð?

Fyrir leik
Spáin fyrir mót Afturelding Afturelding er komið aftur í Lengjudeildina eftir að hafa fallið úr Bestu deild karla í fyrra.

Tímabilið byrjaði vel í Mosfellsbænum og liðið var um tíma í efri hluta töflurnar en svo fór því miður að halla undan fæti og liðið endaði í neðsta sæti þegar tímabilinu lauk.

En það þýðir ekkert annað en að rífa sig í gang og reyna að komast aftur upp í þá Bestu, og spáin fyrir mót er umspilssæti og annað tækifæri til að komast upp.

Síðast þegar Afturelding komst upp úr Lengjudeildinni þá var það einmitt í gegnum umspilið, þannig að sagan er til staðar.

Fyrir leik
Dómgæslan í kvöld Dómarinn í kvöld verður Stefán Ragnar Guðlaugsson.
Honum til handar verða Gylfi Már Sigurðsson og Nour Natan Ninir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kæru áhorfendur.

Verið velkomin í beina textalýsingu frá Malbikstöðinni þegar Afturelding fær Völsung í heimsókn 2. umferð Lengjudeildar karla.

Leikurinn hefst á slaginu klukkan 16.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
88. Jeffrey Baltus (m)
4. Juan Guardia Hermida
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
6. Inigo Albizuri Arruti
7. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('71)
9. Tómas Bjarni Baldursson ('71)
11. Gestur Aron Sörensson ('56)
14. Xabier Cardenas Anorga
21. Modoumatarr Mbye
23. Elmar Örn Guðmundsson
39. Davíð Leó Lund
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Javon Jerrod Sample (m)
10. Dagbjartur Búi Davíðsson
12. Andri V. Bergmann Steingrímsson ('71)
15. Bjarki Fannar Helgason ('56)
16. Fernando Jimenez Arranz ('71)
17. Aron Bjarki Kristjánsson
19. Tryggvi Grani Jóhannsson

Liðsstjórn:
Bjarki Baldvinsson (Þ)
Elfar Árni Aðalsteinsson (Þ)
Ármann Örn Gunnlaugsson
Jóhann Kristinn Gunnarsson
Höskuldur Ægir Jónsson
Jón Smári Hansson
Ýmir Hjálmsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: