Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla
Kópavogsvöllur
Hliðarvindur og grátt yfir
Breiðablik
Breiðablik
1 - 4
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 18' Helgi Guðjónsson0 - 263' Aron Elís Þrándarson0 - 369' Gylfi Þór Sigurðsson (víti)0 - 475' Helgi GuðjónssonArnar Bjarki Gunnleifsson 79'1 - 4
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Guð blessi önnur lið ef þetta var lélegt

Hvað réði úrslitum?

Bæði Sölvi Geir Ottesen og Helgi Guðjónsson voru ósáttir með frammistöðu Víkings í kvöld. Þar nefndu þeir sérstaklega fyrri hálfleikinn. Staðan var þó 1-0 í hálfleik og Breiðablik hafði ógnað lítið sem ekkert. Blikar voru í maður á mann pressu sem gekk þó brösulega. Þegar Víkingar voru að gera mistök voru Blikar langt frá því að refsa. Tilfinningin var sú að Víkingar væru enn bara í þriðja gír en samt með eins marks forystu og þægilegir. Eftir því sem leið á leikinn stigu Víkingar meira á bensíngjöfina og úrslitin eftir því. Sanngjarn sigur langbesta liðs Íslands. Hvernig hefði þessi leikur farið ef Víkingar væru þá á sínum besta degi?

Bestu leikmenn

1. Helgi Guðjónsson

Skorar tvö frábær mörk, sæmilega afgreiðslan í fyrra markinu. Hefði getað skorað þrjú hefði hann ekki verið örlátur og leyft Gylfa að taka vítið.

2. Aron Elís Þrándarson

Víkingar hafa bara átt þennan mann inni. Skorar og á frábæra stoðsendingu í dag. Tekinn af velli beint eftir markið sitt. Gylfi sömuleiðis frábær í dag, Víkingar hefðu hæglega getað nýtt eitthvað af hættulegum fyrirgjöfum hans betur.

Atvikið

Arnar Bjarki Gunnleifsson varð síðastliðinn sunnudag næst yngsti markaskorari í sögu efstu deildar. Hann bætti um betur og skoraði mark Breiðabliks í dag. Að skora fótboltamark gegn Víkingum hefur reynst mörgum erfitt í sumar svo hann getur verið stoltur af þessu afreki sínu.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru með níu stiga forystu á KR á toppi deildarinnar. Vesturbæingar spila þó sinn leik á sunnudaginn gegn Keflavík. Breiðablik er í fjórða sæti, átján stigum á eftir Víkingi.

Vondur dagur

Ásgeir Helgi og Viktor Örn voru í hjarta varnarinnar hjá Blikum og áttu erfitt uppdráttar, sérstaklega eftir því sem leið á leikinn. Arnór Gauti brýtur klaufalega af sér í vítaspyrnudóminum, set spurningamerki við Anton Ara í fyrsta markinu og Ágúst Orri var ekki upp á sitt besta. Af nægu að taka!

Dómarinn - 9

Virkilega ánægður með Ívar Orra og félaga í dag, man varla eftir feilspori.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.