Leik lokið!
Ótrúlegum leik lokið hér í Grindavík
Ótrúlegur 2-1 sigur Grindavík/Njarðvík niðurstaðan og þær fara áfram í undanúrslit og mæta þar Fram.
120. mín
InnViktoría Sól Sævarsdóttir
ÚtSophia Faith Romine
120. mín
InnRakel Rós Unnarsdóttir
ÚtHildur Katrín Snorradóttir
118. mín
Gult spjald
Hildur Katrín Snorradóttir
112. mín
InnJúlía Rán Bjarnadóttir
ÚtTinna Hrönn Einarsdóttir
98. mín
Gult spjald
Tinna Hrönn Einarsdóttir
96. mín
Virkilega klaufalegt hjá Stjörnunni.
Ása kemur heimakonum yfir!!!
Ása Björg Einarsdóttir
Gri/Njar senda bolta upp völlinn sem Eva Marie kemst fyrir en snertingin hennar er hræðileg og fer beint inn í hlaupa línuna hennar Ásu sem eltir boltan, Brigette kemur út úr markinu og nær til að sparka í boltan en Ása er komin alveg uppvið hana og hún skýtur í Ásu og inn.Virkilega klaufalegt hjá Stjörnunni.
93. mín
Gri/Njar vilja víti!
Tinna Hrönn var komin inn á teiginn, hún leggur boltan til hliðar framhjá varnamanni sem virðist hafað farið í hana.
Þarna hefði Twana getað dæmt víti að mínu mati.
Þarna hefði Twana getað dæmt víti að mínu mati.
91. mín
Framlengingin hafin!
Gri/Njar skjóta henni í gang.
90. mín
Framlenging er það
Twana dómari flautar þetta af og við erum á leiðinni í framlengingu.
Smá pása og svo hefst framlengingin.
Smá pása og svo hefst framlengingin.
90. mín
+4 mínútum bætt við!
Fáum við sigurmark eða förum við í framlengingu?
82. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtBirna Jóhannsdóttir
79. mín
Þær jafna!!!
Emma Nicole Phillips (stoðsending: Tinna Hrönn Einarsdóttir)
Tinna Hrönn tekur góða hornspyrnu inn á teiginn og þar rís Emma Phillips manna hæst og stangar þetta í netið.77. mín
InnRakel Sigurðardóttir
ÚtNatasha Moraa Anasi
76. mín
Gult spjald
Ellie Coffield
Brýtur af sér á stórhættulegum stað.74. mín
InnFanney Lísa Jóhannesdóttir
ÚtHrefna Jónsdóttir
70. mín
InnSnædís María Jörundsdóttir
ÚtÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
65. mín
InnLily Anna Farkas
ÚtRut Sigurðardóttir
58. mín
Stjarnan hefur gjörsamlega tekið yfir þennan leik, seinni hálfleikur hefur nánast bara farið fram á vallarhelming Gri/Njar.
54. mín
Hornspyrna fyrir frá Andreu Mist, Hrefna nær skoti á makið sem Genevieve ver.
52. mín
Frábær varsla!
Ingibjörg Lúcía á frábært skot utan af velli sem Genevieve ver á frábæran hátt í horn
50. mín
MAAAARK!
Hrefna Jónsdóttir
Úlfa Dís á góðan sprett upp völlinn og tekur skot að marki sem vörn Gri/Njar kemst fyrir og boltinn skoppar upp í loft og lendir beint fyrir framan Hrefnu sem stýrir boltanum vel í markið.46. mín
InnJakobína Hjörvarsdóttir
ÚtÞóra María Hjaltadóttir
Tvöföld skipting hjá Stjörnunni í hálfleik.
46. mín
InnAndrea Mist Pálsdóttir
ÚtErika Ýr Björnsdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
45. mín
Fallegt framtak hjá Gri/Njar
Knattspyrnudeild Grindavíkur heiðrar hér liðið sem var fyrsta kvennalið Grindavíkur til að komast upp í efstu deild.
45. mín
Hálfleikur
