Í BEINNI
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL
2
0
0
Grindavík

Þróttur R.
2
0
Grindavík

Kári Kristjánsson
'39
1-0
Örn Bragi Hinriksson
'71
2-0
01.06.2026 - 19:15
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:
12. Aron Dagur Birnuson (m)
('46)
('46)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson
('88)
('88)
8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
10. Sigurður Egill Lárusson
('79)
('79)
21. Brynjar Gautur Harðarson
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
27. Örn Bragi Hinriksson
33. Unnar Steinn Ingvarsson
('64)
('64)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
('64)
- Meðalaldur 24 ár
('64)
Varamenn:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
('46)
('46)
3. Stefán Þórður Stefánsson
('88)
('88)
6. Jakob Ocares Kristjánsson
7. Tryggvi Snær Geirsson
('64)
('64)
11. Magnús Þórðarson
('64)
('64)
14. Daníel Karl Þrastarson
20. Viktor Steinarsson
('79)
- Meðalaldur 23 ár
('79)
Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Hans Sævar Sævarsson (AÞ)
Alexander Máni Curtis (Liðsstj.)
Gísli Þór Einarsson (MÞ)
Njörður Þórhallsson (Leikmaður utan hóps)
Orri Sigurjónsson (Styrktarþj.)
Valgeir Einarsson Mantyla (Sjúkraþj.)
Gul spjöld:
Eiríkur Þorsteinsson Blöndal ('66)
Rauð spjöld:
90. mín
Frábær sending fyrir markið frá Magnúsi Þórðar sýndist mér endar á fjær þar sem Eiríkur Blöndal var næstum búin að bæta við þriðja markinu en Hjörvar Daði lokaði vel.
88. mín
Það er svolítið tilfinningin að bæði lið séu bara að bíða eftir lokaflautinu. Lítið í gangi síðustu mínútur.
88. mín
Inn:Stefán Þórður Stefánsson (Þróttur R.)
Út:Kolbeinn Nói Guðbergsson (Þróttur R.)
82. mín
Hvernig var þetta ekki þriðja markið!?
Kári Kristjáns á tilraun fyrir utan teig sem fer inn í þvöguna og endar hjá Magnúsi Þórðarsyni sem kemur á ferðinni aleinn á fjærstöng en lyftir boltanum yfir markið.
80. mín
Gult spjald: Stefán Jón Friðriksson (Grindavík)
Gult spjald: Stefán Jón Friðriksson (Grindavík)
Fer full geyst í Magnús Þórðarson og kemst í bókina.
79. mín
Inn:Valur Þór Hákonarson (Grindavík)
Út:Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)
78. mín
Gunnleifur Orri með skemmtilega takta og á flotta tilraun sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.
73. mín
Magnús Þórðarson skorar fyrir Þrótt en flaggið komið á loft.
Þróttarar ekki langt frá því að ganga bara endanlega frá þessu.
Þróttarar ekki langt frá því að ganga bara endanlega frá þessu.
72. mín
