SKÝRSLAN: Káramenn í stuði fyrir austan
Hvað réði úrslitum?
Káramenn voru betri sóknarlega í dag og skoruðu 4 mörk og hefðu geta sett mun fleiri, Grimmari í fyrsta og annan bolta allann leikinn.
Bestu leikmenn
1. Matthías Daði Gunnarsson
Frábær í dag, Setti þrennu og var alltaf hættulegur þegar hann keyrði af stað upp vinstri vænginn.
2. Sigurjón Logi Bergþórsson
Gef Sigurjóni þetta, Var að spila sem fremsti maður og varnarmenn KFA réðu ekkert við hann, Fiskaði víti og lagði upp mark meðal annars, Flottur leikur hjá honum.
Atvikið
Ekkert sérstakt atvik sem kemur uppí hugann, Kannski þegar Finnbogi fékk seinna gula fyrir að taka hann viljandi með hendinni þegar KFA voru að sleppa í gegn.
Hvað þýða úrslitin?
Káramenn búnir að vinna fyrstu 2 leiki sína og líta vel út, 6 stig. KFA eru ennþá með 3 stig eftir sigurinn á selfyssingum í fyrstu umferð.
Vondur dagur
Vörn KFA var á hælunum í dag, Fengu 4 mörk á sig og hefðu geta verið töluvert fleiri. Arnór Berg átti erfiðan dag ásamt félögum sínum í vörninni.