Ágætis hálfleikur að baki
Gri/Njar hafa verið mun betri í þessum hálfleik og verið meira með boltann, en ekki náð að skora.
45. mín
+2 mínútur í uppbót
40. mín
Gri/Njar fá tvær hornspyrnur í röð, þær komu báðar á nær stöngina og þær náðu ekki að nýta sér þær til góðs.
38. mín
Úlfa Dís með góða takta á vinstri kantinum og sker inn á völlinn og á skot framhjá.
36. mín
Ellie Coffield sendir góða sendingu í gegn á Tinnu Hrönn sem á skot langt framhjá.
33. mín
Hildur Katrín í færi!!
Mikill misskilningur í vörn Stjörnunnar, Bridgette ætlar út úr markinu að hreinsa en klessir á varnamann sinn og Hildur Katrín kemst á milli og nær skoti sem fer framhjá.
28. mín
Óskar Smári er brjálaður á hliðarlínunni yfir innkasts dóm og reynir að kalla Twana til sín til að ræða málin en það gekk ekki hjá honum og Twana flautar leikinn í gang.
25. mín
Úlfa Dís með hornspyrnu sem fer beint á markið og Gri/Njar rétt ná að bjarga þessu á línu.
24. mín
Gri/Njar taka hér hornspyrnu sem virðist vera beint af æfingasvæðinu. Ása kemur með sendingu með fram jörðinni inn á teiginn á Hildi Katrínu sem á skot með hælnum á markið en það er laust og Bridgette á ekki í neinum vandræðum með það.
20. mín
Hættulegt!
Hildur Katrín gerir vel að vinna stöðu á miðjum vallarhelmingi Stjörnunnar og sendir frábæra sendingu upp hægri kantinn á Ásu Björg sem er kemst í góða fyrirgjafarstöðu og sendir hann fyrir, þar er Sophia en boltinn er fyrir aftan hana og hún nær ekki til boltans.
17. mín
Leikurinn hefur verið frekar rólegur fyrir utan þessi tvö færi sem liðið fengu.
12. mín
Gri/Njar hafa verið að reyna að spila frá markmanni fyrstu mínúturnar, hafa verið frekar tæpar stundum og Stjarnan hafa unnið boltan nokkrum sinnum en ekki nýtt sér það.
9. mín
Þóra María liggur eftir og fær aðhlynningu, virðist hafa fengið högg á andlitið.
Hún þarf að fara út af í eina mínútu eins og nýju reglurnar segja.
Hún þarf að fara út af í eina mínútu eins og nýju reglurnar segja.
7. mín
Dauðafæri!
Stjarnan vinnur boltan á miðjum vellinum og eru fljótar upp þar sem Hrefna Jónsdóttir er komin ein í gegn en Genevieve Í markinu var fljót út og lokaði vel á Hrefnu.
2. mín
Fyrsta færið!
Sophia gerir vel að taka á móti sendingu frá Natashu og kemur boltanum á Hildi Katrínu sem á skot rétt framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Gri/Njar byrja þennan leik.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Liðin ganga hér inn á völlinn í Grindavík og gera sig klár að byrja þessa veislu.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindinn
Gylfi Tryggvason þjálfari Gri/Njar gerir fjórar breytingar á sínu liði frá 0-2 sigrinum á Fram í Bestu deildinni á síðustu helgi.
Inn í liðið koma Rut Sigurðardóttir, Tinna Hrönn Einarsdóttir, Sophia Faith Romine og Sigríður Emma F. Jónsdóttir koma inn í liðið og út fara Lily Anna Farkas, Rakel Sigurðardóttir, Danai Kaldaridou og Maci Nicole Teater. Danai fór meidd út af gegn Fram í síðasta leik.

