Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Þór
Þór
Besta karla
VÍS völlurinn
0 - 1
KA
KA
0 - 187' Hallgrímur Mar Steingrímsson (víti)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Kramin hjörtu í þorpinu er KA hirti stigin þrjú

Hvað réði úrslitum?

Augnabliks geðveiki réði öllu. Bjarni Guðjón þurfti að gera eitthvað þegar hann fór í tæklingu á Hallgrím Mar í eigin teig en valdi rangan kost. Kom á fljúgandi ferð í leikmann sem sneri bakinu í markið og tók mann og bolta. Ívar Orri gat lítið annað gert en að dæma víti og þar við sat. Þess utan nýttu heimamenn sér illa yfirburði í fyrri hálfleik og fóru illa með færin sín. Því fór sem fór.

Bestu leikmenn

1. Yann Emmanuel Affi

Algjörlega frábær í leiknum og hleypti engu í gegnum sig. Eflaust sérstakt að velja varnarmann í tapliði þann besta en hver sér leikinn með sínu auga.

2. Steinþór Már Auðunsson

Í fyrri hálfleik var Steinþór stórkostlegur og öðrum fremur að þakka að KA var ekki undir. Hafði minna að gera í síðari hálfleik en í jöfnum leik sem þessum skilja þessi atriði að.

Atvikið

Vítuspyrnudómurinn stendur uppúr í leik sem var uppfullur af atvikum. Eitt og annað til viðbótar má tína til en þetta atvik stóð upp úr þegar upp var staðið.

Hvað þýða úrslitin?

KA vinnur sinn fyrsta sigur og fer í 4 stig í 10 sætið. Þór með 6 stig í sjöunda sætinu.

Vondur dagur

Isaac Atanga á alla mína vorkunn fyrir hræðileg meiðsli sem hann varð fyrir. Ég hef séð mynd sem sýnir ökklann á honum í mjög ónáttúrulegri stöðu og er honum vorkunn af. Danijel Dejan Djuric er ekki að finna sig í treyju KA en sem komið er og er skugginn af þeim skemmtikrafti sem hann var með Víkingum. Rúin sjálfstrausti eftir dvöl sína í Króatíu mögulega en það er vonandi fyrir alla að hann finni sína fjöl fljótlega.

Dómarinn - 6

Það er rosalega erfitt fyrir mig að ætla mér að meta frammistöðu dómara hlutlægt eftir svona leik. Gríðarlega erfiður leikur að dæma og alveg dæmi um að samræmi hafi vantað. En 40+ aukaspyrnur dæmdar og örugglega annað eins sem var sleppt þótt brotin væru sambærileg. Get ég samt verið of krítískur á það í heild svona eftirá? Ef allt hefði verið dæmt hefði leikurinn stanslaust verið stopp og var nú nóg um fyrir. Vítadómurinn var að endingu réttur en ég get ekki annað en séð að brotið hafi verið á leikmanni Þórs í aðdraganda þess dóms. Á vogarskálum leiksins kannski tvö misþung atvik en þó nóg til að draga teymið niður.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.