Leik lokið!
Ótrúlegur endir í annars bragðdaufum leik
95. mín
Vestri fær aukaspyrnu
95. mín
Gult spjald
Unnar Steinn Ingvarsson
94. mín
SVO NÁLÆGT ÞVÍ!!
Magnús Þórðarson var hársbreidd frá því að koma boltanum í autt markið á fjærstönginni en rétt missir af honum. Líklega síðasta færi leiksins.
91. mín
ÞETTA VAR ÓTRÚLEGT!!!
Örn Bragi Hinriksson
Enn og aftur varði Marvin vel frá Kára en frákastið frá Erni fór í varnarmann og skoppaði inn í markið á nærstönginni.90. mín
90 mínútur á klukkunni. Uppbótartími eru fjórar mínútur.
88. mín
MARVIN MARVIN
Með tvær frábærar vörslur í röð!
Fyrst skot frá Kára fyrir utan teiginn sem stefndi rakleiðis niður í vinstra hornið og síðan ver hann einnig frákastið frá vörslunni.
Fyrst skot frá Kára fyrir utan teiginn sem stefndi rakleiðis niður í vinstra hornið og síðan ver hann einnig frákastið frá vörslunni.
88. mín
Sergine Fall keyrir einn síns liðs upp allan völlinn með boltann en endar á því að missa hann aftur fyrir.
86. mín
Tryggvi Snær!
Með fast skot fyrir utan teiginn sem Marvin ver enn og aftur vel í markinu.
85. mín
Þróttur fær enn eina hornspyrnuna. Þær hafa ekki verið að skila miklu.
84. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtEmmanuel Agyeman Duah
80. mín
Tekur spyrnuna niðri meðfram jörðinni og Marvin tekst ekki að halda í boltann en Vestramenn koma boltanum burt.
80. mín
Þróttur fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn
Kári stillir sér upp til að taka spyrnuna.
77. mín
Haugur af skiptingum og spurning hvort þær hræri í þessum lokamínútum.
74. mín
InnTryggvi Snær Geirsson
ÚtBrynjar Gautur Harðarson
74. mín
InnÖrn Bragi Hinriksson
ÚtVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
74. mín
InnJacob Stensson
ÚtElmar Atli Garðarsson
74. mín
InnBirkir Eydal
ÚtGunnar Jónas Hauksson
74. mín
InnKonstantin Cheshmedjiev
ÚtGuðmundur Arnar Svavarsson
74. mín
Tvö skot í röð hjá Þrótti!
Þeir halda áfram að ógna marki en ekkert gengur.
70. mín
Vestramenn leggjast afar aftarlega á völlinn og Þróttarar ná ekki að brjóta þá niður.
65. mín
InnChriss-Albin Mörfelt
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
64. mín
Gult spjald
Ibrahima Balde
Vestri fær aukaspyrnu og þá ákveður Balde að negla boltanum í Brynjar og uppsker gult spjald.62. mín
Pressan er að aukast
Kári Kristjáns var í góðu færi eftir góða sendingu frá Brynjari en skýtur í varnarmann Vestra og Þróttur fær hornspyrnu.
60. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtAdam Árni Róbertsson
59. mín
Aftur spila Þróttarar vel og Aron fær færi en hittir boltann illa og hann fer langt framhjá.
57. mín
Aron Snær!
Frábær sending inn fyrir vörn Vestra sem Edson nær ekki til og Aron Snær er einn á móti Marvin og Aroni tekst ekki að setja boltann í markið, vel varið hjá Marvin.
51. mín
Ólíkt fyrri hálfleiknum þá hafa Vestramenn haldið nánast allan tímann í boltann í síðari hálfleiknum.
46. mín
Evrópufararnir hefja síðari hálfleikinn
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða í hálfleik
Úrslitin gegn gangi leiksins en Vestramenn geta verið sáttir. Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Vel spilað hjá Þrótti
Halda þungri pressu á Vestra og ná að koma boltanum á markteiginn þar sem Adam Árni nær að moka boltanum í átt að marki en Marvin ver vel.
45. mín
Fjórum mínútum bætt við þennan fyrri hálfleik.
41. mín
0-1 þetta var heldur betur gegn gangi leiksins.
UPP ÚR ENGU!!
Breki Þór Hermannsson
Langur bolti fram völlinn sem Baldur reynir að halda Breka frá en misheppnast. Breki kemst fram fyrir Baldur og er kominn einn gegn Þórhalli og klárar vel í fjærhornið.0-1 þetta var heldur betur gegn gangi leiksins.
40. mín
Þróttarar að hóta marki
Adam Árni fær frábært færi inni í miðjum teig Vestra en Guðmundur Arnar nær að henda sér fyrir skotið. Mjóg vel gert hjá Gumma.
38. mín
Hlynur Þórhallsson fær gott skallafæri á fjærstönginni eftir aukaspyrnu. Hann var aleinn en nær ekki að koma boltanum á markið.
36. mín
Gult spjald
Thibang Sindile Theophilius
Aron Snær leikur á Phete sem þarf að rífa hann niður og fær réttilega spjald.33. mín
Fyrsta spjald leiksins og var það sanngjarnt.
Gult spjald
Aron Snær Ingason
Missir boltann aðeins of langt frá sér og lyftir sólanum frekar hátt í tilraun til að ná til boltans.Fyrsta spjald leiksins og var það sanngjarnt.
32. mín
Þetta hefur verið afar rólegt og lítið um færi fyrir utan tvö skot Þróttara. Vestramenn virðast vera nokkuð sáttir með gang mála.
25. mín
Þróttarar hafa verið meira með boltann en Vestramenn verjast vel.
16. mín
Adam Árni vá!!
Með geggjaða snertingu fram hjá Edson inni í teignum og neglir síðan boltanum á lofti úr afbragðsstöðu en hann fer í raun bara í fangið á Marvin sem grípur hann.
14. mín
Kári Kri!
Með gott vinstri fótar skot sem Marvin ver aftur fyrir endamörk.
13. mín
Sigurður Egill haltrar löturhægt til búningsklefanna með sjúkraþjálfaranum. Óskum honum skjóts bata.
10. mín
InnViktor Steinarsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
Sigurður leggst aftur niður utan vallar og þetta lítur ekki vel út
9. mín
Þróttarar spila þessa stundina manni færri. Sigurður Egill er staðinn á fætur en haltrar enn.
8. mín
Æ Æ Æ
Sigurður Egill fellur eftir samstuð við Fall og heldur um hnéð og virðist vera sárþjáður.
Vonandi er þetta ekki alvarlegt.
Vonandi er þetta ekki alvarlegt.
5. mín
Aron Snær fær bolta frá Sigga Lár á fjærsvæðið og tekur eina snertingu og neglir að marki en yfir fer boltinn.
3. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er gestanna eftir skot frá Fall sem fór af varnarmanni.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn hefja leik!
Fyrir leik
Liðin að ganga inn á völlinn!
Þetta er alveg að hefjast hér í Laugardalnum. Grámyglulegt veður en við látum það ekki stoppa okkur!
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Venni gerir tvær breytingar frá 1-3 sigrinum gegn Ægi en Adam Árni og Brynjar Gautur koma inn fyrir Njörð Þórhallson og Magnús Þórðarson.
Badu gerir eina breytingu frá sigrinum gegn Aftureldingu en Sergine Fall kemur inn fyrir Johannes Selvén.
Badu gerir eina breytingu frá sigrinum gegn Aftureldingu en Sergine Fall kemur inn fyrir Johannes Selvén.
Fyrir leik
Vestri á góðu flugi
Vestri situr í 4. sætinu en þeir hafa sótt 19 stig í 11 leikum. Liðið hefur skorað 21 mark og fengið á sig 19 en í síðustu fimm leikjum hefur liðið unnið fjóra leiki. Fyrstu sex leikir skiluðu sjö stigum á meðan síðustu fimm hafa skilað 12 stigum svo það er ljóst að Vestri sé á góðri siglingu.


Fyrir leik
Þróttur er heitasta lið deildarinnar
Þróttur er á toppi Lengjudeildarinnar með 22 stig eftir tíu leiki, stigi meira en Fylkir í 2. sætinu. Þróttur hefur unnið fjóra síðustu leiki sína í deildinni með markatölunni 10-2 og er óhætt að segja að liðið er á fljúgandi siglingu. Þróttur er með markatöluna 24-11 sem er sú besta í deildinni.


Fyrir leik
Dómarateymið
Róbert Þór Guðmundsson er dómari leiksins og honum til aðstoðar eru þeir Daníel Ingi Þórisson og Ragnar Arelíus Sveinsson. Dómaraeftirlitsmaður er Þórður Ingi Guðjónsson.


Fyrir leik
Laugardalurinn heilsar!
Komið sæl og blessuð kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik Þróttar og Vestra á AVIS vellinum í 11. umferð Lengjudeildar karla.





Skýrsla og viðtöl væntanleg.
Ég þakka fyrir mig.