Inn:Stefán Jón Friðriksson (Grindavík)
Út:Haraldur Björgvin Eysteinsson (Grindavík)
71. mín
MARK!
MARK!Örn Bragi Hinriksson (Þróttur R.)
Þróttur tvöfaldar!
Áttu frábæra fyrirgjöf fyrir markið frá vinstri fyrst sem var nálægt því að verða að marki en Þróttarar héldu sókninni lifandi og komu boltanum aftur fyrir markið frá hægri og boltinn fellur svo fyrir fæturna á Erni Braga sem er með opið mark fyrir framan sig og klárar þetta vel.
67. mín
Rúnar Ingi með skalla yfir markið eftir fínasta bolta fyrir markið frá Heiðari Snær sýndist mér það vera.
Grindvíkingar reyndu að kalla eftir vítaspyrnu stuttu áður en það voru mjög veik köll sem Gunnar Oddur réttilega hlustaði lítið á.
Grindvíkingar reyndu að kalla eftir vítaspyrnu stuttu áður en það voru mjög veik köll sem Gunnar Oddur réttilega hlustaði lítið á.
66. mín
Gult spjald: Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (Þróttur R.)
Gult spjald: Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (Þróttur R.)
Rífur aftan í Grindvíking og fer í svörtu bókina.
62. mín
Daaauðafæri!!
Grindvíkingar sækja hratt og Rafael Victor kemur boltanum út á Inga Sig sem á flotta sendingu á Rúnar Inga sem er svo einn á móti Ladda sem kemur vel út á móti og lokar á hann!
Grindvíkingar munu ekki fá mikið betri færi en þetta í leiknum!
Grindvíkingar munu ekki fá mikið betri færi en þetta í leiknum!
59. mín
Varsla!
Allt í einu er Örn Bragi einn á móti Hjörvari Daða og lætur vaða fínasta skot sem er beint á Hjörvar Daða sem ver þetta vel.
Grunamlega einn allt í einu í teignum.
Grunamlega einn allt í einu í teignum.
56. mín
Grindavík búnir að þrýsta Þrótti neðarlega á völlinn en eru ekki að ná að skapa sér færi.
50. mín
Brynjar Gautur með fyrirgjöf sem fer í gegnum allan pakkann en virðist fara af Grindvíkingi því Þróttarar fá innkast.
48. mín
Þróttur fær aukaspyrnu sem Kári Kristjáns spakar fyrir markið en Grindvíkingar ná að díla vel við þetta.
46. mín
Inn:Þórhallur Ísak Guðmundsson (Þróttur R.)
Út:Aron Dagur Birnuson (Þróttur R.)
Markmannsskipti í hálfleik
Hvernig FH gat ekki notað Kára Kristjáns á miðsvæðinu er bara lögreglumál.????
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) June 1, 2026
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki þar sem heimamenn í Þrótt leiða í hálfleik.
Þróttur verið hættulegri en Grindvíkingar sýnt að þeir geti líka alveg verið hættulegir á breikinu.
Fáum vonandi áframhaldandi skemmtun í seinni hálfleik en tökum okkur stutta pásu og snúum svo aftur með síðari hálfleikinn.

