Fotbolti.net
Besta deildin
Viktor Ingi Valgarðsson
Besta karla
ELKEM völlurinn
Blæs smá en algjör blíða
ÍA
ÍA
2 - 2
ÍBV
ÍBV
Gísli Laxdal Unnarsson 47'1 - 0Gísli Eyjólfsson 51'2 - 02 - 167' Halldór Jón Sigurður Þórðarson2 - 277' Róbert Elís Hlynsson95' Marcel Zapytowski
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
2-2 loka niðurstaða!
Bráð skemmtilegur leikur og liðin skilja jöfn sem er hugsanlega sanngjörn úrslit úr því sem kom skal.

Ég þakka fyrir mig!
ÍBV
95. mín
Leiktöf utan vallar

Marcel Zapytowski

Aðeins að leikja sér að tefja ÍA innkast
94. mín
ÍBV að hreinsa frá nánast línu eftir sendingu frá Gísla Eyjólfs
93. mín
Ari i Haraldstovu kastar sér fyrir bolta og ver nálægt skallafæri
91. mín
ÍBV líta líklegri út fyrir sigurmark en það er alveg hætta á skyndisóknum ÍA.
90. mín
5mín í uppbót!
89. mín
Milan Tomic lítur úr fyrir að vera með krampa en Linta er búin með skiptingarnar.
88. mín
Það er alvöru stress í gangi hjá báðum liðum, tæpar sendingar og tæpar tilraunir til skiptis
87. mín
Pisco með hornið á nær en ekkert úr því.
86. mín
Halldór Jón að sækja horn fyrir ÍBV
86. mín
Ari i Haraldstovu með mikilvægt inngrip í sendingu frá Markúsi Pál.
85. mín
Of föst sending frá Bjarka Birni sem var þægileg fyrir Jón Sölva að hlaupa útí.

Halldór Jón sem var í hlaupinu.
84. mín
Gummi Tóta með horn sem Viggó skallar í burtu.
82. mín
ÍA eru að reyna ná einhverjum völdum á knettinum eftir þessi tvö mörk frá gestunum.

Allt orðið jafnt aftur en alveg nægur tími fyrir fleiri mörk!
ÍBV
77. mín
ALLT JAFNT!!!

Róbert Elís Hlynsson (stoðsending: Halldór Jón Sigurður Þórðarson)

ÍBV vinna boltann framarlega eftir innkast frá ÍA.
Arnar Breki gerir vel á hægri kantinum og kemur boltanum fyrir þar sem Halldór Jón á smá snertingu á boltann áður en hann dettur fyrir Róbert Elís sem setur hann í netið 2-2!!!!!!!!!!
ÍBV
75. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtFelix Örn Friðriksson
Markahæsti maður ÍBV þetta tímabil að mæta inná
75. mín
Góð pressa hjá ÍA á móti uppspilinu frá marki Eyjamanna.
ÍA
74. mín
InnÍsak Máni Guðjónsson
ÚtHaukur Andri Haraldsson
ÍA
74. mín
InnRafael Máni Þrastarson
ÚtÓmar Björn Stefánsson
73. mín
Felix Örn sem krampast upp í miðri sókn með boltann á kantinum.
70. mín
Haukur Andri sem liggur núna og fær aðhlynningu.
ÍBV
68. mín
InnBjarki Björn Gunnarsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
ÍBV
68. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtSesar Örn Harðarson
ÍBV
67. mín
ÍBV að minnka muninn!!!!

Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Vicente Valor sem tók aukaspyrnuna undir vegg ÍA og Jón Sölvi varði boltann út þar sem Halldór Jón var fyrstur til staðar og setti hann þægilega í markið!

