Fotbolti.net
@HilmarjokullHilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Fótbolti.net bikarinn
SÚN-völlurinn
KFA
KFA
3 - 2
Augnablik
Augnablik
Kifah Moussa Mourad (víti) 2'1 - 0Þór Sigurjónsson 60'2 - 02 - 168' Maríus Warén2 - 276' Finnur Breki FinnssonNenni Þór Guðmundsson 79'3 - 2
Dómari: Sveinn Arnarsson
Leik lokið!
+6
Heimamenn fara með sigur af hólmi í stórskemmtilegum leik og eru komnir i 8-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins.
90. mín
+4
Hvernig endar þessi ekki inni??? Jawed með flotta sendingu innfyrir á Óla Benna en fyrirgjöfin hans þvert fyrir markið ratar ekki á samherja.
90. mín
+2
KFA með svaka færi. Endar á því að Nenni setur þéttingsfast skot framhjá.
Augnablik
87. mín
InnBjarni Harðarson
ÚtMaríus Warén
85. mín
Milan með glæsivörslu
Brynjar Óli með neglu upp í skeytin en Milan ver glæsilega og meiðist í kjölfarið.
KFA
79. mín
MAAAARK!

Nenni Þór Guðmundsson (stoðsending: Jawed Abd El Resak Boumeddane)

Þvílíkt samspil hjá Jawed og Nenna sem endar með því að nenni setur boltann á milli markmanns og varnarmanns og af varnarmanninum fer boltinn í markið.
Augnablik
76. mín
MAAAARK!

Finnur Breki Finnsson

Hvað er Arnór Berg að spá? Hann er bara að dóla sér með boltann og við tökum ekkert af Finni sem pressaði hann vel en Jesús kristur hvað þetta var lélegt hjá Arnóri. Finnur tekur síðan boltann og setur hann framhjá Milan.
Augnablik
75. mín
Gult spjald

Maríus Warén

KFA
74. mín
InnÓlafur Bernharð Hallgrímsson
ÚtGabríel Máni Sævarsson
KFA
74. mín
InnJawed Abd El Resak Boumeddane
ÚtKifah Moussa Mourad
73. mín
Javier maður!
Indrit þarf að taka á honum stóra sínum þarna. Javier með glæsilegt skot sem Indrit kýlir yfir. Ekkert verður úr horninu samt.
Augnablik
72. mín
InnFinnur Breki Finnsson
ÚtKormákur Pétur Ágústsson
71. mín
Var þetta víti?
Javier með fyrirgjöf sem virðist stefna beint á Eggert en hann virðist fá hrindingu í bakið. Kannski víti, kannski ekki.
Augnablik
69. mín
Gult spjald

Guðmundur Heiðar Björnsson

Guðmundur alltof seinn í Patrek.
Augnablik
68. mín
Möller sýning

Maríus Warén (stoðsending: Kristján Lúðvík Möller)

Kristján Möller dansar framhjá tveimur eða þremur varnarmönnum KFA og leggur boltann á Maríus sem getur ekki klúðrað þessu og setur boltann í markið.
KFA
67. mín
Gult spjald

Javier Montserrat Munoz

Þetta tók hann ekki heila mínútu. Fiktar i boltanum eftir að Sveinn er búinn að flauta. Hárrétt.
KFA
66. mín
InnJavier Montserrat Munoz
ÚtÞór Sigurjónsson
65. mín
HANDAGANGUR Í ÖSKJUNNI
Milan ver vel í tvígang. Augnablik með tvö fín færi með stuttu millibili en Milan ver mjög vel.
63. mín
Þvílíkur leikur
Leikmenn tóku þessu áðan með að það væri ekkert að gerast persónulega. Boltinn fyrir teiginn á Maríus sem setur hann í netið en rangstæða flögguð.
62. mín
KIFAH NÆSTUM ÞVÍ 3-0
Kifah með skot rétt framhjá markinu. Heimamenn miklu betri þessa stundina.
KFA
60. mín
MAAAARK!

Þór Sigurjónsson (stoðsending: Nenni Þór Guðmundsson)

Nenni kemst í gegnum vörn Augnabliks en Indrit ver skotið frá honum beint út í teiginn þar sem Þór er mættur fyrstur á boltann og setur hann í netið framhjá Indrit. 2-0 KFA
KFA
58. mín
Gult spjald

Arnór Berg Grétarsson

Hárréttur dómur. Alltof seinn í tæklinguna.
56. mín
Lítið að frétta
Hvorugt lið að ná að skapa sér nein alvöru færi.
50. mín
Nenni allt í öllu
Fær boltann rétt fyrir utan vítateig Augnabliks en skot hans fast og framhjá stönginni.
48. mín
Nenni með fyrirgjöf
En framhjá öllum leikmönnum beggja liða. Þór og Eggert ekki ýkja langt frá þessu samt.
Augnablik
46. mín
InnHákon Logi Arngrímsson
ÚtHeiðar Ingi Isorena Þórðarson
Heiðar varð fyrir einhverju hnjaski í fyrri hálfleik og getur ekki haldið leik áfram.
46. mín
Seinni hálfleikur af stað
Gestirnir í Augnablik byrja seinni hálfleikinn.
45. mín
Heimamenn leiða 1-0 í hálfleik en bæði lið gætu verið búin að skora fleiri mörk.
45. mín
Já nei tek þetta til baka
Kifah kemst einn í gegn á vinstri kantinum en Indrit ver frá honum.
45. mín
Hvorugt lið að ná að skapa sér þessa stundina
Hálfleikurinn svolítið að fjara út.
41. mín
Maríus í skotfæri
En skot hans langt framhjá og hátt yfir markið.
39. mín
Endalaust af hornum
Það eru komin yfir 10 horn hérna í fyrri hálfleik en ekkert ennþá komið úr þeim.
Augnablik
31. mín
Það rignir gulum spjöldum

