Fotbolti.net
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Selfoss
Selfoss
0 - 0
Hvíti riddarinn
Hvíti riddarinn
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna.
Í annari umferð 2.deildar mættust þessi lið og þá í Mosfellsbæ. Leikurinn þar endaði með 1-1 jafntefli þar sem Selfoss komst yfir á 9mín með marki frá Aroni Lucas Vokes. Hvíti Riddarinn jafnaði síðan á 90mínútu og þar var Birkir Örn Baldvinsson á ferð.
Fyrir leik
Hvíti Riddarinn
Þeir spiluðu einnig í 16-liða úrslitum Gatorade-bikarsins en töpuðu þar 2-0 fyrir Ýmir á heimavelli sínum. Þeir sitja í 9.sæti og erum með 12stig. En deildin er mjög þétt og þrjú stig gera helling fyrir liðið ef það nær að koma og skemma Kótelettu stemninguna hér á Selfossi. Síðasti leikur Hvíta Riddarans var gegn Dalvík (liðið í 2.sæti). Þar lentu þeir 2-0 undir eftir 17mín en náðu að snúa því í 3-2 þangað til á 90mín og þá kom jöfnunarmarkið frá Dalvík 3-3 lokastaða.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
Selfoss
Selfoss lék í 16-liða úrslitum Gatorade bikarsins á Miðvikudaginn. Þar sýndu Selfyssingar virkilega hversu sterkir þeir eru en ekki einungis innan vallar með 5-0 sigri á nágrannaliði sínu Árborg. Heldur var leikurinn styrktarleikur sem skilaði sér mjög vel og allur ágóði rann til heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar á Selfossi.
Mynd: Fótbolti.net
En Selfoss er um þessar mundir í 3.sæti með 19stig (fjórum stigum frá toppsætinu). Síðasti deildarleikur þeirra var sigur gegn KFG þar sem Viðar Örn Kjartansson skoraði þrennu. Hann deildir sætinu um markaskóinn með 9stykki í 11leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Dómarar
Á flautunni í dag er Arnar Ingi Ingvarsson. Aðstoðardómarar eru Jón Reynir Reynisson og Kristinn Freyr Victorsson. Dómaraeftirlitsmaður er Jón Sigurjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Kótelettuleikurinn!
2.Deild karla heilsar héðan frá JÁVERK-vellinum á Selfossi í dag. Það er nóg um að vera á Selfossi um þessar mundir, hellingur af gestum mættir í bæinn til að skemmta sér á Kótelettunni en á sparkvellinum í dag eru gestirnir frá Mosó í Hvíta Riddaranum.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrsti leikurinn í 12.umferð og mun hann byrja á slaginu 16:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.