2-1 og við erum heldur betur með leik!!!!
ÍA
66. mín
Gult spjald

Haukur Andri Haraldsson

Brýtur á Eiði Atla rétt fyrir utan vítateig ÍA
65. mín
Gabríel Snær strax með bolta í teiginn en enginn liðsfélagi nær til
ÍA
63. mín
InnGabríel Snær Gunnarsson
ÚtViktor Jónsson
Eyjapeyji að koma inn á móti Eyjapeyjum
61. mín
Viktor Jónsson virtist vera að biðja um skiptingu
60. mín
Tvöföld skipting hjá Linta til að reyna bjarga einhverju úr þessum leik.

Jón Sölvi átti flott úthlaup og kýldi boltann í burtu rétt áðan.
ÍBV
59. mín
InnVitor Hugo Cruz Rocha
ÚtLiam Daði Jeffs
ÍBV
59. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
58. mín
Gísli Eyjólfs með erfitt skot sem Ari i Haraldstovu greip.
57. mín
Fullkomin byrjun á seinni hálfleik hjá ÍA en það er alveg stórt spurningarmerki á hvernig Eyjamenn eru að mæta hér eftir hálfleik.
Kannski tvö glæsileg mörk hjá Skagamönnum en varnarleikurinn hjá ÍBV ekki sannfærandi.
ÍA
51. mín
ALLTOF AUÐVELT!

Gísli Eyjólfsson (stoðsending: Haukur Andri Haraldsson)

Spilið upp völlinn eftir hornið hjá ÍBV er alltof auðvelt, Markús Páll á Hauk og Haukur losar hann rétt til hliðar á Gísla Eyjólfs sem á frábært skot í nær.

Vantaði alla grimmd í varnarleikinn hjá ÍBV og staðan orðin 2-0!!!
50. mín
Sesar Örn að sækja horn fyrir ÍBV
49. mín
Markús Páll með skot í hliðarnetið
ÍA
47. mín
SÆLLEDDU FÉLAGI!!!!

Gísli Laxdal Unnarsson

Jaja hann tók þennan bolta bara fyrir utan teig eftir hornspyrnuna og fleygði honum í samskeytin, Ari i Haraldstovu átti ekki breik í þetta!

1-0 Skaginn kominn yfir!
46. mín
Gummi Tóta með horn og síðan fyrirgjöf sem leiðir að öðru horni ÍA.
46. mín
Heimamenn setja seinni hálfleik í gang!
Ég þakka fyrir börgerinn sem ÍA gaf mér og óska fólki áframhaldandi skemmtunar í þessum seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikstölfræði frá Sýn Sport
Með boltann: 60% - 40%
Marktilraunir: 7-8
Skot á mark: 0-1
Hornspyrnur: 3-3
Heppnaðar sendingar: 173-95
45. mín
Það er kannski 0-0 en þessi fyrri hálfleikur var heldur betur kröftugur.
Tökum smá pásu og vonandi meira svona og mörk í seinni
45. mín
3mín í uppbót
Liam Daði slapp einn í gegn og tók fínt skot sem sigraði Jón Sölva en fór röngu meginn við stönginna og þvi framhjá
Spurning hvort hann hefði átt að senda á Sesar Örn sem kom á fleygi ferð í teiginn með honum
44. mín
Gummi Tóta með aukaspyrnu sem Helgi Mikael vill láta endurtaka.
42. mín
Heldur betur kröftugar mínútur hér!
40. mín
Vicente Valor með flottan bolta í átt að markinu sem Sesar fleygir sér en missir rétt svo af og Jón Sölvi ver þetta.
39. mín
ÍBV bjarga af línu!
Sýndist Róbert Elís eiga þessa björgun og boltinn þrumast svo upp á Liam Jeffs sem var á miðjunni og setti allt í botn, náði að losa síðan á Sigurð Arnar sem kom á fleygi ferð en markið bara einfaldlega of langt í burtu til að búa til almennilegt færi.
37. mín
Ari i Haraldstovu í allskonar brasi en Helgi Mikael hefur engan húmor fyrir þessu. Leyfði leiknum að gang með Ómar Björn á boltanum í teignum og Ari lengst í burtu
34. mín
Helgi Mikael dómari óvart tæklaður á miðjum vellinum og þarfnast aðhlynningar.
32. mín
Gísli Eyjólfs með skot sem fer í varnarmann eftir fínustu sókn hjá ÍA.
30. mín
Eiður Atli með varnavinnslu upp á 10!
Ómar Björn við það að sleppa í gegn en Eiður heldur vel í hann og neglir í fullkomna tæklingu þegar Ómar reynir skotið og hornspyrna niðurstaða.
29. mín
ÍBV að fá horn
Yfir allan pakkann og markspyrna ÍA
27. mín
Gísli Laxdal að brjóta á Sesari Erni rétt fyrir framan miðju.
ÍA
26. mín
InnJohannes Björn Vall
ÚtBöðvar Böðvarsson
Taka enga sénsa með meiðslin hjá Böðvar
25. mín
Róbert Elís með skotið!
Gott spila ÍBV sem endar á Alex Freyr sem finnur Róbert rétt á teigslínunni fyrir miðju og hann með fínt skot sem rúllar rétt framhjá.
22. mín
Böðvar Böðvarsson að fá aðhlynningu. Johannes Vall mögulega að koma inná fyrir hann.