Kormákur Pétur Ágústsson

Alltof seinn og bombar Símon niður.
KFA
29. mín
Brot rétt fyrir utan teig

Óðinn Þór Helgason

Óðinn lendir á eftir og fer aftan í Augnablikann.
28. mín
Augnablik með horn
Beint á Milan markmann.
27. mín
KFA með horn
Það fer yfir allan pakkann og á Alekss sem hreinsar boltann frá.
24. mín
Nenni Þór - Stöngin út
Darraðadans í teig Augnablika þar sem boltinn dettur fyrir Nenna sem á glæsilegt skot sem smellur í stönginni utanverðri.
20. mín
Fyrsta alvöru færi Augnabliks
Maríus kemst í gegn eftir flott samspil Augnablika en skotið framhjá markinu.
16. mín
Balthasar í allskonar vandræðum
Byrjar á frábærri tæklingu en missir síðan boltann kjánalega og Þór fljótur að hugsa og er á leið inn í teig þar sem Balthasar nær að bjarga andliti og tækla boltann í Þór og í markspyrnu.
12. mín
ÞÓR Í DAUÐAFÆRI
Þór kemst í glæsilegt færi og virðist vera að gera allt rétt en skot hans með vinstri fer í slánna og yfir.
11. mín
Nenni með skot af 25 metrunum
Heimamenn heilt yfir verið betri fyrstu mínúturnar. Nenni með flott skot í fjær sem Indrit ver vel.
9. mín
Allt brjálað á bekk Augnabliks
Kristján L. Möller kemst í gegn og er að fara framhjá Milan þegar hann er flaggaður rangstæður. Get ekki betur séð en að þetta hafi verið rangur dómur svo reiðin á rétt á sér.
8. mín
Eggert með tryllta sendingu í gegn
Óðinn tekur hlaupið á fullkomnum tíma en fær boltann í höndina þegar hann tekur á móti honum.
6. mín
Augnablik með horn
KFA hreinsa frekar auðveldlega frá.
KFA
2. mín
MAAAARK!

Kifah Moussa Mourad

Klaufalegt brot og Kifah tekur öruggt víti í hægra hornið þar sem Indi fer í vitlaust horn.
1. mín
VÍTI FYRIR KFA
1. mín
Fyrsta færi leiksins
KFA kemst upp hægri vænginn eftir sendingu frá Eggerti á Þór á Þór sendingu inn fyrir á Nenna sem á skot framhjá.
1. mín
Heimamenn hefja leikinn
0. mín
Síðustu leikir liðanna
Bæði lið unnu síðustu leiki sína í deildunum. KFA tók Víking Ólafsvík í kennslustund á SÚN-vellinum þar sem Austfirðingar unnu öruggan 3-0 sigur. Augnablik fór austur á Höfn hvar þeir unnu Sindra 0-1.
0. mín
Staða liðanna í deildunum
Þrátt fyrir að þetta sé bikarleikur er vert fyrir okkur að skoða stöðuna í deildum þessara liða. KFA er í 8. sæti 2. deildarinnar með 13 stig en Augnablik eru í sama sæti, því 8., í 3. deildinni og eru þar með 14 stig.
0. mín
Kristalkúlan hefur talað
0. mín
Flautuleikari kvöldsins
Dómari þessa leiks er enginn annar en Skattasérfræðingurinn Sveinn Arnarsson, en Akureyringurinn er öllum hnútum kunnugur hér fyrir austan hvar hann dæmir stundum.
0. mín
Leið liðanna hingað
Bæði lið hafa spilað einn leik í keppninni fram að þessum leik. Augnablik mætti í Árbæinn og vann lið Elliða 1-3 þann 26. maí síðastliðinn og daginn eftir ferðuðust liðsmenn Árbæs frá Elliðaárdalnum alla leið austur þar sem heimamenn í KFA unnu 2-0 sigur á Árbæ. Þannig má með sanni segja að hér séu á ferðinni tvö lið sem hafi slegið Árbæinn eins og hann leggur sig út úr keppninni
0. mín
Gleðilegan leikdag!
Góðan og gleðilegan leikdag kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá SÚN-vellinum í Neskaupstað, Fjarðabyggð, þar sem lið heimamanna í KFA mætir Augnablikum úr Kópavogi í 16-liða úrslitum Gatorade bikars Fótbolta.net.
Mynd: Guðlaugur Björn Birgisson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.