Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Sambandsdeildind
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
0 - 0
Víkingur Götu
Víkingur Götu
Dómari: Mohammad Usman Aslam (Noregur)
0. mín
Norskt dómarakvartett
Mohammad Usman Aslam verður með flautuna, Alf Olav Rossland og Ole Andreas Haukåsen verða með flöggin. Marius Lien verður með skiltið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Heimamenn
Stjarnan situr í 6. sæti með 15 stig. Eftir að Jón Þór Hauksson tók við liðinu hefur liðið gert tvö jafntefli gegn Breiðablik og FH, eitt tap gegn ÍBV og einn sigur gegn KA á heimavelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á heimavelli hefur Stjarnan unnið tvo leiki í deildinni, þessir tveir leikir voru gegn FH og KA. Emil Atlason er markahæstur í liðinu í Bestu Deildinni en hann hefur skorað 7 mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Tjekkum aðeins á gestunum
Samkvæmt Fótbóltssamband Føroya er Víkingur Götu í fjórða sæti í deildinni, 6 sigrar, 8 jafntefli og 2 töp. Á síðasta tímabili lenti Víkingur Götu í fjórða sæti í deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kaj Leo í Bartalsstovu spilar fyrir liðið. Það ættu margir að þekkja Kaj Leo en hann spilaði á Íslandi á árunum 2016-2025. Hann spilaði fyrir Val, ÍBV, ÍA og önnur lið. Hann byrjaði ferilinn hjá Víkingur Götu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eldri bróðir Gunnars Vatnhamar spilar líka fyrir Víkingur Götu, hann Sølvi Vatnhamar er 40 ára og spilar á miðjunni. Hann hefur spilað fyrir Víkingur Götu síðan 2008. Gunnar spilaði líka með Víkingur Götu í 10 ár, áður en hann kom til Víkings. Hérna ræðir Sølvi Vatnhamar um leikinn gegn Stjörnunni.
0. mín
Sambandsdeildin heilsar!
Jæja, það er komið að því. Stjarnan tekur á móti frændum okkar frá Færeyjum, liðinu Víkingur Götu. Þetta er fyrsti leikur liðanna og verður hann spilaður á Samsungvellinum, seinni leikurinn verður 16. júli í Færeyjum kl 16:00.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.