Vatnspása og smá ÍBV fundur á meðan.
21. mín
Jón Sölvi með mikilvægt inngrip eftir innkast hjá ÍBV sem fór á teig ÍA.
18. mín
Jón Sölvi í næstum brasi
Ætlar að hreinsa boltann en fer beint á Sesar á miðjunni sem tekur skotið meðan Jón Sölvi hleypur tilbaka í teiginn.
Boltinn virðist fara í varnarmann því Helgi Mikael dæmir horn fyrir ÍBV.

Sáum Gylfa Sig skora svona á móti ÍBV í síðustu umferð, hefðu getað núllað það út með marki þarna.
17. mín
Tölfræði-innskot
Með boltann hingað til: ÍA 63% - ÍBV 37%
16. mín
Hornspyrna fyrir ÍA
Fer í gegnum pakkann og Róbert Elís þrumar honum í burtu.
15. mín
Segir Sesar að slaka sig
Sesar fór í nokkuð fasta tæklingu á Tobias Sandberg á miðjunni, sleppur við spjald en fær tiltal frá Helga Mikael
13. mín
Viktor Jónsson með skalla í miðjum teignum framhjá nærstönginn.
12. mín
Dæmt brot á Sigurð Arnar í teig ÍA sem stoppar fínar sóknar mínútur gestanna.
11. mín
Eyjamenn að vakna
Vicente Valor með fasta sendingu í átt að miðjum teig heimamanna en svífur yfir Liam Daða og rétt framhjá markinu.
9. mín
Færi hjá ÍBV!
Sesar gerir vel vann boltann og kemur honum fyrir markið með utanfótar snuddu. Rúllar rétt framhjá liðsfélaga og útaf í markspyrnu.
7. mín
Haukur Haraldsson með skot!
Mikið spil við teig Eyjamanna og Haukur á skot yfir markið.
6. mín
Enginn Vestmannaeyja vindur en það blæs allavega í bakið á ÍBV í þessum fyrri hálfleik.
5. mín
Skaginn að byrja betur en ekkert af viti. Bara þægilegt samspil sem ÍBV verst en þeir eru ekkert að komast í boltann.
4. mín
Eyjamenn virðast í ákveðnu 4-4-2 með Liam og Róbert Elís frammi

Skaginn með sínar sveiflur en 3 manna vörn í sóknaraðgerðum
1. mín
Keyrum þetta í gang!
Skaginn á móti Eyjum, trúi ekki öðru en hörku og skemmtun.

Hörkuskemmtun sem ÍBV sparka hér í gang!
Fyrir leik
Liðin ganga á völlinn!
Frábærar aðstæður fyrir vonandi frábæran fótbolta
Fyrir leik
Verðugar pælingar
Nóg að gerast greinilega hjá báðum liðum og ég mæli með að skoða þessar greinar, góðar pælingar kringum þessi markavarða skipti ÍA og tveir leikmenn mögulega farnir frá ÍBV.

Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt
ÍBV að breyta meira til en ÍA, þrátt fyri splúnku nýja markvörðinn sem þreytir frumraun sína í Bestu Deildinni fyrir ÍA í leik dagsins.
Fyrir leik
Ragnar Bragi spáir fyrir 8.umferð
ÍA 2 - 0 ÍBV (18:00 í kvöld)
Viktor Jóns og Gísli Eyjólfs verða í stuði í kvöld og skora sitthvort markið. Gísli mun svífa um völlinn og gera eyjamenn hálf svimaða í lok leiks.
Fyrir leik
Gengi liðanna hingað til
Byrjum að líta á heimalið ÍA. Sigur í síðasta leik kom liðinu í 8.sæti fyrir 8.umferð Bestu Deildarinnar.
Tveir sigrar, tvö jafntefli og þrjú töp og því með 8stig á töflunni.
ÍA vann Þór á Akureyri síðustu helgi 2-1 mörk þeirra skoruðu Viktor Jónsson og Markús Páll Ellertsson. Þessir tveir hafa skipt mörkunum milli sín í Bestu Deildinni en liðið er með 9 mörk á tímabilinu. 3 frá Viktori og 6 frá Markúsi Pál.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gestirnir hafa ekki náð í stig síðan 1-1 jafnteflið við FH í fyrstu umferð Bestu Deildarinnar. Sex leikja taphrina hjá ÍBV en alls ekki of seint að hefja almennilega stiga söfnun.
Í síðasta leik ÍBV kom Víkingur til Eyja og fór með 3stig í Herjólf. 2-0 tap niðurstaðan. Jákvæðu hliðarnar kannski að leikurinn var 0-0 í hálfleik og seinna mark Víkings sem Gylfi skoraði fyrir aftan miðju voru agaleg markvarðar mistök.
Eitt stig eftir sjö leiki og -14 í markatölu. Viggó Valgeirsson er markahæstur í liðinu með 2mörk. En liðið hefur ekki skorað í síðustu tveimur leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍBV
Byrjun Eyjamanna hefur ekki verið sjarmerandi. Liðið hélt sér nokkuð þægilega uppi í deild þeirra bestu í fyrra en töluvert brattari fallbarátta blasir við liðinu snemma móts.
Töluvert af breytingum á liðinu frá síðasta móti og sú helsta er auðvitað þjálfara starfið. Einnig hefur verið hreyft til í leikmannahópnum sem á ennþá eftir að sýna sínu bestu hliðar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Skagamenn
Það hefur verið um nóg að snúast upp á Skaga síðustu dag vegna ristarbrots Árnars Marinós sem hefur verið aðalmarkvörður liðsins.

Undanþága hefur verið samþykkt og Jón Sölvi Símonarsson er aftur kominn í ÍA frá Breiðablik eftir að hafa varið markið í 2.flokki ÍA í fyrra og var varamarkvörður meistaraflokks ÍA einnig.
Fyrir leik
Dómarateymið
Helgi Mikael Jónasson er dómarinn í dag.
Aðstoðardómarar er Ragnar Þór Bender og Tomasz Piotr Zietal.
Fjórði dómarinn er Róbert Þór Guðmundsson.
Dómaraeftirlitsmaður er Hjalti Þór Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍA vs ÍBV í dag
Hjartanlega velkomin í fyrsta leik 8.umferðar Bestu Deildarinnar.

Þráðbein textalýsing frá ELKEM Vellinum á Akranesi, leikurinn fer af stað á slaginu 18:00.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.