Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Besta karla
FH
76' 0
1
ÍA
Besta karla
Fram
74' 4
3
Breiðablik
Besta kvenna
Valur
78' 0
1
Þróttur R.
FH
0
1
ÍA
0-1 Ómar Björn Stefánsson '76
29.05.2026  -  19:15
Kaplakrikavöllur
Besta karla
Aðstæður: Skýjað, örlítill blástur en þó ekki kalt
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
3. Kristján Snær Frostason ('65)
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Kristján Flóki Finnbogason ('70)
19. Aron Jónsson
22. Ísak Óli Ólafsson (f) ('70)
23. Tómas Orri Róbertsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson
37. Baldur Kári Helgason
90. Arnór Borg Guðjohnsen
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
2. Birkir Valur Jónsson ('65)
14. Adolf Daði Birgisson
32. Gils Gíslason ('70)
35. Allan Purisevic
39. Benjamín Bæring Þórsson
40. Róbert Hugi Sævarsson
42. Aron Daði Svavarsson
66. Viktor Nói Vidarsson ('70)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Arnar Sigþórsson (Leikgr.)
Benjamin Gordon Mackenzie (Styrktarþj.)
Númi Már Atlason (Sjúkraþj.)
Kjartan Sturluson (MÞ)
Guðmundur Jón Viggósson (Liðsstj.)
Árni Freyr Guðnason (AÞ)

Gul spjöld:
Ísak Óli Ólafsson ('17)

Rauð spjöld:
76. mín MARK!
Ómar Björn Stefánsson (ÍA)
73. mín
Varsla! Kjartan Kári tekur aukaspyrnuna og hún er öflug en markvarslan frá Jóni Sölva er enn öflugri!
72. mín Gult spjald: Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA)
Kjartan Kári kemst á fullaferð og fellur í baráttunni við Jón Gísla Eyland. Kjartan Kári var að komast í hörku stöðu en gat ekki haldið sér á fótum.
70. mín
Inn:Viktor Nói Vidarsson (FH) Út:Ísak Óli Ólafsson (FH)
70. mín
Inn:Gils Gíslason (FH) Út:Kristján Flóki Finnbogason (FH)
68. mín
Gísli Laxdal mundar skotfótinn þegar boltinn dettur fyrir hann rétt fyrir utan teig en skotið hátt yfir.
65. mín
Inn:Birkir Valur Jónsson (FH) Út:Kristján Snær Frostason (FH)
64. mín
FH með hornspyrnu sem skapar allskonar ursla en Skagamenn koma þessu að lokum frá.
62. mín
Inn:Ómar Björn Stefánsson (ÍA) Út:Viktor Jónsson (ÍA)
Áhugaverð skipting..
62. mín
Inn:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA) Út:Johannes Vall (ÍA)
59. mín
Kristján Snær með fallhlífarbolta fyrir markið og Jón Sölvi grípur þetta.
55. mín
Styrktarbúningur FH
Mynd: FH

53. mín
Stöngin! Frábær fyrirgjöf frá hægri hjá ÍA og Viktor Jóns nær skallanum að marki en hann fer í stöngina!
50. mín Gult spjald: Erik Tobias Sandberg (ÍA)
Rífur Kristján Flóka að mér sýndist það vera niður á miðjum vellinum og uppsker spjald.
48. mín
Gísli Eyjólfs setur boltann í Viktor Jóns og að marki svo þetta telst að ég held sem marktilraun þó svo að hún hafi ekki verið merkileg.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Myntugrænir FH-ingar sparka af stað síðari hálfleiknum.
45. mín
Hálfleikur
Liðin ganga jöfn til búningsklefa í hálfleik.

Bæði lið verið að komast í stöður en vantað að komast í færi. FH búnir að vera betri aðilinn framan af en við tökum okkur stutta pásu og snúum svo aftur í vonandi meir skemmtun og einhver mörk í seinni.
45. mín
Ein Mínúta í uppbót
43. mín
Böddi í færi en boltinn framhjá markinu!

Skagamenn fór hornspyrnu svo hann hefur farið af varnarmanni og aftur fyrir.
39. mín
FH átt flotta spilkafla í þessum leik.
36. mín
Virkilega skemmtilegt spil hjá FH sem koma sér í góða stöðu en hælsendingin frá Arnóri Borg hittir ekki á samherja inn í teig.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
FH í stórsókn og þjarma að marki ÍA.

Vilja fá vítaspyrnu sem þeir fá ekki en þetta endar með því að Skagamenn koma þessu í horn.
29. mín
Kjartan Kári með flottan bolta fyrir markið sem Úlfur Ágúst skallar í bakið á Baldvini Þór og aftur fyrir.

