0. mín
Spánn
Ríkjandi Evrópumeistarar Spánn gerðu óvænt 2-2 jafntefli gegn Sviss í fyrsta leik.
Fyrirfram eru þær taldar sigurstranglegastar á lokamótinu og því voru það mjög óvænt úrslit að Sviss næði að stela af þeim stigi.
Við getum því alveg átt von á mjög aggressívum Spánverjum í þessum leik en þær þurfa að sækja sigur, ætli þær sér að sigra riðilinn.

0. mín
Ísland
Stelpurnar okkar lutu í lægra haldi 3-0 fyrir liði Austurríkis í síðasta leik.
Úrslitin segja þó ekki alla söguna en íslensku stelpurnar fengu urmul horna og áttu nokkur dauðafæri til að setja mark, allt kom þó fyrir ekki að þessu sinni!
Þær eiga því inni að ná mörkum á þessu móti og vonandi fáum við að sjá það í dag.

0. mín
Dómarateymi dagsins
Á flautunni í dag er ítalski dómarinn Deborah Bianchi og henni til halds og trausts verða Liliya Dumbalakova frá Búlgaríu og hin tékkneska Tereza Hessova aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er svo Michaela Pachtová einnig frá Tékklandi
0. mín
U19 á lokamóti EM
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá öðrum leik U19 landsliðsins á lokamóti EM gegn ríkjandi Evrópumeisturum Spánar
Leikurinn hefst á slaginu 15:00!



