Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSigurður Bibbi Sigurðarson
Þór/KA
Þór/​KA
Besta kvenna
VÍS völlurinn
Veður stillt á Akureyri, varla bærist hár á höfði, a.m.k. ekki hjá mér og hiti um 8 gráður.
1 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 154' Agla María Albertsdóttir (víti)0 - 267' Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir0 - 369' Edith Kristín KristjánsdóttirHulda Ósk Jónsdóttir 93'1 - 3
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Dýrkeypt korter á Akureyri

Hvað réði úrslitum?

Vörn Þórs/KA náði ekki að halda út gegn hraðri sóknarlínu Breiðabliks. Kantmenn Blika tættu vörnina í sig ítrekað á korteri í seinni hálfleik og káruðu leikinn.

Bestu leikmenn

1. Hrafnhildur Ása,

Hraði hennar gerði vörn Þórs/KA oft erfitt um vik.

2. Edith Kristín, Agla María og Ólöf

Sóknarlína Blika var gríðarlega góð. Þær herjuðu ítrekað á vörn heimakvenna og gáfu enga grið. Ekki hægt að gera upp á milli þeirra þriggja. Hrafnhildur var sjónarmun meira ógnandi.

Atvikið

Vítið. Víti sem Agla María skoraði úr braut ísinn og mölbraut hann.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Þór/KA bíður enn eftir fyrsta sigrinum. Þetta var jafnframt fyrsta tap þeirra á heimavelli. Þær eru enn í fallsæti. Blikar fara á toppinn þar sem FH van ÍBV. Þær eru á siglingu og miðað við þennan leik þá verður erfitt að stoppa þær.

Vondur dagur

Vondur dagur fyrir vörn Þórs/KA. Þær náðu að halda Blkum í núllinu í hálfleik og í byrjun þess seinni en svo þegar fyrsta markið kom þá virtist eitthvað vonleysi ná þeim. Þegar þær voru svo komnar þremur mörkum undir þá náðu þær aftur vopnum sínum en það var of seint.

Dómarinn - 7

Sigurður Hjörtur leyfði leiknum að fljóta til að byrja með og var með góð tök á honum. Í seinni hálfleik þá fór hann að dæma á brot sem hann lét "slæda" í fyrri hálfleik. Dómgæslan hafði ekki úrslitaáhrif í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.