FH fær hornspyrnu sem verður svo ekkert úr.
26. mín Gult spjald: Viktor Jónsson (ÍA)
Stekkur upp í skallabolta í vítateig FH og notar hendurnar full mikið að mati Sigurðar Hjartar.
23. mín
Kjartan Kári með tilraun úr aukaspyrnu sem fer framhjá markinu og ógnaði lítið.
18. mín
Stöngin og varið! Gummi Tóta tekur spyrnuna og á skot í stöngina og Gísli Eyjólfs er fyrstur á frákastið en Jökull er vel staðsettur og ver þetta!

Þarna hefði ÍA átt að ná forystu!
17. mín Gult spjald: Ísak Óli Ólafsson (FH)
Slæm spyrna frá Jökli beint í fæturnar á Gísla Eyjólfs og Ísak Óli þarf að taka á sig brotið á hættulegum stað og fer í svörtu bókina.
16. mín
Kjartan Kári með hornspyrnu fyrir FH sem ratar á Úlf Ágúst en Skagamenn verjast vel.
15. mín
Jón Gísli Eyland með flotta fyrirgjöf fyrir markið en Viktor Jóns og Jökull Andrésson skella saman og markspyrna dæmd eftir að Viktor hafði náð snertingu á boltann.
13. mín
FH að komast í flotta stöðu en flaggið á loft.
9. mín
Fer rólega af stað hérna í Kaplakrika.
4. mín
Jón Gísli Eyland reynir sendingu fyrir markið en hún truflar FH-inga lítið.
1. mín
FH leika í styrktartreyju í kvöld en hún er myntugræn og málefnið sem þeir styðja þetta árið er einstök börn.

ÍA spila svo í sínum fjólubláu varabúningum.
1. mín
Leikur hafinn
Fjólubláir Skagamenn sparka okkur af stað.
Kristalkúlan hefur talað
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar FH gerir fimm breytingar á sínu liði frá síðasta leik gegn Víkingi en inn koma Kristján Snær Frostason, Kristján Flóki Finnbogason, Tómas Orri Róbertsson, Úlfur Ágúst Björnsson og Arnór Borg Guðjohnsen fyrir Sverrir Pál Hjaltested sem tekur út leikbann, Gils Gíslason, Arngrím Bjart Guðmundsson, Benjamín Bæring Þórsson og Róbert Huga Sævarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


ÍA gera þá einnig tvær breytingar á sínu liði en inn koma Johannes Vall og Jón Gísli Eyland fyrir Gísla Laxdal Unnarsson og Ómar Björn Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Allir á völlinn!
Fyrir leik
Góðgerðarhelgi í Kaplakrika Bæði karla- og kvennalið FH munu koma til með að leika í sérstökum góðgerðartreyjum í leikjum sínum um helgina.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Síðustu ár hefur skapast sú hefð að þriðji búningur FH sé helgaður ákveðnu góðgerðarfélagi. Þúsund krónur af hverri seldri treyju renna til félagsins og hefur Auður, helsti styrktaraðili FH, tvöfaldað þá upphæð.

Síðustu ár hafa safnast yfir 5 milljónir sem hafa runnið til Bleiku slaufunar, Píeta og Gleym mér ei. Mikil leynd ríkir yfir lit búningsins og því hvaða málefni verður styrkt þetta árið.

Dagskráin:

Föstudagur:
17:30 - Húsið opnar
18.00 - Steve Dagskrá með Kviss í tjaldinu
18:35 - Nýr búningur kynntur
19:15 - FH vs. ÍA

Laugardagur:
13:00 - Húsið og tjaldið opnar
14:00 - FH vs. Fram
16:00 - Úrslit meistaradeildar í tjaldinu.


Fyrir leik
Þetta verður í fyrsta skipti sem Böðvar mætir í Kaplakrika sem leikmaður gestaliðs „Ég bjóst kannski ekki við því að þeir væru án sigurs komandi inn í leik kvöldsins. FH er með hörkulið þegar að allir eru heilir. Það hefur komið mér á óvart hversu mikið andleysi hefur verið oft á tíðum. Það eru sterkir karakterar í þessu liði og bara tímaspursmál rífa sig úr þessu. Vonandi ekki í kvöld," segir Böðvar Böðvarsson, leikmaður ÍA, í viðtali við Vísi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Spámaðurinn Elmar Kári Cogic, leikmaður Aftureldingar, reynir fyrir sér núna þegar níunda umferðin fer af stað í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


FH 1 - 2 ÍA
Menn þarna upp á skaga þurfa ekki nema að bomba a pönnuna á Viktori Jóns og þá endar tuðran í netinu, ætli þeir taki þetta ekki 1-2?

