Fotbolti.net
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Blæs létt og úði
Selfoss
Selfoss
2 - 2
Hvíti riddarinn
Hvíti riddarinn
0 - 128' Aron Daði ÁsbjörnssonAron Lucas Vokes 52'1 - 1Viðar Örn Kjartansson (víti) 55'2 - 12 - 277' Aron Daði Ásbjörnsson
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Kótelettan neitaði að gefa þrjú stig

Hvað réði úrslitum?

Hart barist í leiknum í dag og flatleiki ræður úrslitum. Hvíti Riddarinn mjög solid í fyrri en síðan að Selfoss hafi ekki náð að klára þetta í seinni er mjög slapt, verður að segjast.

Bestu leikmenn

1. Aron Daði Ásbjörnsson

Tvenna og vel gert í báðum mörkunum. Ekki frá því að þetta voru einu tvö færin sem hann fékk þannig góð nýting og flottur leikur

2. Aron Lucas Vokes

Frábær leikmaður sem er ekkert að fela sig bakvið stórstjörnurnar sem leiða sókn Selfoss. Glæsilegt mark og virkilega sprækur allan leikinn. Eflaust svekktur þó að hafa ekki skorað úr færinu sem hann fékk til að koma Selfoss í 3-1

Atvikið

Innkoma Selfoss í seinni hálfleikinn. Allt annað að sjá þá og manni leið í 2-1 að þetta gæti orðið þægilegur sigur en svo varð heldur betur ekki.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss mistekst að tilla sér í annað sætið en þeir eru með 20stig og ennþá vel í efri pakka 2.deildar. Hvíti Riddarinn hefði einnig kunnað að meta þrjú stigin en 1stig er það og 13stig er uppskeran eftir 12.leikinn í deild.

Vondur dagur

Fyrir þrjú stigin og veðrið, held það hefði auðveldlega geta verið betri stemning á Selfossi í góðu veðri í Kótelettunni en við verðum bara að hafa það. Hvíti Riddarinn var háværari í stúkunni í dag en á köflum slakur orðaforði hjá þeim.

Dómarinn - 7

Fínn, vítið er bara rétt og bara fínasta frammistaða.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.