Óskar Smári þjálfari Stjörnunnar gerir einnig fjórar breytingar á sínu liði eftir frábæran sigur á 1-3 sigur á Breiðablik á síðustu helgi. Inn koma Rósa María Sigurðardóttir, Hrefna Jónsdóttir, Aníta Ýr Þorvaldsdóttir og Erika Ýr Björnsdóttir og út fara Fanney Lísa Jóhannesdóttir, Anna María Baldursdóttir, Snædís María Jörundsdóttir og Andrea Mist Pálsdóttir.

Inn í liðið koma Rut Sigurðardóttir, Tinna Hrönn Einarsdóttir, Sophia Faith Romine og Sigríður Emma F. Jónsdóttir koma inn í liðið og út fara Lily Anna Farkas, Rakel Sigurðardóttir, Danai Kaldaridou og Maci Nicole Teater. Danai fór meidd út af gegn Fram í síðasta leik.

Óskar Smári þjálfari Stjörnunnar gerir einnig fjórar breytingar á sínu liði eftir frábæran sigur á 1-3 sigur á Breiðablik á síðustu helgi. Inn koma Rósa María Sigurðardóttir, Hrefna Jónsdóttir, Aníta Ýr Þorvaldsdóttir og Erika Ýr Björnsdóttir og út fara Fanney Lísa Jóhannesdóttir, Anna María Baldursdóttir, Snædís María Jörundsdóttir og Andrea Mist Pálsdóttir.

Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins í dag er Twana Khalid Ahmed og aðstoðarmenn hans eru þeir Antoníus Bjarki Halldórsson og Þráinn Jón Elmarsson. Hallgrímur Viðar Arnarson er fjórði dómari.


Fyrir leik
Slæmar fréttir fyrir Stjörnuna
Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, spilar líklega ekki meira á tímabilinu vegna meiðsla.
Anna María spilaði sinn fyrsta Meistaraflokks leik fyrir Stjörnuna árið 2010 og hefur spilað fyrir liðið síðan.
Anna María spilaði sinn fyrsta Meistaraflokks leik fyrir Stjörnuna árið 2010 og hefur spilað fyrir liðið síðan.
Fyrir leik
Leið Stjörnunnar í 8. liða úrslitin
Stjarnan fóru norður á Akureyri og mættu Þór/KA í 16. liða úrslitum Mjólkurbikarsins og unnu þar 1-4 sigur þar sem Snædís María Jörundsdóttir, Telma Steindórsdóttir og Andrea Mist Pálsdóttir skoruðu mörkin. Snædís María Jörundsdóttir skoraði tvö.


Fyrir leik
Leið Gri/Njar í 8. liða úrslitin
Gri/Njar mættu Val í 16. liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Hlíðarenda og unnu þar 2-3 sigur þar sem Sophia Romine og Ása Björg Einarsdóttir skoruðu mörkin. Ása Björg skoraði tvö.


Fyrir leik
8. liða úrslitin
8. liða úrslitin í Mjólkurbikars kvenna fóru af stað í gær með tveimur leikjum og þar komust ÍBV og Fram í undanúrslit.
Fyrr í kvöld mættust Þróttur R og Víkingur R á Avis-Vellinum í Laugardal, sá leikur fór 1-0 fyrir Þrótti sem þýðir að Þróttur fer áfram í undanúrslit ásamt ÍBV og Fram
8. liða úrslitin líta svona út:
Í gær:
ÍBV 3-2 FH
FHL 1- 7 Fram
Í dag:
Þróttur R 1-0 Víkingur R
Gri/Njar-Stjarnan

Fyrr í kvöld mættust Þróttur R og Víkingur R á Avis-Vellinum í Laugardal, sá leikur fór 1-0 fyrir Þrótti sem þýðir að Þróttur fer áfram í undanúrslit ásamt ÍBV og Fram
8. liða úrslitin líta svona út:
Í gær:
ÍBV 3-2 FH
FHL 1- 7 Fram
Í dag:
Þróttur R 1-0 Víkingur R
Gri/Njar-Stjarnan

Fyrir leik
Góða kvöldið!
Komið þið sæl kæra fólk og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Grindavík/Njarðvík gegn Stjörnunni í 8. liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.
Leikurinn er spilaður á Stakkavíkurvelli í Grindavík og einnig í beinni útsendingu á RÚV.is

Leikurinn er spilaður á Stakkavíkurvelli í Grindavík og einnig í beinni útsendingu á RÚV.is




