SKÝRSLAN: Sterk endurkoma hjá Grindavík/Njarðvík skilaði sæti í undanúrslitum
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var mjög kaflaskiptur, í fyrri hálfleik voru Grindavík/Njarðvík mun betra liðið á vellinum en í þeim seinni kom Stjarnan frábær út og komst snemma yfir. Um miðjan seinni hálfleik vöknuðu heimakonur heldur betur til lífsins og leikurinn jafnaðist heldur betur og þær náðu að jafna leikinn. Í framlengingunni voru heimakonur mun betri og orkumeiri og skoruðu sigurmark sem tryggði þeim sigurinn og sæti í undanúrslitum.
Bestu leikmenn
1. Emma Nicole Phillips
Emma skorar fyrsta mark Gri/Njar sem var virkilega mikilvægt og síðan var hún mjög sterk varnalega í dag.
2. Genevieve Jae Crenshaw
Genevieve átti stóran þátt í þessum sigri Gri/Njar, hún átti tvær stórar vörslur í leiknum og var mjög góð.
Atvikið
Atvikið er klárlega sigurmarkið, aðdragandinn og markið sjálft var virkilega skrítið og klaufalegt af Stjörnunni og þetta mark var það sem skildi liðin að í dag.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða einfaldlega það að Grindavík/Njarðvík fara áfram í undanúrslit og mæta Fram á Lambhagavellinum seinna í sumar.
Bikarævintýri Stjörnunnar er hins vegar lokið í ár og þær geta sett allan fókus á Bestu deildina.
Vondur dagur
Það verður að vera Eva Marie Wirtz, Eva átti virkilega slaka snertingu sem varð til þess að Bridgette liðsfélagi hennar í markinu komst í mjög slæma stöðu sem endaði á því að Ása Björg skoraði sigurmark leiksins.
Dómarinn - 5
Það er erfitt að meta frammistöðu Twana og hans manna í þessum leik, en ég veit að ef ég myndi spyrja þjálfara liðanna þá væru þeir báðir virkilega ósáttir við hann miðað við köllin frá bekkjum liðana í leiknum. Þetta var erfiður leikur og mörg vafaatriði sem Twana leysti mis vel.
Mér fannst að Gri/Njar hafi átt að fá víti í byrjun framlengingarinnar. Annar dómur var þegar leikmaður Stjörnunnar var að komast ein í gegn og Twana dæmdi rangstæðu á Stjörnuna og síðan brot fyrir Stjörnuna í sama atviki, það var rétt að mínu mati. Svo hann var fínn, sumt gott og sumt skrítið,