Hjörvar Daði!
Þróttarar að hóta öðru markinu og spila Sigurð Egil einan á móti Hjörvari Daða sem gerir frábærlega að loka á hann! Þróttarar ná frákastinu en Grindvíkingar verjast vel og koma boltanum burt.
43. mín
Gult spjald: Haraldur Björgvin Eysteinsson (Grindavík)
Gult spjald: Haraldur Björgvin Eysteinsson (Grindavík)
Fyrsta gula spjaldið í kvöld og hann ætlaði varla að trúa því sjálfur.
39. mín
MARK!
MARK!Kári Kristjánsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Stoðsending: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Ísinn er brotinn!
Þróttarar búnir að hóta þessu!
Eru vinstra megin við D-bogann í stuttu spili og Vilhjálmur Kaldal leggur boltann fyrir Kára Kristjáns sem lætur svo vaða og nú fór það inn!
ÞRÓTTARAR LEIÐA!

Eru vinstra megin við D-bogann í stuttu spili og Vilhjálmur Kaldal leggur boltann fyrir Kára Kristjáns sem lætur svo vaða og nú fór það inn!
ÞRÓTTARAR LEIÐA!

39. mín
Kári Kristjáns gerir ágætlega að koma sér í skotfæri en tilraunin er hátt yfir markið.
35. mín
Sigurður Egill á skot beint í vegginn úr aukaspyrnunni. Boltanum rúllað létt til hans en tilraunin beint í vegginn.
34. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað.
Þróttur að fá aukaspyrnu á hættulegum stað þegar brotið er á Vilhjálmi Kaldal rétt fyrir utan vítateig hægra megin.
33. mín
Brynjar Gautur
Fær boltann fyrir utan teig og lætur vaða gott skot með jörðinni sem Hjörvar Daði þarf að skutla sér á og slá framhjá.
32. mín
Færi!
Flott samspil milli Vilhjálms Kaldal og Kára Kristjáns inn á teig endar með skoti frá Kára sem fer framhjá markinu á fjær.
Þarna var tækifæri!
Þarna var tækifæri!
Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Kári Kristjáns lyftir boltanum innfyrir í hlaup fyrir Vilhjálm Kaldal sem lætur vaða fyrir utan teig hátt yfir.
Það var ekki mikil trú í þessari tilraun.
Það var ekki mikil trú í þessari tilraun.
27. mín
Vilhjálmur Kaldal með tilraun sem fer framhjá markinu.
Þróttur tekur innkast og Villi Kaldal fer inn á teig í þröngu færi og á tilraun sem fer framhjá markinu.
Þróttur tekur innkast og Villi Kaldal fer inn á teig í þröngu færi og á tilraun sem fer framhjá markinu.
25. mín
Leikurinn er stopp
Aron Dagur er sestur og fær aðhlynningu.
Vonandi ekkert alvarlegt og hann getur haldið leik áfram án vandræða.
Vonandi ekkert alvarlegt og hann getur haldið leik áfram án vandræða.
24. mín
Rafael Victor með lausan skalla að marki.
Christian Bjarmi átti fínustu fyrirgjöf sem Aron Dagur mætti út í en greip í tómt. Grindavík hélt lífi í sókninni og komu með aðra fyrirgjöf sem Rafael Victor skallaði á markið.
Christian Bjarmi átti fínustu fyrirgjöf sem Aron Dagur mætti út í en greip í tómt. Grindavík hélt lífi í sókninni og komu með aðra fyrirgjöf sem Rafael Victor skallaði á markið.
17. mín
Grindvíkingar aðeins að ógna þessa stundina.
Halda vel í boltann og reyna að koma Rúnari Inga í færi en hann notar hendurnar of mikið að mati dómara í baráttu við varnarmenn Þróttara og er dæmdur brotlegur þegar hann reynir að leggja fyrir sig boltann.

14. mín
Frábær tækling
Christian Bjarmi rennir boltanum inn á Rafael Victor í teignum sem er að fara í skotið þegar Baldur Hannes rennir sér fyrir skotið.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
6. mín
Örn Bragi með stórhættulegan bolta fyrir markið beint í hættusvæðið en Grindvíkingar koma boltanum frá áður en hann ratar á Vilhjálm Kaldal.
Frábært hlaup frá Erni Braga sem bjó sér til þessa stöðu vel.
Frábært hlaup frá Erni Braga sem bjó sér til þessa stöðu vel.
5. mín
Fínasta horn frá Grindavík ratar á fjær þar sem Damir skallar hann fyrir markið í eitthvað kraðak en Þróttarar verjast þessu vel.
4. mín
Rúnar Ingi jarðar Brynjar Gaut inní teig Þróttara og vinnur horn.
Brynjar Gautur fann vel fyrir þessu höggi.
Brynjar Gautur fann vel fyrir þessu höggi.
3. mín
Tveim hornspyrnum seinna eru Grindvíkingar mættir í skyndisókn en Þróttarar verjast því vel.
1. mín
Sigurður Egill með flottan bolta fyrir markið og Vilhjálmur Kaldal á skalla að marki sem Hjörvar Daði slær í horn.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér í Laugardalnum og það eru gestirnir frá Grindavík sem sparka okkur í gang.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Adam Ægir Pálsson, sem hefur leikið vel með Valsmönnum í upphafi tímabilsins, tók að sér það verkefni að spá í leiki umferðarinnar.
Þróttur R. 3 - 0 Grindavík
Þegar litli strákurinn minn hann Siggi er á svona eldi með einhver 10 mörk og assist í sumar vinnur Þróttur þetta 3-0. Mingus og Siggi með tvö þrátt fyrir það að vera helvíti hátt uppi þessa dagana.