Fyrir leik
Finnst þetta lið vera að missa dálítið tenginguna við samfélagið og bæinn Skagamenn voru virkir á markaðnum í vetur og sóttu stóra bita. Gísli Eyjólfsson og Guðmundur Þórarinsson komu heim til Íslands úr atvinnumennsku og Böðvar Böðvarsson kom frá FH.

„Ég er alveg pínu fúll út í þetta. Mér fannst frábært að fá Gísla Eyjólfs inn, hann rífur alla með sér, er kröftugur, stjórnar og stýrir," sagði Andri. „Hann er að koma inn með tengingu við bæinn, flytur upp á Skaga, er með konu af Skaganum og það er Skagatenging," skaut Sverrir inn í.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


„Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar (fyrir leikinn gegn ÍBV), það er að koma ungur strákur í markið (Jón Sölvi Símonarson), Jón Gísli í banni og Brynjar Óðins, ungur strákur fæddur 2009, fengi sénsinn í liðinu. Ég hugsaði ef ekki þá, hvenær á Brynjar þá að fá sénsinn? Hann spilaði fullt á undirbúningstímabilinu. Svo kemur að leikskýrslu og þá var Gísli Laxdal kominn í hægri bakvörð," sagði Andri með vonbrigðartón.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


„Ef þetta gengur ekki, þá er búið að taka risaákvörðun sem fleiri heldur en þjálfarinn þurfa að bera ábyrgð á," sagði Sverrir og á þá við menn sem stýra félaginu, að þeir taki ábyrgð ef illa fer.

„Ástæðan fyrir því að við eigum nóg af peningum er sú að fullt af leikmönnum hafa verið seldir út. Ástæðan fyrir því að Gabríel Snær (Gunnarsson) er seldur út er af því að hann fékk sénsinn í fyrra og var góður þó að hann hafi bara skorað eitt mark. Liðin úti horfa í þetta. Þú verður að spila ungum strákum," sagði Andri sem var ekki hrifinn af því hversu fáir leikmenn á 2. flokks aldri byrjuðu í 8. umferð Bestu deildarinnar.


Fyrir leik
Boð og bönn Sóknarmaðurinn Sverrir Páll Hjaltested í FH fékk rautt í 5-0 tapinu gegn Víkingi og verður ekki með gegn ÍA í Krikanum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Fyrir leik
FH Róðurinn hefur verið þungur í Kaplakrika í sumar en FH sitja í 11. sæti deildarinnar með 2 stig eftir 8 umferðir. FH vonast til þess að ná inn fyrsta sigri sumarsins í kvöld gegn Skagamönnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍA Tímabilið hefur ekki byrjað með eins miklum krafti og Skagamenn höfu gert sér vonir til um. Þeir sitja í 8. sæti deildarinnar með 9 stig eftir 8 umferðir.
Skagamenn gerðu svekkjandi jafntefli í síðustu umferð gegn Eyjamönnum 2-2 en Skagamenn höfðu komist í 2-0 en misstu niður forystuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Sigurður Hjörtur Þrastarson heldur utan um flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson.
Arnar Þór Stefánsson er þá fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Gunnar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin til leiks í Kaplakrika Heil og sæl og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Kaplakrika þar sem heimamenn í FH mæta ÍA í 9. umferð Bestu deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

föstudagur 29. maí
19:15 FH-ÍA (Kaplakrikavöllur)
19:15 Fram-Breiðablik (Lambhagavöllurinn)

sunnudagur 31. maí
17:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-KA (Meistaravellir)
17:00 Þór-Stjarnan (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-Víkingur R. (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Byrjunarlið:
37. Jón Sölvi Símonarson (m)
3. Johannes Vall ('62)
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson
9. Viktor Jónsson ('62)
11. Gísli Eyjólfsson
13. Erik Tobias Sandberg
21. Böðvar Böðvarsson (f)
25. Markús Páll Ellertsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
31. Isak Theodor Eidem (m)
15. Gabríel Snær Gunnarsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson ('62)
20. Ísak Máni Guðjónsson
22. Ómar Björn Stefánsson ('62)
27. Brynjar Óðinn Atlason
28. Daníel Michal Grzegorzsson
35. Aron Kristinn Zumbergs
87. Styrmir Jóhann Ellertsson
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson (AÞ)
Dean Martin (AÞ)
Salvar Georgsson (Forráðam.)
Rúnar Már S Sigurjónsson (Leikmaður utan hóps)
Mario Majic (Sjúkraþj.)
Teitur Pétursson (Liðsstj.)
Dino Hodzic (MÞ)

Gul spjöld:
Viktor Jónsson ('26)
Erik Tobias Sandberg ('50)
Jón Gísli Eyland Gíslason ('72)

Rauð spjöld: