Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta karla
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
1 - 1
Fram
Fram
0 - 154' Kennie Knak ChopartStefan Alexander Ljubicic 68'1 - 1
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Allt jafnt í Keflavík
Liðin skilja jöfn með sitthvort markið í farteskinu. Viðtöl og skýrsla væntanleg...
Fram
92. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtMár Ægisson
90. mín
Tvær mínútur í uppbót
90. mín
Skotið rétt yfir þverslánna! Það rétt yfir að hann endar ofan á markinu.
89. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teig. Muhamed Alghoul stillir sér upp.
89. mín
Er sigurmark í þessum leik?
Stóra spurningin.
Fram
88. mín
Gult spjald

Jakob Byström

Reynir hjólhest en sparkar bara í Marin Brigic.
87. mín
Þorri Stefán reynir skot en beint á Ágúst Orra.
85. mín
Stefan Ljubicic og Kennie Chopart í baráttunni í teig Fram og dæmt á Ljubicic.
Fram
80. mín
InnSimon Tibbling
ÚtFrederico Bello Saraiva
Keflavík
80. mín
InnAxel Ingi Jóhannesson
ÚtAnton Kralj
76. mín
Fred með máttlaust skot á markið en Frammarar eru að ógna.
74. mín
Fred með fínasta bolta fyrir markið og Róbert Hauks á skalla sem hann nær ekki að stýra á markið.
Fram
73. mín
InnJakob Byström
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
72. mín
Ægir Jarl sýndist mér með skot sem fer af varnarmanni Keflavíkur og rétt framhjá markinu. Ásgeir Orri var farinn í hitt hornið og gat bara horft á eftir boltanum fara framhjá markinu.
Keflavík
68. mín
Keflavík jafnar!

Stefan Alexander Ljubicic (stoðsending: Eiður Orri Ragnarsson)

Eiður Orri með frábæran bolta fyrir markið sem er teiknaður á ennið á Stefan Ljubicic á fjærstöng sem skallar boltann í gangstætt horn! ALLT JAFNT!
67. mín
Keflavík að leita af opnunum á þéttri vörn Fram.
Keflavík
65. mín
InnEiður Orri Ragnarsson
ÚtSindri Snær Magnússon
Keflavík
65. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtMarin Mudrazija
62. mín
Leikurinn er endana á milli þessa stundina.
61. mín
Vuk er einn á móti Ásgeiri Orra en í þröngu færi og Ásgeir Orri lokar virkilega vel á hann. Fram fá þó enn eitt hornið.
58. mín
Fram að hóta öðru markinu en Keflavík verst vel.
57. mín
Róbert Hauks eltir bolta fram og reynir að koma honum fyrir en Keflvíkingar komast fyrir og koma þessu í horn.
Fram
54. mín
Fram brýtur ísinn!

Kennie Knak Chopart (stoðsending: Frederico Bello Saraiva)

Fred tekur aukaspyrnuna og lyftir boltanum inn á teig þar sem Kennie er furðulega frír og hann lyftir boltanum svo yfir Ásgeir Orra í marki Keflavíkur og kemur Fram yfir! FRAM LEIÐIR!
Keflavík
53. mín
Gult spjald

Sindri Snær Magnússon

Gunnar Oddur sveiflar spjöldum.
Fram
52. mín
Gult spjald

Már Ægisson

Keflavík
50. mín
Gult spjald

Alpha Conteh

Mótmælti þessu og fær fyrir það spjald.
50. mín
Alpha Conteh að komast á ferðina og Keflavík að komast í tækifæri á skyndisókn þegar Israel Garcia lætur sig falla og tekur um andlitið. Keflavík var að komast í yfirtölu á síðasta þriðjung. Gat ekki séð að það hafi verið neitt að þessu en Gunnar Oddur stöðvar leikinn við litla hrifningu Keflvíkinga.
48. mín
Keflavík við stýrið hérna í upphafi seinni.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Keflavík sparkar þessu af stað aftur. Væri gaman að fá mörk í þetta hérna í seinni.
45. mín
Hálfleikstölfræði
45. mín
Liðin fara markalaus inn til búningsklefa í hálfleik. Keflavík átt hættulegasta færið en Frammarar verið heilt yfir með betri stjórn á leiknum. Tökum okkur stutta pásu en fáum vonandi einhver mörk og frekari skemmtun í seinni hálfleik.
45. mín
Alpha Conteh að komast í flotta stöðu en Viktor Freyr lokar vel á hann í þröngu færi.
45. mín
Einni mínútu bætt við
41. mín
Frammarar eru hættulegir þegar þeir komast á síðasta þriðjung. Verið duglegir að vinna hornspyrnur en eiga enn eftir að nýta sér þær að einhverju viti.
39. mín
Keflavík sækir hratt og Marin Mudrazija kemur með boltann í svæði fyrir Muhamed Alghoul og hann vippar boltanum laflaust framhjá. Þarna var svo sannarlega tækifæri fyrir Keflavík.
35. mín
Boltinn fellur fyrir Kennie Chopart sem ætlar að smella honum en hittir hann ekki betur en það að boltinn fer í innkast. Leit fáránlega vel út allt þar til hann hitti boltann svona líka illa.
Keflavík
31. mín
Gult spjald

Marin Brigic

Fyrstur í svörtu bókina.
28. mín
ALPHA CONTEH!!
Viktor Freyr kemur út í skógarhlaup og Alpha Conteh fer framhjá honum og er ekki með markmann í markinu en nokkra Frammara sem detta neðar á línuna en hann þrumar boltanum framhjá! Hvernig tókst honum ekki að skora!?!
25. mín
Alpha Conteh að ógna með hraða sínum og krafti. Búið að taka hann tvisvar niður og fékk loksins aukaspyrnu núna.
21. mín
Skemmtileg barátta milli Vuk Oskars og Ásgeirs Páls úti vinstra megin.
18. mín
Fram vinnur boltann á miðjunni og Freyr Sigurðsson á huggulegan bolta fyrir markið en Vuk nær honum ekki á fjær.
16. mín
Már Ægis með fyrir fyrirgjöf fyrir markið sem Keflvíkingar skalla aftur fyrir. Ekki langt frá því að skalla í eigið net sýndist manni.
14. mín
Marin Mudrazija reynir skot af löngu færi en það er tilturlega þægilegt fyrir Viktor Freyr í marki Fram.
8. mín
Frammarar sækja hratt á Keflavík og komast í frábæra stöðu en skotið hátt yfir. Gestirnir grimmir.
7. mín
Keflavík verst tveimur hornspyrnum frá Fram vel.
5. mín
Vuk með tilraun sem fer af varnarmanni og Framamrar fá fyrsta horn leiksins.
3. mín
Vuk gripinn í rangstöðu þegar Frammarar eru að sækja. Það er kraftur í gestunum hér í upphafi.
1. mín
Það eru gestirnir í Fram sem sparka þessu af stað.
0. mín
Enginn Rúnar Kristins á skýrslu
Rúnar er veikur og því ekki með sínu liði í dag. Helgi Sig stýrir liðinu í hans fjarveru.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Enginn Atli Þór Jónasson í dag
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar. Keflavík gera engar breytingar á sínu liði sem vann öflugan sigur gegn KR í síðustu umferð. Fram gera eina breytingu á sínu liði sem vann sterkan útisigur gegn ÍA í síðustu umferð. Vuk Oskar Dimitrijevic kemur inn í byrjunarliðið fyrir Atla Þór Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Spákona umferðarinnar
Við fengum Helgu Rut Einarsdóttur, fyrirliða U19 landsliðs kvenna, til að spá í spilin fyrir umferðina. Helga er þessa stundina í Bosníu á lokakeppni Evrópumótsins með U19.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 1 - 2 Fram Fram búnir að vera a góðu runni og taka þennan leik. Sigurjón Rúnarsson skorar með góðum skalla!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Innbyrðis viðreignir
Þessi lið hafa marga fjöruna sopið saman og vilja Keflvíkingar sennilega sem minnst muna eftir leik liðana í lokaumferðinni 2008 þegar Fram stal undan Keflvíkingum Íslandsmeistaratitlinum með 1-2 sigri sem varð til þess að FH urðu Íslandsmeistarar það ár.

Þessi lið hafa mæst 140 sinnum.

Keflavík hefur unnið 57 sinnum.

Fram 45 sinnum.

Liðin hafa skilið jöfn 38 sinnum.

Mynd: Fotbolti.net-Davíð Örn Óskarsson
Fyrri leikur liðana í deildinni í sumar endaði með 3-1 sigri Fram.
0. mín
Keflavík
Keflavík hefur komið skemmtilega á óvart á tímabilinu og verið mun beittari en flestir héldu fyrir mót. Keflavík hefur verið að tengja saman góðar frammistöðu og sótt flott úrslit þar sem af er tímabils og sitja í 7. sæti deildarinnar með 15 stig en geta með sigri lyft sér upp í efri hluta deildarinnar.

Eftir að hafa aðeins misst dampinn og tapað gegn ÍBV og FH hafa Keflvíkingar verið að finna gott form og sóttu gott stig á Hlíðarenda og unnu frábæran sigur á KR í síðustu umferð 3-2 en það var jafnframt þeirra fyrsti sigur á KR í 18 ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Fram
Fram hafa átt magnað tímabil til þessa og geta með sigri í kvöld jafnað KR af stigum í 2. sæti deildarinnar og eiga að auki leik til góða til þess að komast átta stigum frá Víkingum á toppi deildarinnar.

Frammarar hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum en eini tapleikur liðsins kom gegn toppliði Víkinga. Í síðustu umferð unnu Frammarar góðan 0-2 útisigur á ÍA þar sem Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörkin en hann er markahæsti leikmaður Fram í deildinni með sjö mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Dómarareymið í kvöld
Gunnar Oddur Hafliðason verður á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar verða Eysteinn Hrafnkelsson og Kristofer Bergmann. Róbert Þór Guðmundsson er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Ingvar Örn Gíslason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Lokaleikur þrettándu umferðar
Leikur Keflavíkur og Fram lokar 13. umferð Bestu deild karla.

Umferðin hefur farið svona fram:

Þór Ak. 3-3 KR
Víkingur 3-2 KA
FH 2-2 Stjarnan
ÍA 1-2 Breiðablik
ÍBV 1-0 Valur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Velkomin á HS Orku völlinn!
Heil og sæl og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá HS Orku vellinum í Keflavík þar sem heimamenn í Keflavík taka á mót Fram í Bestu deild karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.