Innbyrðis viðreignir
Samkvæmt nýjum vef KSÍ hafa þessi lið mæst 48 sinnum í mótsleik á vegum KSÍ.
Á síðustu leiktíð skiptu liðin með sér sigrunum en þau unnu bæði sína útileiki í fyrra.
18.maí 2025:
Þróttur R. 2-4 Grindavík
25.Júlí 2025:
Grindavík 1-2 Þróttur R.
Grindavík hefur yfirhöndina þegar horft er til innbyrðisviðreigna síðustu ár en Grindvíkingar hafa 23 sinnum unnið.
Þróttur R. hefur 19 sinnum unnið.
Liðin hafa skilið jöfn 6 sinnum.

Þróttarar hafa verið að hiksta svolítið eftir frábæra byrjun á mótinu. Þróttur vann fyrstu þrjá leiki sína en hafa ekki sigrað í síðustu þrem leikjum sínum og tapað síðustu tveim í röð.
Þróttur tapaði í síðustu umferð gegn Gróttu á Avis vellinum 2-3 og þeir vonast til þess að hrista úr sér hrollinn í kvöld og komast aftur á sigurbraut.
Þróttur tapaði í síðustu umferð gegn Gróttu á Avis vellinum 2-3 og þeir vonast til þess að hrista úr sér hrollinn í kvöld og komast aftur á sigurbraut.

Fyrir leik
Grindavík
Grindvíkingar voru síðasta vígið til að falla í ósigur í síðustu umferð en þeir höfðu byrjað mótið taplausir í fyrstu fimm umferðunum með einn sigur og fjögur jafntefli. Afturelding sá hinsvegar til þess að fyrsti tapleikurinn kæmi í síðustu umferð þegar þeir lögðu Grindvíkinga 3-1 á Stakkavíkurvellinum.
Grindvíkingar hafa skorað 7 mörk og fengið á sig 7 mörk og eru því sléttir á markatölu fyir kvöldið í kvöld. Aðeins Völsungur [4] og Njarðvík [6] hafa skorað minna og aðeins Njarðvík [6] hefur fengið færri mörk á sig.

Dómarateymið
Þriðja liðið í kvöld skipa Gunnar Oddur Hafliðason á flautunni og honum til aðstoðar verða Kristofer Bergmann og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage.
Eftirlitsmaður KSÍ er Bergur Þór Steingrímsson.
Eftirlitsmaður KSÍ er Bergur Þór Steingrímsson.

Byrjunarlið:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
4. Damir Muminovic (f)
('74)
('74)
5. Arnór Gauti Úlfarsson
7. Gunnleifur Orri Gunnleifsson
('79)
('79)
9. Rúnar Ingi Eysteinsson
('72)
('72)
10. Ingi Þór Sigurðsson
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
('72)
('72)
18. Christian Bjarmi Alexandersson
19. Rafael Victor
26. Eysteinn Rúnarsson
27. Heiðar Snær Ragnarsson
- Meðalaldur 23 ár
Varamenn:
1. Robert Blakala
6. Viktor Guðberg Hauksson
('74)
('74)
8. Stefán Jón Friðriksson
('72)
('72)
11. Valur Þór Hákonarson
('79)
('79)
17. Andri Karl Júlíusson Hammer
20. Mikael Máni Þorfinnsson
('72)
('72)
25. Friðrik Franz Guðmundsson
- Meðalaldur 22 ár
Liðsstjórn:
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson (AÞ)
Aron Benediktsson (Sjúkraþj.)
Helgi Leó Leifsson (Liðsstj.)
Gul spjöld:
Haraldur Björgvin Eysteinsson ('43)
Stefán Jón Friðriksson ('80)
Rauð spjöld: