Fotbolti.net
@fotboltinetÍvar Björgvinsson
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 1
Vestri
Vestri
0 - 141' Breki Þór HermannssonÖrn Bragi Hinriksson 91'1 - 1
Dómari: Róbert Þór Guðmundsson

SKÝRSLAN: Toppliðið tapaði stigum

Hvað réði úrslitum?

Seigla Þróttar skilaði að lokum jöfnunarmarki en einnig var það góður varnarleikur Vestra og enn betri markvarsla sem gerði þeim kleift að ganga af velli með eitthvað annað en núll stig. Vestramenn vörðust vel eftir að komast yfir í lok fyrri hálfleiks en heimamenn náðu að jafna í uppbótartíma leiksins.

Bestu leikmenn

1. Marvin Darri Steinarsson

Markmaður Vestra var frábær í leiknum og varði ég veit ekki hversu mörg skot. Hann á þessi virtu verðlaun skilið.

2. Breki Þór Hermannsson

Var flottur í framlínunni hjá Vestra og skoraði mjög flott mark þar sem hann þurfti að sjá um það alveg sjálfur. Barðist vel og var svo nálægt því að skila þremur stigum í hús.

Atvikið

Jöfnunarmark Þróttar var atvik leiksins. Heimamenn voru búnir að fá gríðarlega mikið af góðum stöðum í leiknum en ekkert var að ganga þangað til í uppbótartíma leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur heldur toppsætinu en ná ekki að búa til mikið forskot. Deildin heldur einfaldlega áfram að vera æsispennandi og liðin fyrir neðan horfa á þessi úrslit og hugsa að enn sé allt galopið í toppbaráttunni. Vestri heldur sér einnig vel inni í baráttunni um umspilssæti eftir brösuga byrjun á tímabilinu.

Vondur dagur

Adam Árni og Aron Snær áttu alls ekki skelfilegan leik en samanlagt fengu þeir um átta færi til þess að skora mark fyrir Þrótt og hvorugum tókst að gera það. Þeir taka auka skotæfingu eftir næstu æfingu og mæta klárir í slaginn í næsta leik.

Dómarinn - 7

Dómarar deildarinnar halda áfram að standa sig vel og engar ákvarðanir sem hægt er að gagnrýna hér í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.